Fjarðarpósturinn - 12.07.2007, Blaðsíða 1
ISSN 1670-4169w w w. f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
28. tbl. 25. árg. 2007
Fimmtudagur 12. júlí
Upplag 9.800 eintök. Dreift frítt í Hafnarfirði og á Álftanesi
www.66north.is
Miðhraun 11 - Sími 535 6600
www.as.is
Sími 520 2600
Safnaðarfundur í Ástjarnar -
sókn vildi ekki auglýsa stöðu
sóknar prest en safnaðarstjórnin
ákvað að auglýsa vegna þess að
safnaðarfundur í Kálfatjarnar -
skókn ákvað að auglýsa. Þessar
tvær sóknir mynda Tjarna presta -
kall og réð litla sóknin þarna för.
Sótt hefur verið um að Ástjarnar -
sókn verði sjálfstætt prestakall
enda stækkar sóknin mjög hratt.
Ekki var beðið eftir niðurstöðu í
því málefni og nýtt prestakall fær
litlu um það ráðið hver þá verður
prestur eftir að valnefnd Kálfa -
tjarnarsóknar hafnaði sitjandi
pre sti og valdi sr. Báru Frið riks -
dóttur til starfa frá og með 1.
sept em ber nk.
Ólafur Jóhannsson, formaður
Prestafélagsins sagði í samtali
við Fjarðarpóstinn að þetta verði
vonandi í eina og síðasta skipti
sem reyni á þetta ákvæði í lögum
um ráðningu presta. Ljóst hafi
verið að Carlos Ferrer hafi ekki
haft stuðning sóknarnefndar
sinnar þrátt fyrir að safnaðar -
fundur hafi hafnað tillögu nefnd -
arinnar um að auglýsa stöðu
prests.
Á aðalfundi Prestafélagsins
var mál Carlosar tekið upp og
sagði Sr. Halldór Gunnarsson
m.a að útfærsla á 40. gr. þjóð -
kirkjulaganna augljóslega ekki
þannig að við hana verði unað.
Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson
sagði m.a.: „Mikilvægt er að
vera vakandi yfir starfsöryggi
stéttar innar svo órökstuddar
ávirð ingar og dylgjur valdi ekki
starfs missi,“ og fagnaði því að
sett verði undir þennan leika með
breyttum starfsreglum en aðal -
fundurinn skoraði á kirkju -
stjórnina að setja skýrar reglur
um ábyrgð þjóðkirkjunnar gagn -
vart þjónandi prestum. Sagði
hann að handleiðsla og sáttaferli
hefði átta að koma til þegar
málið kraumaði.
Framhald á bls. 7
Valnefndin vildi ekki
núverandi prest áfram
Bára Friðriksdóttir valin í stað Carlosar Ferrer, sitjandi sóknarprests
565 2525
Hjallahrauni 13
30%
afsláttur
af sóttum pizzum
Gildir ekki með öðrum tilboðum
Útsölurnar
byrjaðar!
Næst 19. júlí
Fjarðarpósturinn fer í
stutt sumarfrí
Síðasta blað fyrir sumarfrí er
fimmtudaginn 19. júlí. Fyrsta
blað eftir sumarfrí er fimmtu dag -
inn 16. ágúst.
Sr. Carlos Ferrer