Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. desember 2006
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 verður sýnd
franska kvikmyndin La femme D’á
Côté eða Nágrannakonan eftir
Francois Truffaut (1981). Myndin
segir frá Bernard sem lifir hamingju-
sömu lífi með eiginkonu sinni og syni.
Dag nokkurn flytur par inn í næsta hús
og þarna verða óvæntir endurfundir
Bernards og konunnar sem höfðu
verið í eldheitu ástarsambandi mörg-
um árum áður. Leikarar: Gérard De-
pardieu, Fanny Ardant og Henry
Garcin. Myndin er með íslenskum
texta.
Jólaþorpið um helgina
Opið er í jólaþorpinu á Thorsplani um
halgina kl. 12-18. Á laugardaginn kl.
14 syngur Gaflarakórinn, kór Félags
eldri borganna, ásamt börnum úr
leikskólanum Álfabergi undir stjórn
Kristjönu Þ. Ásgeirsdóttur. Ronja
ræningjadóttir. Gætið ykkur á Grýlu.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir atriði úr
Ráðskonu Bakkabræðra og Capri
tríóið leikur.
Á sunnudaginn kl. 14 verður Jólin
(eru alveg að koma) í Hafnarfirði.
Jólaball verður með Gunna og Felix.
Varúð! Grýla að elta jólasvein. Sproti.
Fríkirkjukórinn.
Vinakvöld á aðventu
Tónleikar Kórs Flensborgarskólans
ásamt Páli Óskari og Moniku í
Hamarssal Flensborgarskóla verða
16. desember kl. 16.
Jólatónleikar
Fríkirkjukórsins
Hátíð fer að höndum ein... er yfirskrift
jólatónleika Fríkirkjukórsins í Hafnar-
firði sem haldnir verða á sunnudaginn
kl. 17 í Fríkirkjunni. Þarna verður
hátíðleg jólastemmning með léttum
og skemmtilegum jólalögum í bland
við hátíðlega jólasálma. Hljómsveit
mun spila með kórnum og einnig
verður einsöngur. Þarna gefst tækifæri
til að komast í jólaskap en kórinn
hefur vakið athygli fyrir léttan og
skemmtilegan en jafnframt vandaðan
tónlistarflutning. Stjórnandi er Örn
Arnarson. Miða má kaupa hjá
kórfélögum og við innganginn.
Opin vinnustofa
Myndlistarkonurnar Ólöf Björg, Svava
K. Egilson og Alice Olivia Clarke verða
með opna vinnustofu um helgina frá
klukkan 14-18 bæði laugardag og
sunnudag.
Vinnustofan er staðsett í Dverg sem er
á Brekkugötu 2 við Lækjargötu í hjarta
Hafnarfjarðar.
Listaspýrurnar hafa verið iðnar við
sýningahald og m.a. stundað nám við
Listaháskóla Íslands, Myndlistarskól-
ann á Akureyri, Listaháskólann í
Granada á Spáni og hjá meistara An
Ho-Bum í Seoul í Suður-Kóreu svo
eitthvað sé nefnt.
Sjá má verk þeirra á heimasíðunum
www.olofbjorg.is, www.gallerygryla.-
nett.is og www.aok.is .
Allir hjartanlega velkomnir í nota-
legheit, fallega myndlist og veitingar
sem gefa yl í takt við stemningu jól-
anna.
Er eðlilegt að hvetja til hjásetu í bæjarstjórn?
Ekki finnst mér það og í raun óeðlilegt að
bæjarfulltrúi gagnrýni aðra fyrir að gefa upp
afstöðu sína í máli. Allt of oft kjósa stjórnmála-
menn að sitja hjá í atkvæðagreiðslu ef þeim
hugnast ekki tillaga eða jafnvel flytjendur
tillögunnar. Heyrst hafa harðar ræður í bæjar-
stjórn þar sem bæjarfulltrúar hafa harðlega mót-
mælt ákveðnum tillögum og sitja svo hjá við at-
kvæðagreiðslu. Við höfum ekkert að gera við
fólk í bæjarstjórn sem ekki þorir að taka afstöðu. Í vissum tilvikum
getur verið réttlætanlegt að sitja hjá ef viðkomandi hefur ekki náð
að kynna sér málefnið sem kjósa á um nægilega. Slík staða á hins
vegar ekki að koma upp og ósættanlegt að fólk mæti illa undirbúið
á bæjarstjórnarfund. Við bæjarbúar kusum fólk í bæjarstjórn til að
taka ákvarðanir, ekki til að komast hjá því að taka þær.
