Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Page 4

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. apríl 2006 Allt í drasli Til eigenda og ábyrgðarmanna lausamuna á hafnarsvæðum Hafnarfjarðarhafnar Hafnarfjörð til fyrirmyndar Til athugunar með hækkandi sól: Vinsamlegast fjarlægið lausamuni af hafnar- svæðum Hafnarfjarðarhafnar sem eru á víð og dreif um hafnarsvæðin, þ.m.t. bátakerrur og aðra lausa muni við Hvaleyrarlón, sem fyrst og ekki síðar en 29. apríl nk. Sé þessum tilmælum ekki sinnt, verða viðkom- andi munir fjarlæðir á ábyrgð og kostnað eigenda og/eða umráðamanna. Látum hendur standa fram úr ermum og höfum Hafnarfjörð til fyrirmyndar. Hafnarstjóri © H ön nu na rh ús ið e hf . – 0 60 3 Sem réttur og sléttur Hafn- firðingur, búandi í fjölbýlishúsi á Hvaleyrarholti og horfandi á Hafnarfjörð allt um kring, staldraði ég við auglýsingu um skipu- lagsþing í Skátaheim- ilinu þann 6. apríl sl. Kynna átti m.a. aðal- skipulag til ársins 2025. Ég dreif mig svo á staðinn og hlýddi á mikinn fróðleik sem vakti hjá mér margar spurningar. Síðan kom að lið sem nefndist: Kynning að deiliskipulagi 3. áfanga Áslands- hverfis. Allt í einu fylltist frekar þunn- skipaður skátasalurinn og maður skynjaði einhverja spennu í loft- inu. Eftir faglega kynningu Bjarka sviðsstjóra og móðurleg orð formanns Skipulags- og byggingarráðs, byrjaði ballið. Fólkið sem fyllti salinn hafði fengið loforð fyrir einbýlishúsa- lóðum á þessum stað. Eitthvað hafði verið hrært í skipulagstil- lögunni og komin tillaga um nokkur fjölbýlishús neðst á reitnum, næst Kaldárselsvegin- um. Fyrir þá sem ekki eru stað- kunnugir, er þetta svæði vestan við gömlu hesthúsin ofan vegar- ins inn að Kaldárseli. Fljótt kom í ljós að Bjartur í Sumarhúsum átti sér marga and- lega samherja í salnum. Átti að fara að gjaldfella svæð- ið með einhverjum fjölbýlishús- um og byrgja mönnum sýn til síns ástkæra lands?. Nóg kostar þetta nú samt. Handan við hornið biðu gírugir verktakar sem borguðu fyrirfram í ákveðna kosninga- sjóði. Ekki virtist nóg að búa efst í hlíðum og horfa niður á liðið í blokkunum - jafnvel eldra fólk sem þyrfti lyftur og vildi líka njóta sólarlagsins. Þarna var Íslendingur- inn með Stórum staf - einn í bæ og engum háður. Enginn minntist á ásýnd hverfisins, byggðina næst Kaldárselsvegi. Undir lokin minnti ég á mynd- ina hans Hrafns Gunnlaugssonar um skipulagsmál, þar sem hann setti lengjurnar við Kleppsveg- inn upp á rönd og allt í einu blöstu við sundin og Viðey og Esjan og Akrafjallið. Þá voru flestir einbýlingarnir farnir, þeir sem voru að forvitnast um fram- tíðarskipulag, löngu farnir og eftir stóðu svolítið ringlaðir for- svarsmenn skipulagsþings með afkomendur Bjarts í Sumarhús- um upp í kok. Í huga minn kom svipmynd frá heimsókn til Hong Kong fyrir allnokkru, þar sem villurnar prýddu hlíðarnar, en bátafólkið hafði ekki einu sinni fast land undir fótum. Líti nú hver í sinn barm, enda að koma páskar. Höfundur er Hafnfirðingur – enn með stórum staf. Bjartur í Sumarhúsum mætir á skipulagsþing Reynir Ingibjartsson Sveitarstjórnarkosningar: Frjálslyndir ekki fram Ljóst virðist vera að Frjáls- lyndi flokkurinn býður ekki fram í Hafnarfiði í vor að sögn Daníels Helgasonar formanns bæjar- málaflokks Frjálslyndra í Hafn- arfirði. Hraunholt lokar Að sögn Sigurjóns Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra veit- ingasalarins Hraunholts verður