Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Page 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 21. desember 2006
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
3
54
24
1
2/
06
Hlýjar og bjartar hátíðarkveðjur
Takið þátt í jólaleiknum á www.or.is
www.or.is
Fyrirtækið Nýsir er stórt og
sífellt stækkandi fyrirtæki sem
hefur sérhæft sig í eignarhaldi og
rekstri fasteigna og var Iðnskól-
inn í Hafnarfirði fyrsta húsið
sem fyrirtækið byggði og leigir.
Síðan hefur byggingunum fjölg-
að og þekktasta verkefnið sem
Nýsir hefur tekið þátt í er eflaust
tónleika- og ráðstefnuhúsið stóra
sem brátt rís í miðborg Reykja-
víkur.
Fjarðarpósturinn leitaði til Sig-
fúsar Jónssonar forstjóra Nýsis
og forvitnaðist um fyrirtækið.
„Fyrirtækið var stofnað árið
1991 sem ráðgjafafyrirtæki og
með viðskiptaþróun í huga. Við
byrjuðum fljótt að vinna í sjávar-
útvegi í Namibíu þar sem við
höfðum náð okkur í viðskipta-
tengsl og má segja að reksturinn
þar hafi komið undir okkur fót-
unum.“ Upphafsmenn í fyrirtæk-
inu, Sigfús og Stefán Þórarins-
son eiga fyrirtækið í dag en
Skagstrendingur á Skagaströnd
og nokkrir aðrir voru með í upp-
hafi en þeir Sigfús og Stefán
keyptu þá síðar út. Bakgrunnur
félaganna var ólíkur, Stefán
hafði verið í sjávarútvegsráðu-
neytinu og hjá Þróunarsam-
vinnustofnun m.a. í Afríku en
Sigfús var áður en Nýsir var
stofnað, bæjarstjóri á Akureyri.
Sigfús er fæddur á Akureyri en
ólst að mestu upp í Reykjavík.
Sigfús er með bs í landafræði
með sögu og jarðfræði sem
aukagreinar og mastersgráðu í
landfræði og borgarskipulagi og
tók doktorsgráðu frá Newcastle-
háskólanum í byggðaþróun á
Íslandi 1900-1940. Hann vann
um árabil við sameiningu sveit-
arfélaga og vann einnig sem ráð-
gjafi í heilbrigðisþjónustu m.a.
við sameiningu Borgarspítala og
Landakots.
Úr sjávarútvegi í Afríku í
einkarekstur í Hafnarfirði
„Við settum á stofn í Namibíu
sjávarútvegsfyrirtæki, Seaflower
Whitefish með Íslenskum sjáv-
arafurðum og fleirum en fórum
einnig að vinna fyrir namibísk
stjórnvöld og tókum m.a. að
okkur rekstur á hafrannsóknar-
skipi eftir útboð árið 1993 sem
var fyrsta reynsla okkar af rekstri
fyrir hið opinbera. Einnig vorum
við mjög öflugir í ráðgjafa-
þjónustu, m.a. við fyrirtæki,
sveitarfélög og ríki.“
En árið 1998 verða umskipti í
rekstri fyrirtækisins er Nýsir
býður í byggingu og rekstur Iðn-
skólans í Hafnarfirði í svo kall-
aðri einkaframkvæmd en Sigfús
segir að góð reynsla af Hval-
fjarðargöngunum, sem hafi verið
fyrsta stóra íslenska einkafram-
kvæmdin, hafi ýtt við mönnum
og opnað augu manna fyrir
möguleika á þessari aðferð við
byggingu Iðnskólans.
„Þetta hefur stækkað mikið
síðan og okkur óraði ekki fyrir
því hversu umfangsmikið þetta
yrði en nú erum við komir út í
sambærileg verkefni erlendis.“
Einkaframkvæmdir hafa verið
nokkuð umdeildar og voru það
sérstaklega hér í bæ þar sem
skólar, leikskólar og íþróttahús
voru byggð með þessum hætti.
„Einkaframkvæmd hentar vel í
ýmsum tilfellum en menn hafa
stundum verið að nota þessa
aðferð þar sem hún hentar ekki
sérlega vel en sleppt henni þar
sem hún ætti vel við.“ Nefnir
hann sem dæmi gamlar skóla-
byggingar sem þarfnast mikilla
endurbóta og segir að þar henti
oft betur að rífa þær gömlu og
byggja nýjar. Í einkarekstri sé
mun meira frelsi en í opinberum
rekstri til að taka viðskiptalegar
ákvarðanir og það gerir muninn.
