Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Qupperneq 14
Það er þörf á því núna fyrir
okkur Hafnfirðinga þegar nær
dregur ákvörðun um stækkun
álversins í Straumsvík að standa á
varðbergi gagnvart
tímabundnum tilraun-
um Alcan til þess að
hafa áhrif á skoðanir
bæjarbúa tengdum
álverinu og hugsan-
legri stækkun þess. Al-
can á næga peninga
afgangs fyrir smá-
gjöfum handa Hafn-
firðingum en líklega
eru þeir í dag að greiða
bæjarbúum 600 - 700
milljónum lægra gjald árlega en
eðlilegt gæti talist fyrir athafna-
og áhrifasvæði sitt í Straumsvík.
Rifjum frekar upp hvað Alcan
gerði fyrir bæjarbúa á 30 ára af-
mælinu áður en við þiggjum gjaf-
ir sem byggðar eru á þeirri hug-
mynd að hægt sé að plata al-
menning í Hafnarfirði með smá-
gjöfum rétt áður en stærsta
ákvörðun sem bæjarbúar hafa
nokkru sinni tekið verður tekin.
Ég hvet alla Hafnfirðinga til þess
að þiggja ekki neitt í dag sem
þeim var ekki líka boðið á 30 ára
afmælinu fyrir 10 árum. Skyndi-
leg þáttaka Álverins í allskyns
samfélagsmálum, styrkir til
íþróttastarfsem skólabarna og
núna síðast boð á stórtónleika
Björgvins Halldórssonar eru ein-
faldlega hlægileg tilraun til þess
að reyna að hafa áhrif á skoðanir
bæjarbúa á síðustu
stundu. Hvar var þátt-
takan í samfélagsmál-
um og gjafirnar áður en
Alcan fékk áhuga á að
stækka álverið í
Straumsvík? Hafn-
firðingar eru hugsandi
fólk sem lætur ekki slá
ryki í augun á sér.
Lágt verð fyrir land
Alcan er með besta
samning um notkun á
landi bæjarbúa sem nokkurt
fyrirtæki í bænum hefur. Hið
svokallaða þynningarsvæði, sem
réttara er að kalla mengunar-
svæði, er í dag næstum því jafn
stórt og allt byggt land í
Hafnarfirði (9,8 ferkílómetrar).
Fyrir það að leggja Alcan til
lóðina sem álverið stendur á í dag
og mengunarsvæði sem er 9.800
hektarar fær bæjarsjóður 70
milljónir á ári eða u.þ.b. 7.000
krónur á hvern hektara. Eðlilegt
verð fyrir leigu á landi til dreif-
ingar eða urðunar á úrgangi hvort
sem það væri frá hænsnabúi eða
öðrum rekstri væri líklega í
kringum 50-100 þús. krónur á
hektarann ef ég ætlaði að leigja
mér slíkt landsvæði einhverstaðar
á Suður- eða Vesturlandi. Ef við
gætum hófsemi og förum fram á
50 þús. krónur fyrir hektarann
strax í dag ætti bæjarsjóður að fá
500 milljónir í tekjur af meng-
unarsvæðinu á ári. Það vantar því
í dag u.þ.b. 430 milljónir til þess
að álverið greiði eðlilega fyrir
mengunarsvæði sitt. Fyrir utan
auðvitað fasteignagjöld sem ættu
að vera u.þb. 200 milljónir til
viðbótar á ári, en vegna sérstakra
laga um álverið í Straumsvík fær
bæjarsjóður engin fasteignagjöld
af álversbyggingunum.
Ekkert greitt fyrir vatnstöku
Álverið notar í framleiðslu sína
árlega 10 milljón rúmmetra af
vatni (Grænt bókhald Alcan
2004) sem tekið er í landi
bæjarinns. Venjulegt gjald fyrir
rúmmetra af vatni til atvinnu-
starfsemi eru 12 krónur hjá
Vatnsveitu Hafnarfjarðar. Ef við
gefum þeim 50% afslátt af því að
þeir eru stórnotandi og sækja
vatnið sjálfir þá ættu tekjur Vatns-
veitu Hafnarfjarðar af álverinu að
vera u.þ.b. 60 milljónir króna á
ári. Samkvæmt gögnum sem ég
hef undir höndum greiddi Alcan 5
milljónir króna til Vatnsveitu
Hafnarfjarðar árið 2005 fyrir
neysluvatn en ekki krónu fyrir
aðgang að vatnsforða bæjarbúa til
framleiðslunar. Náttúruleg auð-
ævi eins og ferskt vatn sem notað
er til atvinnustarfsem á ekki að
vera ókeypis.
