Fjarðarpósturinn - 28.09.2006, Síða 15
Úrslit:
Fótbolti
Úrvalsdeild karla:
Grindavík - FH: 1-1
Handbolti
Úrvalsdeild kvenna:
Grótta - FH: 26-20
Haukar - Akureyri: (miðv.dag)
Úrvalsdeild karla:
ÍR - Haukar: (miðv.dag)
Næstu leikir:
Handbolti
29. sept. kl. 19, Varmá
Afturelding - FH
(1. deild karla)
30. sept. kl. 16, Kaplakriki
FH - Haukar
(úrvalsdeild kvenna)
1. okt. kl. 20.15, Ásvellir
Haukar 2 - Selfoss
(1. deild karla)
3. okt kl. 20, Ásvellir
Haukar - Fram
(úrvalsdeild kvenna)
3. okt. kl. 19, KA heimilið
Akureyri - FH
(úrvalsdeild kvenna)
4. okt. kl. 20, Framhús
Fram - Haukar
(úrvalsdeild kvenna)
Hörkuleikur
FH- Haukar
Handboltavertíðin er hafin
og Haukastúlkum er spáð góðu
gengi og FH-ingum er spáð að
endi í miðri deild.
Það er alltaf hart barist þegar
þessi lið mætast. FH-ingar
hafa fengið 4 norskar stúlkur
til liðs við sig svo nú er að
mæta á völlinn.
www.fjardarposturinn.is 15Fimmtudagur 28. september 2006
Íþróttir
Eldsneytisverð
27. september 2006 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 117,4 117,7
Atlantsolía, Suðurhö. 117,4 117,7
Esso, Rvk.vegi. 118,9 119,2
Esso, Lækjargötu 118,9 119,2
Orkan, Óseyrarbraut 117,3 117,6
ÓB, Fjarðarkaup 117,4 117,7
ÓB, Melabraut 117,4 117,7
Skeljungur, Rvk.vegi 118,9 119,2
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðu olíufélaganna.
Fréttasími:
565 4513
Auglýsingar:
565 3066
Síðastliðna tvo áratugi hefur
verið gríðarlega mikil uppbygg-
ing í Hafnarfirði í málefnum sem
snerta félagsstarf ungl-
inga. Ég tel mig geta
lagt á þetta raunhæft
mat, því ég sat í æsku-
lýðsráði á árunum
1982-1985 og þekki
jafnframt hver staðan
er í málaflokknum í
dag. Þar er sannarlega
ólíku saman að jafna.
Fyrir 1986 var hér
vísir að æskulýðs-
heimili í gamalli verbúð uppi á
hrauni. Nú eru félagsmiðstöðvar
í hverjum skóla, Gamla bóka-
safnið, Músik og mótor og marg-
vísleg starfsemi önnur sem
miðar að því að tryggja aðgang
að uppbyggilegu starfi ung-
menna á þeim tíma sem skóli
starfar ekki.
Á þessum árum voru starfs-
menn sem sinntu þessum málum
afar fáir, lengst af einn í föstu
starfi og síðan skólafólk í
hlutastörfum. Í dag er allfjöl-
mennur, traustur hópur vel
menntaðs starfsfólks sem sinnir
æskulýðsmálum í Hafnarfirði, í
mörgum tilvikum fólk sem hefur
aflað sér sérmenntunar á þessu
sviði.
Viðhorfsbreytingin 1986
Það er ljóst að það urðu algjör
umskipti í þessum málaflokki
árið 1986, þegar meirihluti jafn-
aðarmanna tók við stjórn bæjar-
ins. Þá þegar var ráðinn til starfa
æskulýðsfulltrúi, sérmenntaður
„á sviði frítímans“. Frá þeim
tíma hefur verið lyft Grettistaki,
eins og áður er lýst. Nú hafa
hafnfirsk ungmenni aðgang að
öflugum félagsmið-
stöðvum, hver í sínu
heimahverfi, sem stýrt
er af hæfu og vel
menntuðu starfsfólki.
Þessi uppbygging
hefur farið fram undir
stjórn æskulýðsfull-
trúans sem ráðinn var
1986, Árna Guð-
mundssonar, sem ný-
lega ákvað að hverfa
til annarra starfa, eftir næstum
tveggja áratuga farsælt starf.
Uppbyggingin, fyrirkomulagið
og sú skýra sýn á mikilvægi
starfs með ungmennum utan
hefðbundins skólatíma hefur
víða vakið athygli og horft hefur
verið til uppbyggingar og fyrir-
komulags æskulýðsmála í
Hafnarfirði annars staðar að af
landinu.
Það er ljóst að fráfarandi æsku-
lýðsfulltrúi skilar mjög góðu búi.
Í áhöfninni er valinn maður í
hverju rúmi og ljóst að það er
bjart framundan í æskulýðs-
málum í Hafnarfirði, enda verður
áfram unnið í anda þeirrar stefnu
mörkuð var undir forystu fyrr-
verandi æskulýðsfulltrúa. Um
leið og honum er sendar góðar
kveðjur með ósk um jafn mikla
velgengni í starfi á nýjum vett-
vangi, eru honum þökkuð mikil
og farsæl störf í þágu hafn-
firskrar æsku.
