Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 17. júlí 2008 Í apríl 1910 birtust eftirfarandi hugmyndir Guðmundar Hjalta - sonar, kennara, í Skuggsjá, frétta- og sögublaði, sem gefið var út í Hafnarfirði og gerðu blaðmenn sér vonir að fólk gæti eftir 100 ár séð hugsjónir for - feðr anna í veruleika eða þá hitt. „Draumaspá um jarðrækt í Hafnarfirði að 100, árum liðn - um. Þá verður fallegt að líta yfir landið við Hafnarfjörð. Í öllum íveruhúsum þar verður kominn stærri eða minni skrúð jurta - garður. Í görðum þeim eru þá runnar eða hríslur af reyni, birki og gulvíðir, af lævirkjatré, furu eða greni, og ef til vill beyki trjám og fleirum öðrum trjám, sem nú vaxa hvergi að ráði nema suður á Eldlandi. Þar verður líka fullt af rifs berja runnum, og mörgum öðrum berja runnum og epla - trjám, sem þá er búið að land - venja og kyn bæta svo, að góðan ávöxt beri. Þar verða einnig komn ir margir reitir af skrúð - blómum. Í þeim eru nú fyrst og fremst íslensk skrúð blóm, svo sem stóra eyrarrósin, jökla - sóleyin og ljósberinn. Er þá búið að úrvelja og kynbæta þau svo, að þau eru orðin miklu stærri og fegri en þau eru nú. Þar eru líka mörg útlend skrúðblóm, sum sunnan frá Eldlandi og syðstu háfjöllum Suður-Ameríku. Er líka búið að íslenska þau eftir þörfum. Hraunið allt fyrir vestan og norðan bæinn er orðið fegursta skóglendi. Gróa þar sömu tré og í skrúðjurtagörðunum, en eru í miklu stærri runnum. Innan um þá eru ótal smærri og stærri mat jurtagarðar. Í þeim gróa allskonar káljurtir , sem líka eru orðnar svo kynbættar, að rófur þeirra eru miklu næringarmeiri en þær eru nú. Þar er líka sykur - rófan, svo bætt og íslenskuð, að hún framleiðir svo mikinn sykur, að margir fara að stofna sykur - gerðarsmiðjur. Og ná þar svo smátt og smátt nógum sykri úr henni. Og mörg önnur matjurtin, umbætt og arðsöm, grær þar líka. Öll holtin og fellin næstu fyrir austan og sunnan bæinn, ásamt hraunbeltinu, sem áin rennur hjá, eru orðin að túnum, skógi og matjurtagörðum, eða þá að ökrum. Því eitthvað korn verður þá búið að umbæta og íslenska svo, að það grói hérlendis með góðum arði. Hæstu fellin verða líka al gróin með einhverju. Altént trjám eða týtu berjalyngi. Því lyng þetta verður þá orðinn aðal lyng - gróðurinn í mörgum ef eigi öll - um byggðarhraunum vorum. Ein eða fleiri tegundir fáséðra merkisplantna, ef til vill einnig frá Eldlandi. Gróa hingað og þangað innan um hitt. Vekja þær undrun allra jurtafræðinga. Já þá verður jurtafræðin í svo miklum metum, að fólk les hana með sömu ákefð og það les rómana nú og þá segja þeir: „Miklir skrælingar voru forfeður vorir fyrir 100, árum, þá litu þeir varla við grasafræði, en voru eins og dauðadrukknir af lélegu rómanarusli“.“ Lesa um jurtafræði í stað rómana eftir 100 ár Hugmyndir Guðmundar Hjaltasonar árið 1910 Umsvif Gámaþjónustunnar eykst stöðugt í Hafnarfirði og sem dæmi um það hófst jarðgerð í 4 gámum á svæði félagsins við Berghellu nýverið. Ingþór Guð - munds son, stöðvarstjóri hefur umsjón með jarðgerðinni en hann stjórnaði tilraunum til jarðgerðar frá 100 heimilum í Hafnarfirði árið 1997 á gömlu öskuhaugunum en það var jarðgerð á opnu svæði. Að sögn Ingþórs er nú hafin jarðgerð í 4 sérútbúnum gámum og er notuð í hana grænmetis- og ávaxtaafgangar