starfsemin lögð niður eftir 14 ára farsælt starf. Er þetta m.a. vegna óeðlilegs rekstrarum- hverfis slíkrar starfsemi í sam- keppni m.a. við veislusali í hús- næði sem Hafnarfjarðarbær hef- ur kostað að mestu leyti. Þá eru áherslubreytingar í rekstri húss- ins ein ástæðan og vildi Sigur- jón koma á framfæri þakklæti til Hafnfirðinga fyrir ánægjuleg viðskipti en veislusölunum verður lokað um miðjan maí. Áformað er að hefja niðurrif á Kaupfélagshúsinu við Strand- götu í næstu viku en búast má við að hreinsunarstarf taki nokkrar vikur. Skv. heimildum Fjarðarpósts- ins kynnti Hanzahópurinn (áður Tjarnarbyggð) hugmyndir sínar að uppbyggingu á svæðinu en áður var búið að samþykkja 4 hæða hús frá pósthúsi að gamla Alþýðuhúsinu. Skv. nýjustu hug- myndum er stefnt að því að byggja 2ja hæða hús í gatið og fyrir miðju kæmi 12 hæða turn þar ofan á en til fróðleiks má geta þess að að verslunarmið- stöðin Fjörður er 7 hæða og núverandi hús á lóðinni eru 3 hæða. Ekki virðist vera mikill vilji fyrir svona háu húsi í miðbænum og engin formleg umsókn hefur komið um svona hátt hús. Vilja 14 hæða turn í miðbæinn Hanzahópurinn vill byggja 60 íbúða íbúðaturn á Kaupfélagslóðinni Þarna stóð Hafnarfjarðarbíó áður og Kaupfélagshúsið er til hægri. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Um 65 manns við póst- dreifingu í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ og eru bækistöðvar þess í nýrri póstdreifingarmið- stöð að Dalshrauni 6. Þar kemur pósturinn úr Reykjavík upp úr kl. 7 á morgnanna og starfsfólk er að tínast inn til kl. 8 segir Freydís Jónsdóttir dreifingarstjóri. Allur póstur sem kemur inn er fyrst flokkaður í hverfi en síðan setjast bréfberar við og flokka póst í götur en þarna er allur póstur sem fara á í Hafnarfjörð, Álfta- nes og Garðabæ. Þegar blaðamann Fjarðar- póstsins bar að garði var langt liðið á morgunn og þeir dugleg- ustu voru farnir út með sinn póst. Að sögn Freydísar eru verulegar hreyfingar á starfsfólki og ráða launin þar mestu um en vinnan getur líka verið erfið. Örfáir hafa verið hjá fyrirtækinu í fjölda ára en margir eru aðeins 1-2 ár í senn. Þörf á starfsfólki eykst stöðugt þó almennum bréfum fari eitthvað fækkandi þá er ann- ar póstur að aukast auk þess sem íbúum fjölgar. Færri karlmenn eru þarna í vinnu en konur en fólk er á öllum aldri. Aukin fjöldi dreifirita eykur álag á bréfbera sem þurfa að raða og brjóta sam- an áður en haldið er út. Á því verður ráðin bragarbót í haust að sögn Freydísar en þá verður fengin brotvél og pökkunarvél sem mun létta þessa vinnu mjög mikið. Aðspurð segir Freydís andann meðal starfsmanna vera góðan en ljóst er að Pósturinn er ekki í miklu áliti meðal bæjarbúa, það finni starfsfólkið greinilega. Ýmisleg má gera til að tryggja öruggan útburð en merkingum er víða ábótavant og bréfalúgur og póstkassar eru oft illa staðsettir og stærð þeirra þannig að erfitt er að setja bréf í þá. Lagakröfur eru um bréfalúgur og póstkassa og því finnst Freydísi skjóta skökku við þegar ætlast er til að bréf- berar fari upp á hverja hæð í fjölbýlishúsum á Völlum. Það sé ekki í samræmi við reglur. Allar ábendingar og aðfinnslur um póstdreifingu má koma til þjónustuvers Íslandspósts sem skráir og kemur þeim á réttan stað. Fjöldi manns við póstdreifingu hjá Íslandspósti Ný dreifingarmiðstöð á Flatahrauni Freydís Jónsdóttir, dreifingarstjóri Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.