— Hátíð jólanna er á næsta leyti og hraðinn eykst. Auðvitað ætti
því að vera öðruvísi farið og við ættum að gefa okkur betri tíma til
að undirbúa jólahátíðina í friði og spekt. Kannski erum við að
keppast að því að komast í þetta skap og gleymum okkur í undir-
búningnum. Sjálfur hef ég sjaldan haft meira að gera í desember en
síðustu 5 ár mín með Fjarðarpóstinum. Oft áður hafði ég það frekar
rólegt í desember og þeirra tíma sakna ég. Hins vegar er mér að
lærast með tímanum að halda sönsum í asa jólablaðanna og veit að
allt blessast þetta einhvern veginn og jólin verða á sínum stað hvort
sem ég hafi gert allt sem ég hef ætlað mér fyrir jólin. Það sem ekki
næst fyrir jólin má gera eftir jól, svo einfalt er það.
Kirkjur bæjarins eru opnar bæjarbúum á aðventunni og þangað er
gott að fara og eiga frið með sjálfum sér og skapara sínum.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
3. sd. í aðventu 17. desember
Fjölskylduhátíð kl. 11:00
Sýndur verður helgileikur í flutningi
Barnakórs og Unglingakórs Víðistaðakirkju
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur,
einsöngvara og hljóðfæraleikara,
fermingarbarna, starfsfólks kirkjunnar,
systrafélagskvenna og sóknarnefndarfólks.
Organisti: Úlrik Ólason.
Veitingar verða í safnaðarheimilinu á eftir
í boði Systrafélags Víðistaðakirkju.
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
11. Reykdalsfélagið, beiðni.
Lagt fram erindi stjórnar
Reykdalsfélagsins þar sem farið er
þess á leit við Hafnarfjarðarbæ að
fá Reykdalsvirkjun til vörslu og
varðveislu.
18. Sparisjóður Hafnarfjarðar
Bæjarlögmanni falið að athuga
nánar rétt bæjarfélagsins varð-
andi þær breytingar sem tilkynnt-
ar hafa verið um Sparisjóð Hafn-
arfjarðar.
7. Stapahraun 7-9,
Atvinnuhúsnæði breyting
Merlin ehf /S7 ehf sækir
24.11.06 um að breyta húsnæðinu
í gistiheimili samkvæmt teikn-
ingum Ársæls Vignissonar dags.
10.11.06. Tillagan var til umfjöll-
unar á afgreiðslufundi skipulags-
og byggingarfulltrúa 29.11.06 og
vísað til Skipulags- og byggingar-
ráðs. Frestað á síðasta fundi.
Þar sem svæðið er skilgreint
sem iðnaðarsvæði á aðalskipulagi
Hafnarfjarðar, og skv. skipulags-
reglugerð er einkum gert ráð fyrir
umfangsmikilli iðnaðarstarfsemi
eða starfsemi sem talið geta haft
mengun í för með sér á slíkum
svæðum, telur skipulags- og bygg-
ingarráð gistiheimili ekki eiga heima
á svæðinu og synjar erindinu.
8. Stapahraun 7-9,
Atvinnuhúsnæði
Merlin ehf sækir 25.10.2006 um
leyfi til að byggja nýtt atvinnu-
húsnæði á lóðinni Stapahraun 7-9,
samkvæmt teikningum Ársæls
Vignissonar dagss.12.9.2006.
Samþ. meðeiganda í lóð liggur fyr-
ir. Nýjar teikningar bárust
03.11.2006 ásamt bréfi frá um-
sækjanda. Erindið var til umfjöll-
unar á afgreiðslufundi skipulags-
og byggingarfulltrúa 15.11.06 og
vísað til Skipulags- og byggingar-
ráðs. Frestað á fundi 25.11.06.
Skipulags- og byggingarráð
samþykkir erindið fyrir sitt leyti og
vísar erindinu til endanlegrar
afgreiðslu hjá skipulags- og
byggingarfulltrúa. Vegna fram-
kominna athugasemda þá er vakin
athygli heilbrigðiseftirlitsins á að
taka málið til meðferðar.
Jólaljósin í
Hafnarfjarðarkirkjugarði
Ljósin verða afgreidd frá og með
laugardeginum 16. desember
til og með laugardagsins 23. desember
Opið frá kl 13 - 19 alla daga
Lokað aðfangadag
Ingibjörg Jónsdóttir
Sími 692 2789
Hó hó hó núna er
Stekkjastaur búinn að setja í
skóinn og er alveg óður í að
koma í heimsókn og heilsa
uppá heimilisfólk í Hafnarfirði
og nágrenni. Sendið honum
endilega póst á
jakbj@simnet.is eða öllu
heldur umboðsmanni hans því
að hann kann ekkert á tölvu
sjálfur...
Kæst Þorláksmessuskata
mild – sterk – söltuð