Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 28. september 2006
Náðu til Hafnfirðinga og
góðra granna á Álftanesi
í rótgrónu blaði.
www.fjardarposturinn.is
Anna
Jörgensen
verður starfs-
mannasjóri
Gunnar Rafn Sigurbjörns-
son, sem gegnt hefur starfi
starfsmannastjóra Hafnar-
fjarðarbæjar sl. 20 ár hefur
óskað eftir að verða leystur frá
starfi starfsmannastjóra hjá
Hafnarfjarðarbæ frá og með 1.
október nk.
Bæjarstjóri hefur lagt til að
skipa Önnu Jörgensdóttur í
starf starfsmannastjóra og
Ingibjörgu Guðmundsdóttur í
starf mannauðsstjóra.
Gunnar Rafn mun áfram
gegna starfi sviðsstjóra Fjöl-
skyldusviðs.
Óskað eftir
nafni á
leikskóla
Fræðsluráð óskar eftir tillög-
um að nafni á nýjan leikskóla á
Völlum. Tillögur sendist til
fræðslustjóra fyrir 5. október.
234% munur á
tilboðum
Eftir lokað útboð á hönnun á
nýjum sex deilda leikskóla á
Völlum bárust tilboð frá
fjórum aðilum og var munur á
hæsta og lægst tilboði 234%
Eftirfarandi tilboð bárust:
ASK arkitektar ehf.
kr. 13.300.000
Arkís ehf.
kr. 30.876.000
Batteríið ehf.
kr. 22.900.000
Batteríið ehf., frávikstilboð
kr. 19.500.000
Arkþing ehf .
kr. 21.980.000
Kostnaðaráætlun var kr.
23.500.000 og lægsta tilboð
því aðeins 56,6% af kostnaðar-
áætlun.
Framkvæmdaráð heimilaði
Fasteignafélaginu að ganga til
samninga við lægsbjóðanda
ASK arkitekta ehf.
100 þúsund
kr. til móttöku
Tónlistardeild Bókasafns
Hafnarfjarðar hefur fengið 100
þús. kr. styrk frá menningar- og
ferðamálanefnd vegna mót-
töku fyrir félaga Félags ís-
lenskra tónlistarmanna og FÍH
Félags íslenskra hljómlistar-
manna til kynningar á starf-
seminni.
Aftann ehf
Steinhellu 5 • sími 864 4589 • www.aftann.org
Bílaviðgerðir
Þarftu að láta gera við bílinn?
Vantar þig bíl eða bát á leigu
Aftann ehf. er nýtt fyrirtæki sem býður
bíla, bát og hjólhýsi til leigu og hefu nú
fengið til liðs við sig Stjána Meik hinn
fræga bílaviðgerðarmann.
Umræða um greiðslur til for-
eldra ungra barna hefur nýverið
skotið upp kollinum eftir að
bæjarstjórnir Reykja-
nesbæjar og Kópavogs
tilkynntu að sveitar-
félögin hygðust taka
þær upp. Foreldrar
ungra barna fá greidda
ákveðna upphæð á
mánuði sem samsvarar
niðurgreiðslu bæjar-
félaganna til dagfor-
eldris. Þar með hafa
foreldrar val um
hvernig þeir verja upphæðinni;
hvort og þá hvaða dagvistar-
úrræði þeir nota fyrir börn sín.
Í tíð meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar, eða
haustið 1998, voru sams konar
greiðslur teknar upp sem þá voru
kallaðar umönnunarstyrkir.
Ákveðin upphæð var greidd til
foreldra ungra barna sem voru á
biðlista eftir leikskólaplássi og
foreldrarnir ráðstöfuðu fjár-
mununum að hentugleik. Sam-
fylkingin kaus síðan að afnema
þetta fyrirkomulag á síðasta
kjörtímabili. Það hefur verið
réttlætt m.a. með því að dag-
vistarúrræði séu næg í bæjar-
félaginu.
Foreldrar hafi valið
En málið snýst ekki um það að
mínu mati heldur er hér um
valkost að ræða fyrir foreldra.
