Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Blaðsíða 2
Jólaganga
Hafnarfjarðar
Rótarýfélagar bjóða
bæjarbúum í göngu á
Þorláksmessu
Jólagangan er skemmtileg
ganga um miðbæ Hafnarfjarðar
þar sem megin markmiðið er að
færa líf í Fjörðinn á Þorláks-
messukvöld.
Engin ástæða sé að flykkjast til
Reykjavíkur í ösina þar sem
Fjörðurinn okkar hefur upp á svo
margt að bjóða þegar kemur að
því að komast í hið sanna jóla-
skap og að undirbúa jólin. Jóla-
gangan er fyrir stórfjölskylduna
og genginn verður stuttur hringur
um miðbæ Hafnarfjarðar en lagt
verður af stað kl. 19.30 á
Þorláksmessu frá Fríkirkjunni.
Jólasöngur og kyndlar setja
skemmtilegan blæ á göngunaen
henni lýkur með kertafleytingu á
Thorsplaninu og þátttöku í dag-
skrá jólaþorpsins þar sem hljóm-
sveit og söngvarar flytja gömlu
góðu jólalögin. Hafnfirðingar
eru hvattir til að fjölmenna í
jólagöngu Hafnarfjarðar.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 21. desember 2006
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 681175-0329
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf., umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Jólaþorpið
Á Þorláksmessu verður dagskrá í
jólaþorpinu kl. 14 og kl. 20. Kl. 14
syngur Öldutúnsskólakórinn, Jaðar-
leikhúsið verður með jólalist, Karíus
og Baktus mæta, Grýla grettir sig og
félagar úr Rimmugýgi sýna bardaga-
list. Kl. 19.30 verður Jólaganga
Hafnarfjarðar frá Fríkirkjunni og kl. 20
verða gleðilegir jólatónleikar. Óperukór
Hafnarfjarðar og Elín Ósk koma gest-
um í hátíðarskap og hljómsveit jóla-
þorpsins ósamt Óla Má, Ragga
Bjarna, Esther og Ívari leika gömlu
amerísku jólalögin.
Fróðleiksmolar í Pakkhúsinu
Í kvöld kl. 20 - íslensk jólasöngvaka.
Flytjendur eru Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
og Hjörleifur Hjartarson. Á vökunni
verða flutt gömul íslensk jólalög af
andlegum og veraldlegum toga,
sálmar og hátíðarsöngvar í bland við
grýlukvæði og jólasveinavísur.
Það var lítill jólabragur yfir síðasta bæjar-
stjórnarfundi þessa árs þar sem síðari umræða
um fjárhagsáætlun fór fram. Í sjálfu sér er þetta
skondið heiti því í raun er engin fyrri umræða
því þá kynnir bæjarstjórinn áætlunina og aðrir
segja sem minnst. En það er kannski ekki við því
að búast að jólalegt sé yfir slíkum umræðum
enda ekki þess eðlis. Manni finnst samt hálf
pirrandi að vera ganga frá þessu svona rétt fyrir
jólin, mæti gjarnan ljúka málinu eitthvað fyrr.
Sitt sýnist hverjum um stöðu fjármála bæjarins og sjálfstæðismenn
segja skuldir bæjarins hafa aukist um þrjá milljarða á fjórum árum
og vitna þá í yfirlit um fjárstreymi bæjarsjóðs en bæjarstjóri segir
þar tekið með skuldaaukningu fyrri meirihluta. Bæjarbúar sýna
þessari umræðu lítinn áhuga og kannski er áhyggjuefni hversu lítinn
áhuga bæjarbúar sýna á stjórnun bæjarins.
Jólin koma hlaupandi á móti okkur og ef við erum viðbúin getum
við notið þeirra í faðmi fjölskyldu eða vina. Það er löngu liðin tíð
að ég kepptist við að klára eitthvað fyrir jól. Flest má bíða betri tíma
og fyrir jólin á maður bara að gera það sem maður nýtur að gera og
kemur manni í gott jólaskap. Umhverfið okkar býður okkur upp á
að undirbúa jólin í verslunum en kirkjurnar minna líka á sig og
kannski ættu þær að vera með bás í jólaþorpinu eins og kaupmenn-
irnir. Allt stefnir í rauð jól og ætti engum að bregða hér sunnanlands
því þau eru líklegri en hvít jól. Flestir eru þó innandyra um jólin og
í gamla daga voru frostrósir á gluggum sem hurfu að mestu með
tilkomu tvöfalda glersins. Nú fæst jólasnjór í brúsum og þeir sem
sakna hvítra jóla ættu kannski að sprauta honum á rúður svo
hugurinn upplifi hvít jól.