Engar tekjur af höfninni
Samkvæmt samningi eignaðist
Hafnarfjarðarbær höfnina í
Straumsvík fyrir nokkrum árum.
Frá og með þeim degi átti bærinn
að fá allar tekjur af höfninni í
Straumsvík. Enn sem komið er
hefur Bæjarsjóður ekki séð krónu
og er skýring sú að allar tekjur af
höfninni fari í viðhald á henni.
Undanfarna mánuði eða allt frá
því að í ljós kom í skoðana-
könnun á vormánuðum að meiri-
hluti kvenna í Hafnarfirði væri á
móti því að leyfa Alcan að stækka
álver sitt í Straumsvík hefur
Alcan látið gera vísindalegar
rannsóknir á skoðunarmyndun á
álverinu meðal hafnfirskra
kvenna. Konur í bænum hafa
verið boðaðar af Alcan í svo-
kallaða „rýnihópa“ þar sem sér-
fræðingar hafa rýnt í hugarheim
þeirra og skoðanamyndun og
viðhorf til álversins hefur verið
rannsakað ýtarlega. Það er jú eftir
miklu að sækjast fyrir Alcan að
reyna að snúa viðhorfi kvenna í
bænum til stækkandi álbræðslu
áður en kosið verður um málið.
Er hugsanlegt að hið furðulega
boð Alcan til bæjarbúa um frí-
miða fyrir alla á tónleika
Björgvins Halldórssonar sé ein af
afurðum þessarar rannsóknar-
vinnu?
Ef Alcan vill bæta ímynd sína í
bænum er að mínum dómi réttast
að fyrirtækið taki strax upp
veskið og fari að greiða eðlilegt
og sanngjarnt verð fyrir aðstöðu
sína hér í bænum.
Reiknisdæmið er einfalt:
Fasteignagjöld 200.000.000
Leiga á mengunarsvæði
500.000.000
Notkun á ferskvatni til fram-
leiðslu áls: 60.000.000
Samtals á ári 760.000.000
Alcan greiði eðlilegt verð
Við Hafnfirðingar þurfum ekki
stærra álver, við þurfum hins-
vegar að gera þá kröfu að Alcan
greiði bæjarbúum sanngjarnt og
eðlilegt gjald fyrir aðstöðu sína á
sama hátt og önnur fyrirtæki í
bænum þurfa að gera. Bæjar-
félagið á að mínu mati að gera
kröfu um 760 milljónir á ári frá
og með þessu ári. Það er sjálfsögð
og eðlileg krafa bæjarbúa. Að
bjóða skyndilega á tónleika og að
vera á síðustu stundu vænn við
menn og málleysingja er ein-
faldlega fáránleg hegðun við
þessar aðstæður og jaðrar við
vanvirðingu og hroka gangvart
almenningi í bænum.
Höfundur er
rekstrarhagfræðingur.
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 28. september 2006
Heilsunudd
Býð upp á heilsunudd og verkjameðferð
Upplýsingar og pantanir í síma 699 0858
Erlendur M. Magnússon, heilsunuddari
Bæjarhrauni 2, 2.h
Níundu bekk-
ingum boðið á
sundæfingu
og sund-
laugarpartí
Í kvöld er öllum krökkum í
níunda bekk í Hafnarfirði
boðið á sundæfingu hjá
Sundfélagi Hafnarfjarðar. Þau
sem mæta fá boðsmiða í sund-
laugarpartí sem verður haldið í
Sundhöll Hafnarfjarðar föstu-
dagskvöldið 29. september.
Partíið hefst klukkan 20.
Þetta partí er líka fyrir alla
SH-inga sem eru eldri en 13
ára.
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
Þriggja herb. íbúð óskast fyrir hjón
með eitt barn. Helst í gamla bænum.
