Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Blaðsíða 5

Fjarðarpósturinn - 17.07.2008, Blaðsíða 5
www.fjardarposturinn.is 5Fimmtudagur 17. júlí 2008 Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar laugardaginn 19. júlí Skógræktarfélag Hafnarfjarðar við Kaldárselsveg Kl. 14: Hugvekja í Bænalundi, Höfðaskógi. Séra Gunnþór Ingason flytur hugvekju. Að hug - vekju lokinni verður gengið undir leiðsögn Steinars Björgvinssonar, garðyrkjumanns frá Bænalundi í gegnum Höfðaskóg og meðfram Hvaleyrarvatni inn í Seldal. Kl. 15: Minnisvarði um Björn Árnason afhjúpaður í Seldal. Afhjúpaður verður minnisvarði um Björn Árnason, fyrrverandi bæjarverkfræðing og stjórnarmann í Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í landgræðslu - skóginum í Seldal þar sem uppgræðsla hófst 1990. Kl. 16-17: Kaffiveitingar í Selinu Skógræktarfélagið býður gestum upp á kaffiveitingar í bækistöðvum félagsins og gróðrarstöðvarinnar Þallar við Kaldárselsveg. Göngustígar liggja víða um skóginn á Húshöfða. Þar er að finna trjásafn Skógræktar félagsins og rósasafn sem er samstarfsverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Skógræktar félags Hafnarfjarðar. Þessi plöntusöfn eru hluti af útivistarsvæðinu við Hvaleyrarvatn og öllum opin. Hvaleyrarvatn Kl. 14.30-16.30: Grillið Heitt verður í kolunum og getur hver og einn komið með eitthvað á grillið. Þórður Marteinsson leikur á harmonikkuna. Kl. 15-16: Skátalundur, skáli St. Georgsgildis Gildisskátar bjóða upp á kaffi og vöfflur í skálanum Skátalundi við Hvaleyrarvatn. Sörlastaðir við Kaldárselsveg Kl. 15-16: Íshestar og Sörli verða með hesta í gerðinu við Sörlastaði og verður teymt undir börnum. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar • ÍTH • Hestamannafélagið Sörli • St. Georgsgildið í Hafnarfirði • Íshestar Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn og mun hann standa yfir í allt sumar og verður hægt að fá kort í Skógræktarstöðinni. F j a r ð a r p ó s t u r i n n 0 8 0 7 – © H ö n n u n a r h ú s i ð e h f . Nánari upplýsingar um daginn má fá hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar í síma 555 6455 Hægt verður að veiða í Hvaleyrarvatni allan daginn! Hvaleyrarvatn

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.