Sveitarfélagið er að greiða átta
stunda vistun hjá dagforeldri
niður um 30.000 krónur á
mánuði. Er ekki réttlátt að greiða
þessa upphæð beint til þeirra
foreldra sem þess óska og þeir
síðan velji hvað hentar
þeim best í þessum
efnum? Sumir hefðu
tækifæri til að verja
lengri tíma heima hjá
ungum börnum en
fæðingarorlof kveður
á um, aðrir myndu
nota fjármunina til að
greiða skyldmennum
fyrir pössun og enn
aðrir kysu að fá aðstoð
inn á heimili sín. Foreldra-
greiðslur eru réttlætismál og því
lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði til á
bæjarstjórnarfundi 19. septem-
ber sl. að teknar verði aftur upp
mánaðarlegar greiðslur til
foreldra ungra barna í Hafnar-
firði. Greiddar verði 30.000
krónur með hverju barni frá því
að fæðingarorlofi lýkur þar til
barnið hefur fengið leikskólavist
eða sama fjárhæð og bæjarfélag-
ið greiðir með hverju barni til
dagforeldris. Lagt er til að
greiðslurnar verði teknar upp 1.
janúar 2007. Það er von okkar
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins að tillagan verði samþykkt
svo hafnfirskir foreldrar hafi
þennan valkost rétt eins og íbúar
þeirra nágrannasveitarfélaga sem
eru að taka upp greiðslur til
foreldra eins og hér um ræðir.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Foreldragreiðslur
- 30.000 á mánuði
Rósa
Guðbjartsdóttir
Hraunseli, Flatahrauni 3
og hefst kl. 20.30
Félagsmiðstöðin Hraunsel • 555 0142, 555 6142
Munið vef félagsins: www.febh.is
Hið vinsæla Capri-tríó leikur
fyrir dansi.
Hver vill missa af þessum dansleik?
Dansleikur eldri borgara
föstudaginn 29. september
Fatahreinsun
JAKKAFÖT .................................... 1.550,-
HEIMILISÞVOTTUR (30 stk, 15 lítil og 15 stór) ......3.790,-
SKYRTUR ........................................ 380,-
KÁPUR.......................................... 1.365,-
GARDÍNUR (pr. kg.) ................................ 775,-
ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ
GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA
ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965
HRAUNBRÚN 40
SÍMI 555 1368
Yoga hjá Guðjóni
Byrjendanámskeið í húsnæði leikskólans Ása, Bergási 1,
Garðabæ hefjast mánudaginn 1. október kl. 19.15.
Framhaldsnámskeið hefjast á sama stað kl. 18.
Upplýsingar og skráning í síma 691 6412.
Guðmundur Karl Ásbjörnsson,
hefur búið til skiptis í Hafnarfirði
og í Þýskalandi. Hann hefur
haldið sýningar frá 1965 og þáði
listamannalaun síðast 1991.
Guðmundur Karl á myndir hjá
söfnum á Íslandi og í Þýskalandi.
Hann sýnir nú í myndlistarsal
Orkuveitu Reykjavíkur, Galleríi
100° að Bæjarhálsi 1. Á sýning-
unni sem opnuð var 1. september
sýnir hann mest olíumálverk en
myndefni sitt sækir hann mest í
hraunið og náttúruna.
Sýningin er opin virka daga kl.
8.30-16 og á laugardögum kl.
13-17 út október.
Sýnir í Gellerí 100°
Guðmundur Karl Ásbjörnsson, myndlistamaður
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
Starfsmannasvið
Barónsstíg 47, 101 Reykjavík
www.heilsugaeslan.is
Reykjavík 29. september 2006.
Heilsugæslan Sólvangi Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðingar – Kvöldvaktir
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í sameiginlegri
kvöldþjónustu heimahjúkrunar í Hafnarfirði, Garðabæ,
Álftanesi og Kópavogi. Vinnutími er frá 18.30 til 23.30
og unnið er þriðju hverja helgi. Starfshlutfall er eftir
samkomulagi.
Starf hjúkrunarfræðings krefst sjálfstæðra vinnubragða og
þarf umsækjandi að búa yfir góðri reynslu og hæfileikum
til að geta unnið sjálfstætt. Bíll til afnota á vinnutíma.
Heilsugæslan Sólvangi Hafnarfirði er með umsjón með
þjónustunni.
Upplýsingar um stöðurnar veitir: Kristín Pálsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Heilsugæslu Sólvangs í Hafnarfirði í
síma 550 2600.
Umsóknir um störfin, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu
Höfuðborgarsvæðisins, Barónsstíg 47 101 Reykjavík,
fyrir 12. október n.k.