Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 12.04.2006, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. apríl 2006                                  !"#$%&'()'#*+(*,+-*,.*,/ Framboðsfrestur vegna bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði, sem fram eiga að fara laugardaginn 27. maí 2006, rennur út laugardaginn 6. maí n.k. Yfirkjörstjórn mun þann dag hafa aðsetur í fundarsal bæjarráðs að Strandgötu 6, 2. hæð, Hafnarfirði, frá klukkan 10.00 til 12.00 og veita þar framboðslistum viðtöku. Öll framboð skulu tilkynnt skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar en klukkan 12.00 á hádegi þann dag. Kjörstjórnin mun á sama stað halda fund með umboðsmönnum framboðslista sunnudaginn 7. maí klukkan 17.00 til þess að úrskurða um framboð og listabókstafi. Yfirkjörstjórn vekur athygli á ákvæðum 21.-23. gr. laga nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna, sbr. og 5. gr. laga nr. 27/2002, en þar er mælt fyrir um form framboðslista, fjölda meðmælenda og umboðsmenn lista. Hafnarfirði 11. apríl 2006 Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar Hörður Zóphaníasson Jóna Ósk Guðjónsdóttir Þórdís Bjarnadóttir AUGLÝSING UM FRAMBOÐ VIÐ BÆJARSTJÓRNARKOSNINGAR Í HAFNARFIRÐI Sumardagurinn fyrsti Ferðalangur á heimaslóð Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og kynna sér hana á www.hafnarfjordur.is Lokahóf SVH Fjórði flokkur FH í handbolta sigraði Selfoss í úrslitaleik á sunnudag um Íslandsmeistaratitil A-liða karla í 4. flokki. Einar Andri Einarsson, þjálfari þeirra segir árangur þessa 1990 árgangs félagsins vera athyglis- verðan. „Á síðustu 5 árum eða allt frá því að þeir voru á eldra ári í 6. flokki hafa þeir orðið Ís- landsmeistarar. Á þessu sama tímabili hafa þeir tekið alla aðra titla sem hafa verið í boði. Fimm sinnum deildarmeistarar, tvisvar bikarmeistarar auk þess að vinna stórmótið Norden Cup eða alls 13 titlar. Þetta verður að teljast stórkost- legur árangur og verður vart leik- inn eftir í hópíþróttum og óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá félaginu,“ segir þessi kröftugi þjálfari FH-inga. Leikurinn á sunnudag var spennandi og skemmtilegur og lauk með sigri FH 25-22. Íslandsmeistarar 4. fl. FH í handbolta sigraði þrefalt Lj ós m .: Jó ha nn es L on g Á mánudaginn undirritaði bæjarsjóri vilyrði um að Björg- unarsveit Hafnarfjarðar fengi lóðina Hvaleyrarbraut 32, þar sem Bátalón var áður. Sagði Júlí- us Gunnarsson þetta mikinn áfanga fyrir sveitina eftir langa bið og sagði að sveitin muni hella sér út í undirbúning að byggingu að húsnæði fyrir Björgunarsveitina sem nú er til húsa í gömlu slökkvistöðinni við Flatahraun. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri sagði að nú gæti undirbúningur hafist af fullu þegar á næstu vikum og mánuðum og ljúka megi þessu verkefni fyrr en margan gruni. Bæjaryfirvöld hafi nú skrifað undir viljayfirlýsingu að uppbyggingu á svæðinu með kvennadeildinni Hraunprýði og Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Björgunarsveitin fær Bátalónslóðina Hafnarfjarðarbær ætlar að styrkja uppbyggingu Kristín Gunnbjörnsdóttir, formaður Hraunprýðis, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri og Júlíus Gunnarsson formaður Björgunarsveitarinnar. Oddvitar stóru flokkanna voru að sjálfsögðu á staðnum, Haraldur Þór Ólason og Lúðvík Geirsson. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.