Hins vegar sé slæmt að nýta
einkaframkvæmdina í sveitar-
félögum þar sem pólitísk sam-
staða er ekki góð.
„Eftir Iðnskólann var boðin út
bygging leikskólans Álfasteins í
Hafnarfirði, leikskóla í Grinda-
vík, fimleikahúss Bjarkar, Lækj-
arskóla, Sóltúns í Reykjavík og
ýmissa fleiri bygginga og við
buðum í allar þessar byggingar
og fengum flestar þeirra." Segir
Sigfús að ekkert annað fyrirtæki
sé í alveg sambærilegum rekstri
og Nýsir líklega eina fyrirtækið
sem sérhæfir sig í rekstri fast-
eigna.
Mikil útrás í Bretlandi
Nýsir keypti í haust 69%
hlutafjár í fyrirtækinu Operon,
sem er þekkt fyrirtæki í fast-
eignarekstri í Bretlandi. Nýsir
hefur keypt tvö einkafram-
kvæmdafyrirtæki í Bretlandi,
annað sem á fjóra skóla og hitt
sem á m.a. nýtt ráðhús Ruthin í
Wales. Operon sér síðan um
allan rekstur á þessum fast-
eignum en það fyrirtæki sinnir
eingöngu rekstri fasteigna,
lagnahönnun og ráðgjöf.
Sl. föstudag var tilkynnt að
Nýsir UK hafi unnið samkeppni
um byggingu 10 skóla og einnar
íþróttamiðstöðvar í einkafram-
kvæmd í Aberdeen í samstarfi
við Operon. Samstarfsaðilar eru
Operon, Landsbankinn, Pihl &
Søn, móðurfyrirtæki Ístaks og
VÍS auk íslenskra arkitekta en
stofnkostnaður er áætlaður 15
milljarða ísl. kr. Segir Sigfús
mikil verkefni framundan í
endurbyggingu skólamannvirkja
í Bretlandi.
Nýsir Danmark á tvær bygg-
ingar í Danmörku, stóra bygg-
ingu fyrir danska skattinn í
Norðurhöfninni í Kaupmanna-
höfn og viðskiptahús í Brøndby
en Nýsir keypti danskt fyrirtæki í
rekstri og segir Sigfús að Danir
séu ekki nógu hungraðir í
stórviðskipti og þar liggi mögu-
leiki Íslendinga og fleiri.
Í nýjar höfuðstöðvar
Nýsir hefur verið í Hafnarfirði
síðan Iðnskólinn í Hafnarfirði
var byggður og nýverið flutti
fyrirtækið í nýtt og endurbætt
húsnæði að Reykjavíkurvegi 74
þar sem Iðnskólinn var áður til
húsa. Húsið hefur allt verið end-
urbyggt og stækkað og nýlega
opnaði Café Konditori Cop-
enhagen kaffihús á jarðhæðinni
en það er dótturfélag Nýsis. Þar
er einnig til húsa annað dótt-
urfélag Nýsis, Miði.is en eftir er
að ráðstafa nokkru af húsnæðinu
á jarðhæðinni.
En dótturfélögin eru fleiri því
Nýsir á fyrirtækið Sal, sem rekur
heilsugæslustöð í Kópavogi og
Menntaskólann Hraðbraut sem
Nýsir á að hálfu. Öll þessi fyrir-
tæki á Nýsir í samstarfi við aðra
aðila. Starfsemin er því orðin
mjög fjölbreytt og um 3-400
manns vinna við fyrirtækin á Ís-
landi og Operon í Bretlandi er
með um 900 manns og því vel á
annað þúsund manns í þjónustu
Nýsis og tengdra fyrirtækja.
Framundan
„Tónleika- og ráðstefnuhúsið í
Reykjavík og sókn inn á Bret-
landsmarkað í einkaframkvæmd
eru helstu verkefnin framund-
an,“ segir Sigfús, „ég sé miklu
meiri vöxt fyrir mér í Bretlandi
en í Danmörku, þar er gífurleg
þörf fyrir endurbyggingu á skól-
um og ríkisstjórnin þar er í átaki
við að endurbæta skólabygging-
arnar þar. Þörfin fyrir skólabygg-
ingar í Danmörku er miklu
minni.“
Í fasteignarekstri í þremur löndum
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis landaði milljarða samningi í Bretlandi
Sigfús Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsis og Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður í nýju höfuðstöðvunum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n