Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Síða 11
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 28. september 2006
Skurðstofa göngudeildar St.
Jósefsspítala fagnaði 20 ára
afmæli á þriðjudaginn en 20.
september 1986 var í fyrsta sinn
skipt um augastein á skurðstofu í
gamla kaþólska barnaskólanum
sem Hafnfirðingar þekkja best
sem Kató. Aðgerðin þá markaði
tímamót því áður var aðeins skipt
um augasteina á sjúklingum sem
lagðir voru inn á augndeildir
Landakotsspítala og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri.
Fimm augnlæknar tóku sig
saman og keyptu nauðsynleg
tæki, þeir Árni Björn Stefánsson,
Björn Már Ólafsson, Jens Þóris-
son, Ólafur Grétar Guðmundsson
og Vésteinn Jónson. Reyndar
höfðu sömu menn byrjað í smá-
um stíl ári fyrr í handlæknastöð-
inni í Glæsibæ en fluttu sig í Kató
þegar ný smásjá kom til landsins.
Tækjakostur hefur síðan verið
bættur og endurnýjaður eftir kröf-
um tímans og er í eigu augnlækna
en ekki spítalans. Björn Már og
Jens hafa enn stofur sínar í Kató
og Vésteinn gerir við augn-
skekkju á skurðstofu spítalans.
Að sögn Jens Þórissonar, augn-
læknis hefur á þessum 20 árum
verið skipt um augasteina í 5630
augum. Augasteinaskipti eru
fyrirferðarmest í starfsemi skurð-
stofunnar en til viðbótar koma
1603 aðgerðir vegna gláku, augn-
skekkju og annarra augnkvilla.
Síðustu þrjú ár hefur verið skipt
um 700 augnsteina vegna sérlegs
átaks heilbrigðisráðuneytis til að
stytta biðlista. Þótt sá fjöldi svari
til eins þriðja allra slíkra aðgerða
á landinu, er biðlisti ennþá 9-12
mánuðir. Starfsfólk skurðdeildar
fagnaði þessum tímamótum og
blaðamaður Fjarðarpóstins var
viðstaddur augasteinaskipti.
Frammi á gangi beið Hafsteinn
Þorvaldsson, gamall Hafnfirðing-
ur, búsettur á Selfossi. Hann hafði
fengið nýjan augastein daginn
áður og sagði muninn mikinn þó
endanlegur árangur sæist ekki
fyrr en að þremur vikum liðnum.
Hann sagði þessa aðgerð ekki
óþægilega, hann hafi aðeins
fundið fyrir auknum þrýstingi í
auganu á meðan á aðgerðinni
stóð.
Á skurðarborðinu lá Þórunn
Jónsdóttir og var skipt um hægri
augastein hennar. Jens augn-
læknir sat við smásjána og horfði
í auga Þórunnar á meðan hann
beitti sérstöku áhaldi sem bæði
braut niður gamla augasteininn
með hljóðbylgjum og sogaði
hann burt. Augnvökva er dreypt í
augað á meðan og þegar auga-
steinninn og það sem um hann
liggur, hefur verið numið á brott
er seigfljótandi vökvi settur í aug-
að og nýja augasteininum, sem er
aðeins nokkrir millimetrar í
þvermál og líkist þykkri lítilli
augnlinsu, komið fyrir. Allt er
þetta gert í gegnum lítið gat á aug-
anu sem grær eftir aðgerðina. Ekki
þarf að sauma neitt og aðgerðin
tekur aðeins um 15 mínútur.
Eftir aðgerðina sagðist Þórunn
aðeins hafa fundið fyrir þrýstingi
og vonaðist hún til að þetta gæfi
henni betri sjón en eiginmaður
hennar hafði áhyggjur af lélegum
augnbotnum. Sjálfur sagðist hann
ekki nota nein gleraugu við akstur
þó kominn væri á níræðisaldur.
Það er greinilegt að svona
aðgerð hjálpar fjölmörgum, lang-
oftast eldri borgurum, að fá betri
sjón eftir að ský hafi lagst á auga-
steininn. Fullkomin smásjá og
tölvustýrð tæki gera aðgerð á
þennan hátt auðvelda og örugga
og ekki sakar að hæfir læknar
stýra tækjunum með aðstoð mjög
hæfra hjúkrunarfræðinga.
5630 nýir augasteinar á 20 árum
Við upphaf aðgerðar, augnsteinnin brotinn niður með hljóðbylgjum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Augað, örin bendir á
augasteininn sem skipt er um
Áslaug Pétursdóttir, Fríða Rut Baldursdóttir, Jens Þórisson, Áslaug
Ásgeirsdóttir og Ragnhildur Jóhannsdóttir, deildarstjóri á skurðdeildinni.
Þórunn var hress eftir aðgerðina.