Ég óska þér lesandi góður gleðiríkra jóla og ég þakka ánægjulegt
samstarf á árinu sem er að líða. Guð gefi þér frið um jólin.
Guðni Gíslason
Víðistaðakirkja
Jólavaka
föstudaginn 22. des. kl. 22:00
Tónlistarflutningur:
Flensborgarkórinn
Stjórnandi: Hrafnhildur Blómsterberg
Sigurður Skagfjörð, barítón
Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Allir velkomnir.
Helgihald
um jól og áramót
Aftansöngur
aðfangadag kl. 18:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð, barítón
Selló: Örnólfur Kristjánsson
Miðnæturstund
aðfangadag kl. 23:30
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð, barítón
Hátíðarguðsþjónusta
jóladag kl. 14:00
Barnakór, Unglingakór og Kirkjukór syngja
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur og
Úlriks Ólasonar.
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð, barítón
Aftansöngur
gamlársdag kl. 18:00
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Úlriks Ólasonar.
Einsöngur: Hlöðver Sigurðsson, tenór
Sóknarprestur og starfsfólk Víðistaðakirkju
óska íbúum Víðistaðasóknar og
Hafnfirðingum öllum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári!
www.vidistadakirkja.is
Verið velkomin
Bragi J. Ingibergsson,
sóknarprestur
3. Lækjarskóli - útivistarsvæði
Lagt fram erindi frá skólastjóra
Lækjarskóla vegna útivistarsvæð-
is nemenda og ósk um sparkvöll
við skólann.
Sparkvellir hafa nú verið byggðir
við fimm grunnskóla Hafnarfjarðar
sbr. samþykkt íþrótta- og tóm-
stundanefndar frá 3. maí 2004 þar
sem nefndin hvetur bæjaryfirvöld
til þátttöku í verkefninu í samstarfi
við KSÍ.
Fræðsluráð mælir með að næsti
sparkvöllur verði byggður í ná-
grenni Lækjarskóla og vísar
erindinu til framkvæmdasviðs til
frekari úrvinnslu.
5. Áheyrnarfulltrúi
Formaður lagði fram svohljóð-
andi tillögu:
„Fræðsluráð Hafnarfjarðar sam-
þykkir að leikskólastjórar fái einn
áheyrnarfulltrúa úr sínum hópi til
setu á fundum fræðsluráðs með
málfrelsi og tillögurétti. Tilnefna
skal aðalfulltrúa til eins skólaárs
(1. ágúst til 31. júlí) í senn og ann-
an til vara. Fyrsti fulltrúi sitji frá 1.
janúar til 31. júlí 2007.“
2. Fráveita,
Herjólfsgata/Flókagata
Lagt fram bréf Jóns Friðriks Sig-
urðssonar fyrir hönd íbúa að Her-
jólfsgötu 6 og 8, dags. 12. des-
ember 2006, vegna skólplagna frá
húsinu. Einnig lögð fram grein-
argerð vegna dælingar 9. des-
ember sl. Kristján Stefánsson um-
sjónarmaður fráveituverkefna
gerði grein fyrir málinu.
Framkvæmdaráð felur um-
sjónarmanni verksins að gera íbú-
um grein fyrir lausn málsins í sam-
ræmi við umræður á fundinum.
12. Hvaleyrarbraut, gatnagerð
Lagt fram minnisblað vegna
framkvæmda á Hvaleyrarbraut-
inni. Helga Stefánsdóttir gerði
nánari grein fyrir málinu.
Ástjarnarsókn
í samkomusal Hauka, Ásvöllum
Aftansöngur
á aðfangadagskvöld kl. 18
Prestur sr. Carlos Ferrer
www.astjarnarkirkja.is