Höfundur er bæjarfulltrúi og
formaður fjölskylduráðs.
Umskipti í æskulýðs-
málum sl. tvo áratugi
Guðmundur Rúnar
Árnason
Gróa Guðmundsdóttir:
„Margar greinar.“
Hannes Guðmundsson:
„Nám í mörgum greinum er
þetta ekki iðngreinanám?“
Sigrún Sigurþórsdóttir:
„Að krakkarnir velja sjálfir
hver sitt fag.“
Soffía Sturludóttir:
„Eftir 10. bekk fyrir nemendur
sem vilja koma sér aftur á strik.“
Spurning dagsins
Veistu hvað fjölgreinanámið er?
Rétt svar: Fjölgreinanám er námsframboð fyrir nemendur í 9. og 10. bekk sem vilja auka vægi verklegra greina. Námið er fyrir nemendur
í Hafnarfirði og deildin tilheyrir Lækjarskóla og er staðsett í Menntasetrinu við Lækinn. — Unnið af nemendum í fjölgreinanáminu.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði var stofnað 16. apríl
1923. Ákveðið var á stofn-
fundinum að þetta yrði fyrst og
fremst fjáröflunarfélag til þesss
að styrkja kirkjuna og
fjármagna kaup á
ýmsum hlutum sem
kirkjuna vantaði. For-
maður var þá frú
Guðrún Einarsdóttir,
ritari frú Þorbjörg
Bergmann og gjaldkeri
frú Elísabet Erlingsen.
Ef litið er á sögu
Fríkirkjunnar í Hafnar-
firði má ljóst vera að
hlutur Kvenfélagsins hefur verið
gríðarlega mikilvægur. Allt frá
upphafi hefur kvenfélagið fært
kirkjunni sinni stórar gjafir og
stutt við starfið á allan hátt. Má
geta þess að kvenfélagið átti
frumkvæðið að því á 7. áratugn-
um að hefja barnastarf við kirkj-
una á sunnudagsmorgnum.
Hefur kvenfélagið alltaf lagt
mikið metnað í það að styðja allt
starf fyrir börn og unglinga. Auk
þess að standa fyrir skemmtilegu
starfi fyrir sínar félagskonur.
Starf kvenfélaga á landsvísu
hefur ætíð verið öflugt og gott og
komið mörgu þörfu og góðu
verki til skila. Hins vegar hefur
borið á fækkun félagsmanna
slíkra félaga og því vert að spyrja
hverju sætir. Eitt er víst, félags-
skapurinn er þarfur.
Því má spyrja sig: Eru
konur áhugalausar um
framtíð kirkna sinna og
safnaða? Svo tel ég
ekki vera og yfir höfuð
hlýhugur ríkjandi í
garð kirkjunnar þó svo
meira beri á neikvæðri
umfjöllun ef upp kem-
ur.
Vil ég hvetja allar
konur til þess að hugleiða með
sjálfum sér hvort félagsskapur á
borð við kvenfélög sé eitthvað
fyrir þær. Víst er að við konur
getum lagt okkar af mörkum til
þess að styrkja starf kirkna okkar
um leið og við eignumst vett-
vang til þess að koma skoðunum
okkar á framfæri eða einfaldlega
gera okkur glaðan dag í góðra
vinkvenna hópi.
Messa næsta sunnudags verður
helguð málefnum kvenfélagsins
og hefst kl. 13.
Höfundur er prestur í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Kvenfélagið
sterkur bakhjarl
Sr. Sigríður Kristín
Helgadóttir
Í síðustu viku voru veittar
viðurkenningar fyrir þátttöku í
sundátakinu „Sund er fyrir alla“
sem Sundfélag Hafnarfjarðar
stóð fyrir í sumar í sundlaugum
bæjarins í samstarfi við bæjar-
yfirvöld og Actavis.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
afhenti viðurkenningarnar við
athöfn í Suðurbæjarlaug og þau
sem hlutu viðurkenningu voru:
Anna Karen Gunnarsdóttir,
Elín Ósk Traustadóttir,
Björn Sigurðsson og
Stefanía Knútsdóttir.
Sund fyrir alla
Fengu
viðurkenninguKörfubolti um helgina
Um helgina fer fram gríðarsterkt æfingamót í Körfuknattleik
kvenna. Mótið verður haldið á föstudeginum í Íþróttahúsinu við
Strandgötu klukkan 18.30 og 20 en á laugardeginum á Ásvöllum
klukkan 12.30 og fram eftir degi. Í þessu móti mæta
Íslandsmeistarar Hauka, Keflavík og UMFG með sín sterkustu lið á
mótið og danska stórliðið SISU mætir til leiks með sitt sterkasta lið.
Styrkleiki SISU liðsins er álíkur og bestu liða hér á landi.
Þetta er liður að því að efla kvennakörfuna hér á landi.