Fjarðarpósturinn - 12.07.2007, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. júlí 2007
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Hvaleyrarvatn er paradís okkar Hafnfirðinga.
Enn eru sjálfboðaliðar að laga göngustíginn í
kring en fátt annað er gert til að bæta aðstöðu
þeirra fjölmörgu sem þangað leggja leið sína.
Hestamenn hafa verið að pirra fólk þarna en
eðlilega er ekki við hæfi að börn þurfi að hlaupa
innan um hrossaskít á ströndinni við vatnið og
hvað veit maður hvað ofan í því er. Göngu -
stígarnir fá heldur ekki að vera í friði fyrir hesta -
mönnum sem grunaðir eru um að taka niður
skilti þar sem umferð hesta er bönnuð. Samtök hestamanna hljóta
að þurfa að taka á þessum skussum. Nóg er mulið undir hestamenn
sem fá besta stað í bænum undir hesthús, marga km af reiðstígum
og snjómokstur á sumum þeirra. Ekki svo að hestamenn eigi ekki
allt gott skilið en gangandi fólk og annað útivistarfólk fær ekki
sömu fyrirgreiðslu. Kannski það þurfi að stofna íþróttafélag til þess
að ná eyrum pólitíkusanna.
Ég fylgdist með fótboltamóti ungra drengja á Akureyri, heimsótti
glæsilega sundlaug þeirra og gekk um bæinn. Getum við ekki lært
margt af stjórnendum vinabæjar okkar? Af hverju er Suðurbæjar -
laugin ekki paradís eins og Akureyrarlaugin? Af hverju er
Hellisgerði ekki glæsilegt eins og Listigarðurinn? Vantar ekki
einhverja sem bera ábyrgð á heildarskipulagi og framtíðarsýn í
umhverfis- og gróðurmálum í bænum? Æ, það er kallað bæjar -
stjórn. Kannski vantar ákvörðun hennar að efla umhverfissvið
bæjarins sem nú er hluti af framkvæmdasviði? Eitthvað þarf að
gera, vilji til verka virðist vera alls staðar en þar við situr.
Umhverfismálum þarf að sinna betur í Hafnarfirði, fallegasta
bæjarstæði landsins. Förum vel með umhverfi okkar.
Guðni Gíslason
www.hafnarf jardark i rkja. is
Sunnudagurinn 15. júlí 2007
Helgistund kl. 11
Skírn og kveikt á bænakertum
Prestur: sr. Gunnþór Þ. Ingason
Allir velkomnir!
17. Breyting á deiliskipulagi
miðbæjar, akstursaðkoma að
menntasetri
Tekin fyrir að nýju tillaga Land -
mótunar að breytingu á deili -
skipulagi miðbæjar hvað varðar
akstursaðkomu að Menntasetrinu
við Lækinn og frágang lækjar -
kants, dags. 27.03.07. Tillagan var
auglýsingt samkvæmt 1. mgr. 26.
greinar skipulags- og byggingar -
laga nr. 73/1997, engin athuga -
semd barst. Haldinn var almennur
kynningarfundur á tillögunni.
21. Kríuás 47, húsfélag,
trjárækt í einskismannslandi
Íbúar að Kríuási 47 óska eftir að
taka land í fóstur til að gróðursetja
tré og runna skv. ódags. bréfi frá
formanni húsfélagsins. Skipulags-
og byggingarfulltrúi samþykkir
erindið, þar sem það samræmist
deiliskipulagi. Afnot eru aðeins
samþykkt til gróður setningar, sem
skal gerð í samráði við garðyrkju -
stjóra Hafnar fjarðarbæjar. Landið
er afturkræft án bótaskyldu.
6. Kapelluhraun - svæði fyrir
akstursíþróttir o.fl.
