Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Qupperneq 14
14 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. desember 2006
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir HarðarsonSverrir Einarsson
Eldsneytisverð
13. desember 2006 í Hafnarfirði:
Sölustaður 95 okt. dísil
Atlantsolía, Kaplakr. 111,2 112,0
Atlantsolía, Suðurhö. 111,2 112,0
Esso, Rvk.vegi. 112,7 113,5
Esso, Lækjargötu 112,7 113,5
Orkan, Óseyrarbraut 111,1 111,9
ÓB, Fjarðarkaup 111,2 112,0
ÓB, Melabraut 111,2 112,0
Skeljungur, Rvk.vegi 112,7 113,5
Öll verð miðast við sjálfsafgreiðslu og
eru fundin á vefsíðu olíufélaganna.
4 lítið notuð nagladekk, 155/70x13
til sölu. Uppl. í s. 690 3273.
Óska eftir 3ja herbergja íbúð í
Hafnarfirði. Verðhugmynd á bilinu
80 – 100.000 krónur á mánuði.
Uppl. Í síma 896 3163.
Þriggja herbergja íbúð til leigu í
Hafnarfirði (Norðurbæ) í fjóra
mánuði, frá 2. janúar til 30. apríl
2007. Upplýsingar í síma 892 5655
Hjólinu mínu var stolið. Það var
blátt Puma, Pro style, með
dempurum að aftan og framan.
Það voru engin bretti á því, ekki
heldur bögglaberi. Gírar eru í
haldfanginu. Ég sakna þess sárt því
að það var nýkomið úr viðgerð sem
var ekki ódýr.
Ég heiti Telma Rut s. 690 0992.
Þú getur sent
smáauglýsingar á:
a u g l y s i n g a r @ f j a r d a r p o s t u r i n n . i s
e ð a h r i n g t í s í m a 565 3066
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a , e k k i
r e k s t r a r a ð i l a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r .
Ta p a ð - f u n d i ð o g f æ s t g e f i n s : F R Í T T
Tapað - fundið
Húsnæði í boði
Húsnæði óskast
Til sölu
www.vaxtarvorur.com
Spjallvefur um líkamsrækt
Gjafakort í nudd
í jólapakkann
Heilsustofa Lilju og Ella
Bæjarhrauni 2, 2. h. sími 699 0858
HEILSA
Fjárfestu í líkamanum og komdu
þér í gott form með Herbalife.
Heilsuráðgjöf, eftirfylgni.
Ingibjörg, hjúkrunarfr. 691 0938
Ef við lítum til málefna liðinnar
viku kemur í ljós ýmislegt
forvitnilegt hefur átt sér stað í
okkar samfélagi.
Alþingi íslendinga
fór í jólafrí, er það ekki
vel í látið að fara í
jólafrí 9. desember og
koma aftur til þing-
starfa 15. janúar 2007.
Er þetta til að auka
virðingu almennings
fyrir alþingi og al-
þingismönnum ég held
ekki. Ég man ekki betur en t.d.
danska þingið hafi verið starfandi
alveg fram á Þorláksmessu á
síðasta ári. Er svona lítið að gera
fyrir blessaðan þingheim, eða
hvað er málið ? Það virðist vera
að allir þingflokkar alþingis séu
þess sinnaðir að nauðsynlegt sé
að hafa svona langt jólafrí. Þeir
eru sjálfsagt yfir sig þreyttir.
Ég held að mál sé komið til að
endurskoða störf og starfstíma
alþingis. Hann er alls ekki í takt
við okkar þjóðfélag í dag, hvorki
gagnvart þingsetningu á haustin
eða þinglokum á vorin. Nú virðist
Alþingi t.d. starfa til cirka 15.
apríl ef ég man rétt. Eða um það
bil 5 mánuði á þessu þingtímabili,
eða réttara sagt á einu ári og fá
vitanlega laun fyrir 12 mánuði.
Þessi tilhögun er alls í takt við
hinn venjulega þjóðfélagsþegn.
Það hefur komið fram síðustu
daga að 4600 börn búa innan við
fátækramörk á Íslandi. Land sem
hefur verið þekkt fyrir og gefið
sig út fyrir að vera land allsnægt-
anna.
Er þessi tala ekki ógnvekjandi
og skýrt dæmi um misskiptingu í
þessu þjóðfélagi. Einnig sýnir
þessi tala hverskonar ríkisstjórn
hefur ráðið hér ferðinni
undanfarin ár. Sýnir þessi tala
okkur einnig hversu bráð-
nauðsynlegt er að gefa upp á nýtt,
skipta um fólk í brúnni 12. maí
2007. 4600 einstaklingar er um
það bil sá fjöldi er fæðist árlega
hér á landi, hugsið ykkur.
Slys á þjóðvegum landsins hafa
verið geigvænleg á undanförnum
vikum og mánuðum. Er ekki
komin þörf á endurskoðun á
dreifingu fjármagns á fjárlögum?
Ég álít það löngu tímabært að
skipting fjármagns á fjárlögum
þessa lands sé breytt og hugsað um
heildarhagsmuni en
ekki verið endalaust í
sértækum aðgerðum
hingað og þangað um
land vort. Ég vil t.d.
benda á að með þeirri
kjördæmaskipun sem
nú er má varla búast við
skynsamlegri úthlutun
fjár okkar úr fjárlögum.
Það verður að breyta
landinu öllu í eitt kjördæmi þá
fyrst má búast við að hið
svokallaða kjördæmapot minnki.