Langtímaleiga. Uppl. í s. 663 6736.
Amerískt king-size hjónarún,
180x200 cm til sölu.
Uppl. í s. 695 3444.
Gamalt sófasett (ca 1940-50) með
ágætis áklæði. Ódýrt.
Til sýnis eftir kl. 18.
Uppl. í s. 557 7664.
Óska eftir barngóðri 14-15 ára
stelpu til að passa 2-3 kvöld í viku.
Búum í Kríuási. Uppl. gefur Hafdís í
síma 555 1628.
Tökum að okkur flutningsþrif
og heimilisþrif,
jólahreingerningar og fl.
Vönduð og góð þjónusta.
Uppl. í s. 897 4232.
Nokia 6101 farsími (samlokusími)
tapaðist á meistaraballi FH á
laugardaginn.
Uppl. í s. 565 1637.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Þrif
Barnagæsla
Til sölu
Húsnæði óskast
Manstu eftir 30 ára afmæli álversins í Straumsvík?
Pétur
Óskarsson
Ungir jafnaðarmenn í Hafn-
arfirði hafa sent frá sér ályktun
þar sem þeir harma aðför sjálf-
stæðismanna í sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu að almenn-
ingssamgöngum. Þar segir m.a.:
„Um langt skeið hafa þeir lagst á
eitt um að tala niður þessa
sjálfsögðu þjónustu og hafa nú
skert hana verulega. En þrátt
fyrir það hefur farþegum fjölgað
og voru þeir 20% fleiri í júlí og
ágúst á þessu ári en á sama tíma
í fyrra. Þessi árangur Strætó bs.
er hrósverður og hvetja UJH
eindregið til þess að nú verði
gengið á lagið og þjónustan
aukin og bætt.“
Skora UJH því á bæjarstjórn
Hafnarfjarðar að fjölga ferðum
þannig að þær verði aftur á tíu
mínútna fresti á stofnleið 1 á
annatímum, en auk þess vilja
UJH að tekin verið upp sama
ferðatíðni á leiðum innanbæjar.
Einsýnt sé að slíkt mun auka
notkun á þjónustunni verulega
og ekki sé eftir neinu að bíða.
Harma aðför að
almenningssamgöngum
Vilja auka ferðatíðni á stofnleið 1
Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson hefur
gefið kost á mér í prófkjöri
Samfylkingarinnar í suðvestur-
kjördæmi þann 4. nóvember n.k..
Sækist hann eftir stuðningi í 4.-5.
sæti.
Gunnar fæddist í Hafnarfirði
þann 3. apríl 1975 og er þar
uppalinn og búsettur í dag. Hann
lauk prófi í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Bifröst árið 2003
og hóf sama ár meistaranám við
Viðskiptaháskólann í Árósum.
Frá árinu 2005 hefur hann
starfað sem sérfræðingur í launa-
og kjaramálum hjá Hagstofu
Íslands. Auk menntunar á
viðskiptasviði hefur hann lokið
sveinsprófi í framreiðslu frá
Hótel- og matvælaskóla Íslands.
Katrín Júlíusdóttir
Katrín Júlíusdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér í 2.
sæti framboðslistans fyrir næstu
alþingiskosningar. Hún hefur
setið á Alþingi síðan 2003 en
fram að þeim tíma hafði hún
sinnt fjölmörgum trúnaðarstörf-
um innan jafnaðarmannahreyf-
ingarinnar. Sat m.a. í fram-
kvæmdastjórn Samfylkingar-
innar 2000-2003 þar af sem
varaformaður frá 2001-2003 og
var formaður Ungra jafnaðar-
manna - ungliðahreyfingar Sam-
fylkingarinnar 2000-2001. Auk
þessa sat hún í stjórn Evrópu-
samtakanna um nokkurra ára
skeið, sat í háskóla- og stúdenta-
ráði fyrir Röskvu frá 1997 til
1999 og starfaði sem fram-
kvæmdastjóri stúdentaráðs 1998
– 1999. Áður starfaði hún sem
verkefnastjóri og ráðgjafi hjá
hugbúnaðarhúsinu Innn hf. um
þriggja ára skeið.
Samfylkingin - prófkjör
Framboðsmál