Fjarðarpósturinn - 12.06.2008, Blaðsíða 8
Leikskólinn Norðurberg fékk á
föstudaginn afhenta viðurkenn -
ingu fræðsluráðs 2008 fyrir
kennslu í umhverfismennt.
Fræðsluráð veitir verkefnum í
skólastarfi viðurkenningu sem
hafa verið unnin af frumkvæði
starfsfólks skóla með fag -
mennsku og ábyrgð að leiðarljósi
þar sem kennarar og annað
starfsfólk skóla vinni saman að
því að þróa kennslufræði til
hagsbóta fyrir nemendur.
Leikskólinn Norðurberg hefur
unnið ötullega að um hverfis -
málum, endurvinnslu og kennslu í
umhverfismennt til fjölda ára.
Skólinn hefur verið leiðandi í
umhverfismálum í skólastarfi í
Hafnarfirði og var þar langt á
undan öðrum að veita þeim
málum sérstaka athygli. Áhersla
skólans á umhverfismál sýndi
frumkvæði stjórnenda skólans þar
sem skólinn var langt á undan
sinni samtíð í kennslu í um -
hverfismennt sem m.a. smit aði út
frá sér til grunnskóla í Hafnarfirði
ekki síður en leik skóla.
Þá fékk Öldutúnsskóli sl.
fimmtudag afhenta viður kenn -
ingu fræðsluráðs 2008 fyrir
verk efnið Rómverjar til forna
sem verk- og listgreinakennarar í
Öldutúnsskóla hafa þróað og
staðið fyrir í skólanum í nokkur
ár. Það birtir einstaklega vel
nýjar áherslur í skólastarfi 21.
aldar þar sem frumkvæði og
samvinna kennara er lykilatriði í
að þróa ný kennsluverkefni í
þágu nemenda. Þetta er fjölbreytt
verkefni sem reynir á marga
þætti sem nemendur þurfa að
takast á við til hugar og handar,
gefur þeim einnig möguleika á
að bæta við eigin reynsluheimi
og að útfæra hugmyndir sínar á
skapandi hátt. Afraksturinn var
til sýnis og tengsl við heimilin
nást í gegnum sýningu á þeim
verkefnum sem nemendur búa
til. Þeir kennarar sem hafa verið
drifkrafturinn í verkefninu eru
Guðný Haraldsdóttir, Guðrún
Einarsdóttir, Helga Guðlaug
Einarsdóttir, Gunnar Sigurðsson
og Kolbrún Kjartansdóttir – í
samstarfi við umsjónarkennara
5. bekkja á hverju skólaári.
Ellý Erlingsdóttir, formaður
fræðsluráðs afhenti skólunum
verðlaunin.
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 12. júní 2008
Fjörður
bikarmeistari
í sundi í fyrsta
sinn
Íþróttafélagið Fjörður,
íþrótta félag fatlaðra í Hafn -
arfirði, sigraði á bikar móti
Íþrótta sambands fatlaðra um
síðustu helgi. Keppnin var æsi -
spennandi og hafði íþrótta -
félagið Ösp forystu til síðustu
greinar er Fjörður náði að
kom ast framúr og sigra.
Fögnuðu liðsmenn Fjarðar
gríðarlega í mótslok enda er
þetta í fyrsta sinn sem félagið
verður bikarmeistari í sundi.
Grýttu ær og
lamb
Fyrir skömmu handtók lög -
reglan 5 unglinga í bíl á
Kaldár selsvegi en þeir höfðu
gert sér að leik að grýta lömb
og ær við fjárhús sem þar er.
Unglingarnir eru 17-18 ára og
hafði sjónarvottur tilkynnt
athæfið til lögreglunnar.
Menn irnir voru allir handteknir
og færðir á lögreglustöðina þar
sem þeir voru yfirheyrðir síðar
sama dag en sumir þeirra voru
undir áhrifum áfengis þegar
þeir voru handteknir. Eitt lamb
og fullorðin ær hlutu sár eftir
grjótkast piltanna.
Námskeið í sumar:
Námskeið 1: 16. - 20. júní – dagsferð*
Námskeið 2: 23. -27. júní – útilega
Námskeið 3: 30. - 4. júlí – útilega
Námskeið 4: 7. - 11. júlí – dagsferð
Námskeið 5: 14. - 18. júlí – útilega
Námskeið 6: 11. - 15. ágúst – dagsferð
Námskeið 7: 18. – 22. ágúst – útilega
* 4 daga námskeið, frí 17. júní.
Útilífsskóli Hraunb
úa
Skátafélagið Hraunbúar er
með skemmtileg útilífsnámskeið fyrir
alla hressa krakka á aldrinum 8 til 11
ára í sumar.
Dagskráin byggist upp á mikilli útiveru
og ekta skátastarfi!
Skráning og upplýsingar í síma 824-0906 og á utilifsskoli.hraunbuar.is
Skráning er í fullum gangi!
Norðurberg og Öldutúnsskóli fengu fyrstu
viðurkenningar fræðsluráðs
Ellý Erlingsdóttir, form. fræðsluráðs afhendir Önn Borg, leikskóla -
stjóra, sem klædd var í takt við sænska daga, viðurkenninguna.