Þá er hugsanlegt að heildræn og
viturleg framkvæmd verði á út-
hlutun fjár til vegaframkvæmda
t.d. Það hefði verið skynsamlegt
að nota meira af söluandvirði
Landssímans til vegafram-
kvæmda. Sú ákvörðun hefði verið
í réttu framhaldi af því að Lands-
síminn var á sínum tíma ein mesta
nútímavæðing til samgöngu og
samskiptamála okkar íslendinga í
upphafi tuttugustu aldar.
Íslendingar krefjast þess í dag
að vegakerfi landsins sé stórbætt,
þá fyrst á suðvesturhorninu austur
yfir Hellisheiði og Vesturlands-
vegur. Annað er alls ekki boðlegt
í dag, það er komin 21. öldin, ef
stjórnarherrarnir vita það ekki.
Öldungaráð Hafnarfjarðar hóf
starfsemi sína á haustmánuðum
og er að byrja að fóta sig. Þar sem
undirritaður er stjórnarmaður í
Öldungaráði Hafnarfjarðar vil ég
lýsa yfir mikilli ánægju minni yfir
því afli sem ég tel að þar muni
koma til eflingar eldri borgurum
þessa sveitarfélags.
Ég er sannfærður um að þeir
aðilar sem þar koma að
stjórnarstörfum munu vinna af
alefli að hagsmunamálum eldri
borgara, bæði á sveitarstjórnar-
vísu og landsvísu. Við munum
starfa sem samviska eldri borgara
þessa bæjar og ekkert mannlegt
láta okkur óviðkomandi er til
hagmuna eldri borgara kemur.
Vonandi mun sjá þess merki á
næstu mánuðum og árum.
Höfundur er varaþingmaður
Samfylkingar í
Suðvesturkjördæmi.
Hugsað upphátt
Jón Kr. Óskarsson
www.gaflarinn.net
Kæst Þorláksmessuskata
mild – sterk – söltuð
Helgin var róleg í umdæmi
lögreglunnar á Álftanesi, í
Garðabæ og Hafnarfirði. Nokk-
uð bar á ölvun á laugardags-
kvöldið, en allt fór það fram án
stóráfalla.
Á föstudagsmorguninn var
tilkynnt um innbrot í fyrirtæki
við Bæjarhraun í Hafnarfirði og
á sunnudagsmorgun um innbrot í
Golfskálann á Hvaleyri. Þaðan
var stolið stórum skjá. Aðfara-
nótt mánudags handtók lögregl-
an þrjá menn sem voru við
innbrot í Hafnarfirði. Þeir gista
nú fangageymslur og bíða yfir-
heyrslu.
Á sunnudagsmorgun var til-
kynnt um þjófnað á bifreiðinni
BU-206 frá Miðhrauni í Garða-
bæ. Bifreiðin er Lancer, grá.
Á laugardagskvöldið naut lög-
reglan enn á ný aðstoðar björg-
unarsveita, þegar mikið hvass-
viðri og mikil úrkoma gengu
yfir. Ekki er vitað um að tjón hafi
hlotist af veðrinu.
Þrjú mál tengd fíkniefnum
komu til kasta lögreglunnar um
helgina, öll eftir hefðbundið um-
ferðareftirlit. Hald var lagt á
kannabisefni og einnig 10-15
skammta af LSD.
Níu umferðaróhöpp voru til-
kynnt til lögreglu þessa helgi.
Öll voru þau slysalaus.
Þá hafði lögreglan afskipti af 9
ökumönnum vegna umferðar-
lagabrota, þar af 3 vegna hrað-
aksturs.
Úr dagbók lögreglunnar
Innbrot í Golfskálann
Undanfarnar vikur hefur verið
mikið um að vera við leik-
skólann Hjalla við Hjallabraut.
Unnið hefur verið að stækkun
skólans frá því í vor og nú hefur
viðbyggingin verið tekin í
notkun. Þar eru tveir kjarnar/-
deildir, rúmgóður salur, setustofa
starfsfólks, skrifstofa skólans og
stórkostlegt eldhús og þvottahús
sem er vel búið nýjustu tækjum.
Að undanförnu hefur verið
unnið að endurbótum á eldri
hluta hússins, sem var byggt árið
1989. Þar hefur verið málað og
pússað, smíðað og lagfært, auk
þess sem keypt voru ný húsgögn
og búnaður. Syðsti hluti leik-
skólans er nú tilbúinn og er nán-
ast eins og nýtt hús! Drengja-
kjarnarnir tveir fluttu yfir í
suðurhlutann nú í vikunni og eru
þeir alsælir að vera komnir á
nýja kjarna þar sem allt er svo
fínt og flott. Enn er haldið áfram
að lagfæra eldri hluta Hjalla, ver-
ið er að vinna í miðrýminu og
þegar því er lokið verður farið í
framkvæmdir við þann hluta
hússins sem tengir saman gamla
og nýja hlutann. Fasteignafélag
Hafnarfjarðar hefur staðið að
framkvæmdunum og fyrirtækið
Feðgar ehf. sér um verkfram-
kvæmdir. Þegar framkvæmdum
verður lokið verða um 160 börn í
leikskólanum og eru því lausar
stöður í boði fyrir fólk sem hefur
áhuga á að starfa í leikskóla sem
er móðurskóli Hjallastefnunnar,
heildtækri jafnréttisstefnu á leik-
og grunnskólastigi.
Leikskólinn Hjalli
stækkar!
Þeir voru spenntir litlu krakk-
arnir sem fluttu spjöldin og
dótið sitt í nýja leikskólann en
sum hafa verið til bráðabirgða í
skátaheimilinu Hraunbyrgi.
Lj
ós
m
.:
S
m
ár
i G
uð
na
so
n