Fjarðarpósturinn - 07.02.2008, Blaðsíða 3
Stærsti leikskóli Hafnarfjarðar,
Stekkjarás, sem er með um 155
börn hefur þurft að grípa til þess
ráðs að loka deildum og verða
börn því að vera heima fimmta
hvern dag.
Í bréfi til foreldra segir að leik -
skólastjóri, aðstoðar leik skóla -
stjóri og mynd listar stjóri hafi
lagt störf sín til hliðar og unnið
inni á deildum og að leik skóla -
kennarar hafi ekki tekið samn -
ingsbundna undirbúnings tíma
sína á dagvinnutíma. „Því miður
duga þessi ráð ekki lengur og því
verður að grípa til þess að loka
deildum,“ segir í bréfinu.
Að sögn Magnúsar Baldurs -
sonar, fræðslustjóra er ástandið
slæmt á Stekkjarási en ekki hafi
þurft að beita lokunum annars
staðar. Á Stekkjarási vantar að
manna 7,2 stöðugildi en 22
stöðugildi í öllum leikskólum
bæjarins. Segir Magnús sums
staðar vera fullmannað og þar sé
verið að taka inn ný börn en alls
séu 60-70 pláss laus á leik -
skólum bæjarins sem ekki sé
hægt að nýta vegna manneklu.
Hann segir ástandið hafa þó
batnað verulega frá í haust og
vonast eftir að takist að bæta
ástandið í Stekkjarási í mánuð -
inum.
www.fjardarposturinn.is 3Fimmtudagur 7. febrúar 2008
Fríkirkjan
Sunnudagurinn 10. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Gestur kvöldvökunnar
verður sr. Bernharður Guðmundsson.
Kór og hljómsveit Fríkirkjunnar leiðir sönginn.
Verið velkomin
www.frikirkja.is
Dansað í Hraunseli
föstudaginn 8. febrúar
Þorvaldur Halldórsson
leikur og syngur.
Dansað er í Hraunseli, Flatahrauni 3
kl. 20.30 - 24.
Mikið fjör og mikið gaman.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Húsið opnað kl. 20
Upplýsingar í Hraunseli, s. 555 0142, 555 6142
og á www.febh.is
Fyrirtækið Óli prik ehf, tekur
að sér allar merkingar, útsaums -
merk ingar og áprentun (bola -
prentun). Óli prik er með mikið
úrval af húfum, handklæðum,
viskastykkjum o.fl. Hægt er að
skoða úrvalið á www.oliprik.is.
Eigandi fyrir tækisins er Elín
Óladóttir, og er fyrirtækið
staðsett í Ljósabergi 8 Hafnar -
firði, í bílskúrnum.
Nýtt þjónustufyrirtæki
Enn á ný lokað á Stekkjarási
Ómannað í 22 stöðugildi á leikskólum bæjarins
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Börn fagna nýjum fána á
Stekkjarási fyrir 2 árum