Teknar fyrir að nýju hugmyndir
varðandi akstursíþróttasvæði í
Kapelluhrauni. Lagðar fram at -
hug un Línuhönnunar á hljóðvist,
drög staðardagskrárfulltrúa að
mats lýsingu um umhverfismat
deiliskipulagsins, og innkomnar
umsagnir Fornleifaverndar (22. -
02. 07), Íþróttabandalags Hafn a -
rfjarðar (14.06.07), Lands nets
(27. 02.07), Lögreglustjórans á
höf uð borgarsvæðisins (25.01.07),
um hverfisnefndar (30.05.07) og
Íþrótta- og tómstundanefndar
Hafn arfjarðar (12.06.07) um deili -
skipulagið. Skipulags- og bygg -
ingar ráð felur skipulags- og bygg -
ingarsviði að vinna drög að
umsögn um innkomnar umsagnir
nefnda og hagsmunaaðila.
7. Aðalskipulag Hafnarfjarðar,
breyting á akstursíþróttasvæði
Tekin fyrir að nýju tillaga um að
heimila breytingu á Aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað
varðar raflínur og strengi á
akstursíþróttasvæði í Kapellu -
hrauni. Lagt fram kostnaðarmat
skipulags- og byggingarsviðs. Á
síðasta fundi var samþykkt að
heimila skipulags- og bygg -
ingarsviði að vinna tillögu að
breyt ingu á Aðalskipulagi Hafna r -
fjarðar 2005 - 2025 hvað varðar
akstursíþróttasvæði í Kapellu -
hrauni, þar sem raflínur yfir
svæðið verði lagðar í jarðkapal.
Skipulags- og byggingarráð gerir
eftirfarandi tillögu til bæjar stjórn -
ar/bæjarráðs: „Bæjarstjórn Hafnar -
fjarðar sam þykkir að heimila skipu -
lags- og byggingarsviði að vinna
tillögu að breytingu á Aðal skipu lagi
Hafn ar fjarðar 2005 - 2025 hvað
varð ar akstursíþróttasvæði í
Kapellu hrauni, þar sem raflínur yfir
svæð ið verði lagðar í jarðkapal."
Tillagan er samþykkt með fjór um
atkvæðum gegn einu atkvæði
fulltrúa Sjálfstæðisflokks.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks óskar
eftir farandi bókunar: „Raflínur á
Völlum verði teknar fyrir í heild sinni
varðandi lagnir í jörðu og tekið verði
tillit til athugasemda Landsnets
dags. 27.02.2007.“
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 815. júlí
Helgistund á sumarkvöldi
sunnudaginn 15. júlí kl. 20.00
Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Allir velkomnir
www.vidistadakirkja.is
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
Vegna sumarleyfa og veikinda
starfsmanna á skipulags- og
byggingarsviði Hafnar fjarðar -
bæjar má búast við einhverri
seinkun á afgreiðslu erinda.
Erindi verða afgreidd eins
fljótt og unnt er í þeirri röð sem
þau berast inn, nema fyrir liggi
sérstakar ástæður fyrir flýti -
meðferð.
Tafir á afgreiðslum erinda
Sumarleyfi og veikindi tefja afgreiðslu erinda hjá
skipulags- og byggingarfulltrúa
Helga Sæunn Árnadóttir,
nagla- og förðunarfræðingur
hefur keypt snyrtivöru verslunina
Andorru, næst elstu verslun
Hafnarfjarðar. Helga Sæunn
hefur rekið Naglastúdíó Helgu
Sæunnar að Strandgötu 17 en
mun nú flytja þá starfsemi í
húsnæði Andorru sem hefur
verið mikið breytt til að taka við
þeirri starfsemi.
Helga Sæunn segir í samtali
við Fjarðarpóstinn að kaupin
leggist vel í sig og vonast eftir að
sjá sem flesta á opnuninni á
morg un, föstudag kl. 17-19.
And orra var áður í eigu Ástu
Sigurðardóttur.
Andorra fær nýjan
eiganda
Opnað aftur á morgun kl. 17
Hvaleyrarvatn er paradís
fjölskyldufólks á heitum dögum
og þangað flykkjast Hafn firð -
ingar í góða veðrinu. Mikil
óánægja er með að hestamenn
séu með hesta sína þarna og
hrossaskítur er víða á ströndinni
auk þess sem fólk hefur mætt
mönn um á hest um á göngu -
stígum sem er alveg bannað og
skemmir stígana.
Baða sig innan um hrossaskít
Hestamenn með hesta sína við Hvaleyrarvatn
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n