Fjarðarpósturinn - 14.12.2006, Qupperneq 16
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar-
bæjar var lögð fram á bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudaginn. Í
henni kemur fram að áætlað er
að skatttekjur aukist um 111,5%
miðað við áætlun 2006 og mun-
ar þar mestu um hækkun á fast-
eignasköttum um 22%. Til fróð-
leiks má geta að íbúum bæjarins
fjölgaði um 5,5% á milli ára en
nemendum grunnskólanna fjölg-
ar aðeins um 0,8%.
Áætlað er að veltufé frá rekstri
A-hluta er 5,2% skv. útkomuspá
fyrir 2006 en var áætlað 5,7% en
áætlað er að það verði 5,5% fyrir
2007. Afskriftir eru skv. útkomu-
spá 4,8% en var áætlað 5,1% og
gerir áætlun 2007 ráð fyrir 4,7%
afskriftum.
Áætlað er að tekjur aðalsjóðs,
þ.e. reksturs málaflokka, hækki
um 899 millj. kr. eða um 11,5%.
Rekstur málaflokka verður 12%
dýrari en árið 2006 skv. áætlun
og munar mestu um hækkun til
æskulýðs- og íþróttamála um
30,2% og hækkar um 216 millj.
kr. og 11,1% hækkun til fræðslu-
mála um 534 millj. kr. Þó nokkr-
ar tilfærslur eru á milli mála-
flokka, sérstaklega á umhverfis-
sviði m.a. vegna tilkomu eigna-
sjóðs eða fasteignafélagsins. Þá
er gert ráð fyrir að nettó
fjármagnstekjur aukist um 118
millj. kr. eða um 38.3% sem
færir rekstrarniðurstöðu aðal-
sjóðs í 79 millj. kr. í afgang á ó
móti 28 millj. kr. afgangi skv.
áætlun 2006.
Helstu framkvæmdir í ný-
byggingu fasteigna á árinu 2007
verða 2. áfangi Hraunvallaskóla
í Vallahverfi, ný sundmiðstöð á
Völlum, framkvæmdir við
íþróttamiðstöðina í Kaplakrika
og nýr leikskóli á Völlum. Þá
standa yfir og verður framhaldið
umfangsmiklum gatnagerðar-
framkvæmdum í Áslandi og
Völlum og í Hellnahrauni fyrir
vel á annan milljarð kr. Unnið
verður að umhverfisverkefnum
á miðbæjarsvæði við Lækinn frá
Hverfisgötu að Strandgötu og
umhverfis Byggðasafnið við
Vesturgötu. Þá verður farið í
endurbætur á Hellisgerði og
áframhaldandi uppbyggingu úti-
vistarsvæðis við Hvaleyrarvatn.
Umræður verða um fjárhags-
áætlunina á næsta fundi bæjar-
stjórnar að viku liðinni.
16 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 14. desember 2006
Áfram Haukar!
Við kunnum
að meta
eignina þína!
Nýir eigendur
bjóða ykkur velkomin á
g2 / cut hárstúdíó
lækjargötu 34b 565 5400
... málið er
bara eitthvað
gott fyrir
hárið ...
bed-head tigi catwalk d:fi crew-shave
Skv. upplýsingum Hrannars
Pétursson, upplýsingafulltrúa
Alcan á Íslandi er stefnt að því
að ljúka samningaviðræðum við
Landsvirkjun um raforkuverð
vegna fyrirhugaðrar stækkunar
álversins í Straumsvík.
Nýr yfirmaður álframleiðslu-
sviðs Alcan frá 1. des. var hér á
landi í vikunni og kynnti sér
starfsemina í Straumsvík og átti
m.a. fund með bæjarstjóra.
Hrannar staðfesti við Fjarðar-
póstinn að það væri vilji Alcan
að stækka ef aðstæður væru
hagstæðar og raforkuverðið væri
einn síðasti liðurinn í jöfnunni
þannig að þegar það lægi fyrir
væri hægt að reikna dæmið til
enda. Hvenær endanleg
ákvörðun liggi fyrir gat Hrannar
ekki sagt til um en reiknaði með
því að það gæti verið fljótlega.
Miðað við að raforkuverð liggi
fyrir í lok ársins og að vilji sé um
að kjósa um málið fyrir alþingis-
kosningarnar er ekki óvarlegt að
áætla að ákvörðun Alcan geti
legið fyrir fyrir janúarlok.
Ákvörðun tekin í janúar?
Samningar Alcan við Landsvirkjun á lokastigi
Tignarleg norðurljós yfir Hafnarfirði sem enginn hefur virkjað - enn.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Róðurinn þyngist
Bæjarstjóri nefnir vísbendingu um bjarta framtíð