Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Qupperneq 7

Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Qupperneq 7
www.fjardarposturinn.is 7Fimmtudagur 21. desember 2006 Félagar í Björgunarsveit Hafn- arfjarðar eru nú á fullu í fjár- öflunum sínum. Jólatrjáasala er í hámarki þessa dagana og einnig er undirbúningur fyrir flug- eldasöluna kominn á fullt. Þessar tvær fjáraflanir eru mjög mikil- vægar fyrir björgunarsveitir landsins og geta skipt sköpum þegar á reynir. Starf Björgunar- sveitar Hafnarfjarðar byggist að langstærstum hluta á þessum tveimur lykilfjáröflunum ár hvert. Leiðandi í björgunarstarfi Í gegnum árin hefur Björg- unarsveit Hafnarfjarðar verið leiðandi í starfi björgunarsveita á landinu og er þar mestu um að þakka öflugum félögum sem og ríkum vilja Hafnfirðinga til þess að styðja við bakið á sveitinni. Nú um áramótin sem og fyrri áramót leitar sveitin til bæjarbúa um stuðning við starfið því í þeirra styrk liggur ykkar öryggi. Allt unnið í sjálfboðavinnu Allir félagar björgunarsveit- arinnar eru í sjálfboðavinnu og eru til taks allan sólahringinn, allt árið ef á reynir. Starf sveitar- innar er því afar mikilvægt sem hluti af öryggisneti landsmanna. Að sögn Júlíusar Gunnarssonar, formanns sveitarinnar, er um 80% af rekstrarfé sveitarinnar komið af sjálfsaflafé og er það nýtt til þjálfunar félaga, endur- nýjunar og viðbótar við tækja- kost auk annars starfs s.s. ung- liða- og nýliðaþjálfunar. Án þessara fjáraflana stæðu björg- unarsveitir ekki jafn vel að vígi og þær gera nú í dag. Þess má geta að allur ágóði rennur óskipt- ur til uppbyggingar á starfi sveitarinnar. Forvarnir Forvarnir tengdar flugeldum hafa á undanförnum árum dregið verulega úr slysum af völdum flugelda auk þess sem vöruþróun hefur leitt til mikillar gæðaaukn- ingar og hefur það verið stefna Björgunarsveitar Hafnarfjarðar undanfarin ár að selja ekki u n g - mennum undir 16 ára aldri flug- elda. Nýr fjölskyldupakki Nú í ár var brugðist við þeim áskorunum að hafa stærri fjöl- skyldupakka og bættist við pakk- inn Trölli. Minnsti pakkinn, Trít- ill, mun því hverfa úr sölu. Bar- dagarnir, brennurnar og kappa- terturnar verða áfram á sínum stað ásamt rakettunum. Sölustaðir Engin breyting verður á staðsetningu sölu- staðanna í ár. Risaflugeldamark- aðurinn verður í húsnæði Björg- unarsveitarinnar við Flatahraun (gamla slökkvistöðin) og svo verða þrír aðrir sölustaðir, Fornubúðir við smá- bátahöfnina, Skátamiðstöðin Hraunbyrgi við Víðistaðatún og Haukahúsið við Ásvelli. Opið verður frá kl. 9-22 dagana 28.- 30. desember og svo frá kl. 9-16 á gamlársdag. Flugeldasýningin verður haldin yfir höfninni föstudaginn 29. desember kl. 20.30. Flugeldasala björgunarsveitanna forsenda björgunarstarfs í landinu Þeir sem versla hjá björgunarsveitunum leggja sitt af mörkum til að fjármagna björgunarstörf Ásgeir með nýjan nætursjónauka um borð í Einari Sigurjónssyni. Frá skipsstrandi í Hafnarfjarðarhöfn - Einar Sigurjónsson og Fiskaklettur aðstoða lóðsbátana. Frá sýningu á sjómanna- deginum 2005 Gosin, raketturnar og terturnar eru allar kenndar við viðburði úr Íslandssögunni. Mikilvægt er að nota hlífðar- gleraugu og vera ekki í eld- fimum fötum við að skjóta upp flugeldum og skotkökum. Munið að áfengi og skoteldar fara aldrei saman. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: B jö rg un ar sv ei t H af na rfj ar ða r Lj ós m .: B jö rg un ar sv ei t H af na rfj ar ða r

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.