Fjarðarpósturinn - 21.12.2006, Síða 13
www.fjardarposturinn.is 13Fimmtudagur 21. desember 200612 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 21. desember 2006
Nýlega var tekin í notkun ný
og glæsileg götunarvél í Flúr-
lömpum. Hún byltir í raun allri
framleiðslu á lömpum hjá fyrir-
tækinu en vélin er tölvustýrð og
getur gatað stálplötur eftir teikn-
ingum og skiptir sjálfvirkt um
verkfæri. Kemur vélin í stað
handvirkrar vélar og léttir til mik-
illa muna alla vinnslu þar sem
ekki þarf að framleiða mikið
magn í einu en ekki þarf lengur að
stilla hverja vinnslu og ná-
kvæmnin er miklu meiri. Vélin er
keypt af Iðnvélum í Hafnarfirði.
Flúrlampar ehf., er fram-
leiðslu- og sölufyrirtæki sem hóf
starfsemi sína árið 1977 og fagn-
ar því 30 ára starfsemi á næsta
ári. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í
hönnun og smíði á hverskonar
flúrlömpum, bæði stöðluðum
útfærslum og sérsmíði. Einnig
flytur fyrirtækið inn mikið úrval
af vönduðum lömpum og búnaði
frá virtum fyrirtækjum á þessu
sviði, þ.á.m. rakaþétta flúrlampa
og neyðarljós, svo og allt efni til
lampagerðar að undanskyldu
plötujárni.
Fyrirtækið á að baki víðtæka
reynslu í þróun og smíði flúr-
lampa sem notaðir eru við marg-
víslegar aðstæður bæði inni og
úti. Hjá fyrirtækinu starfa að
jafnaði 5 starfsmenn m.a. við
smíði á iðnaðarlömpum, kappa-
og skápalömpum, innfelldum
lömpum og við ýmsa sérsmíði.
Lampar frá Flúrlömpum ehf.
eru notaðir um allt land og á
höfuðborgarsvæðinu, í fyrirtækj-
um, skólum, stofnunum og á
einkaheimilum. Nýjasta stóra
verkefni Flúrlampa var sérsmíði
á öllum loftljósum í nýja skrif-
stofubyggingu Morgunblaðsins
sem nam um 700 m ef öll ljósin
hefðu verið lögð saman.
Á síðustu árum hafa dimm-
anlegir lampar, DALI ljósastýr-
ingar og ljósastýrikerfi verið
vaxandi þáttur í starfsemi fyrir-
tækisins. Er þetta allt frá þrýsti-
rofastýrðum ljósastýringum til
tölvustýrðra lausna fyrir heimili,
stofnanir og fyrirtæki af öllum
stærðum. Hefur fyrirtækið sett
upp slík kerfi m.a. hjá Land-
spítala-háskólasjúkrahúsi og
aðalstöðvum Nýsis hf.
Frá því í júlí 2005 hefur fyrir-
tækið haft umboð á Íslandi fyrir
NARVA perur sem eru gæða-
perur framleiddar í Þýskalandi.
Þessar perur voru hér á mark-
aðnum fyrir nokkrum árum og
reyndust þá mjög vel. Þessum
perum hefur verið vel tekið af
viðskiptavinum fyrirtækisins og
hafa selst á þriðja tug þúsunda
pera að sögn Jóns A. Marinós-
sonar hjá Flúrlömpum.
Flúrlampar fá
fullkomna götunarvél
Jóhann Haraldsson, eigandi Flúrlampa við nýju vélina.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Sendum
félagsmönnum,
fjölskyldum þeirra og
landsmönnum öllum
hugheilar jóla- og
nýárskveðjur
Félag iðn- og tæknigreina HUG
M
YN
D
&
H
Ö
N
N
U
N
/
SC
O
PE