frá stórmörk - uðum, gras, trjágreinar og hrossa tað. Þessum efnum er komið fyrir í gámunum og lofti/súrefni er dælt inn í botn gámanna og vel er fylgst með hitastigi í þeim í tveimur mis - munandi hæðum. Fer hitinn upp í 60°C á fystu 2-3 sólar hring - unum en síðan lækkar hitastigið nokkuð og því er haldið jöfnu með mismiklum innblæstri á lofti. Koldíoxíði er dælt út úr gámunum ofar og það leitt í sk. biofilter sem gerður er úr trjákurli. Efnið stendur í gám - unum í 6 vikur, er einu sinni velt , þar næst er það tekið úr og látið standa í 2 vikur áður en það er harpað og er þá tilbúðið sem úrvals áburður eða molta. Engin lykt kemur frá fram - leiðslunni því það fer fram í lokuðu kerfi og því laðast engin dýr að, hvorki skordýr né önnur. Úrvals áburður Efnið er hægt að nota til að blanda við mold og sem áburð á trjábeð og á grasflatir. Að sögn Jóns Ísakssonar, markaðsstjóra Gáma þjónust - unnar er búist við að efnið verði tilbúið til dreifingar í lok ágúst. Taka við trjágreinum Er þetta enn ein við bótar - þjónusta við neytendur en sl. sumar var opnuð ný endur - vinnslustöð, Gámavellir sem tekur við úrgangi frá einstakl - ingum og fyrirtækjum og er hún staðsett að Berghellu 1 en þar er ma. tekið við trjágreinum sem ekki er hægt að koma af sér annars staðar í Hafnarfirði. Jarðgerð í full - komn um búnaði Gámaþjónustan framleiðir moltu með nýjum tækjum Ingþór við hitamælana sem tengdir eru við tölvubúnað. Jón Ísaksson og Ingþór Guðmundsson við gámana þar sem jarðgerðin fer fram á mjög snyrtilegan hátt. L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n A-lið FH og Hauka í sjöunda flokki kvenna stóðu sig vel á Símamótinu sem fram fór í Kópavogi um síðustu helgi. FH hafði sigrað Sindra frá Höfn en Haukastúlkurnar kepptu um fyrsta sætið við Grindavík. Fór sá leikur í framlengingu en lyktaði með markalausu jafntefli og deildu liðin því fyrsta sætinu. FH og Haukar höfðu háð æsispennandi leik daginn áður um hvort liðanna mundi etja kappi við Grindavík um fyrsta sætið. Það voru þær landsliðs - hetjurnar Margrét Lára Viðars - dóttir og Gréta Mjöll Samúels - dóttir sem afhentu stúlkunum sigurlaunin Þess má geta að bæði A og B lið sjöunda flokks FH náðu þriðja sæti á mótinu. Þarna kepptu einnig stúlkur í 4., 5. og 6. flokki og varð FH í 3. sæti í 5. flokki A, í 2. sæti í 5. flokki B og í fyrsta sæti í 5. flokki C. Þá voru Sara Hólm úr FH og Berglind úr Haukum valdar til að leika í keppni Landsliðisins og Pressunnar í 5. flokki. FH sendi átta lið til keppni og Haukar sendu þrjú lið til keppni. Stóðu öll liðin sig mjög vel og skemmtu stúlkurnar sér konung - lega. Ungar hafnfirskar stúlkur stóðu sig vel í fótbolta FH og Haukar stóðu sig vel á fótboltamóti í Kópavogi A-lið FH og Hauka í sjöunda flokki ásamt Margréti Láru Viðarsdóttur, t.v. og Grétu Möll Samúlsdóttur t.h. Á myndina vantar eina FH-stúlkuna, Helgu Magneu, en hún var farin að horfa á systur sína keppa. L j ó s m . : Þ ó r a r i n n J ó n M a g n ú s s o n Fiskbúðin Lækj ar gö tu 220 Hafnarfirði S-56 554 88 220 HafnarfirðiLækjargötu 34bFiskbúðin Sími-5655488 OKKAR EIGIN: Plokkfiskur Lasagne Humarsúpa Rúgbrauð Harðfiskur L j ó s m . : G u ð n i G í s l a s o n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.