Fjarðarpósturinn - 02.04.2009, Page 9
Frí heimsending
Roð- og beinlausir bitar
Þorskur 850 kr./kg
Ýsa 750 kr./kg
Ýsa, 2. flokks 650 kr./kg
Ýsa m/roði 600 kr./kg
Saltfiskur* 1.100 kr./kg
Saltaðar gellur 1.250 kr./kg
Steinbítur, roð- og beinlaus 800 kr./kg
Siginn fiskur 900 kr./kg
*Alvöru gamaldags saltfiskur
Lágmark 2 kg.
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu
Pantað með dags fyrirvara
visa/euro
Getum boðið upp á ferskan fisk
með tveggja daga fyrirvara!
Símar 663 1115 og 663 1116
kl. 8-18 mánudaga til laugardaga
Lúxusfiskur, Melabraut 17, Hafnarfirði
www.fjardarposturinn.is 9Fimmtudagur 2. apríl 2009
Sérstök tilboð á Fjörukránni
í mars og apríl
Hvunndagsmatseðill
Tveggja rétta matseðill á kr. 1.500
Sértilboð - gildir á kvöldin
mánudaga-fimmtudaga
Helgartilboðsmatseðill
Þriggja rétta matseðill á kr. 4.200
gildir á kvöldin föstudaga-sunnudaga
www.fjorukrain.is - Pöntunarsími 565 1213
Lokahátíð Stóru upp lestr -
arkeppninnar var haldin í Hafn -
ar firði í þrettánda sinn 17. mars
sl. þar sem 18 nemendur 7.
bekkja grunn skóla Hafnar fjarð -
ar og Álfta ness lásu fyrir fullu
húsi.
Stigu þau í pontu og lásu úr
sögum og ljóð og stóðu sig
hvert öðru betur. Það var síðan
dómnefndar að skera úr um
sigurvegara og kom það í hlut
Katrínar H. Ólafsdóttur úr
Engidalsskóla. Í öðru sæti
hafnaði Andrea Torfadóttir úr
Öldutúnsskóla og í þriðja sæti
lenti Bára L. Þórarinsdóttir úr
Álftanesskóla.
Á hátíðinni voru veitt verð -
laun í smásagnakeppni nem -
enda í 8.-10. bekkjum í grunn -
skólum Hafnarfjarðar. Í 1. sæti:
Orð eru óþörf, eftir Rebekku
Þórsdóttur, 8. bekk í Víði staða -
skóla, í 2. sæti Um alla eilífð,
eftir Elínborgu S. Pálsdóttur, 9.
bekk Setbergsskóla og í 3. sæti
Ein býfluga framleiðir ekki
hunang eftir Hrafnkel H.
Helga son, 10. bekk, Víði staða -
skóla en Hrafnkell hefur átt
vinningssögu í keppninni sl.
þrjú ár.
Katrín í Engidalsskóla las best
Glæsilegur lestur nemenda í 7. bekk grunnskólanna
F.v.: Bára L. Þórarinsdóttir, Álftanesskóla, Katrín H. Ólafsdóttir,
Engidalsskóla og Andrea Torfadóttir, Öldutúnsskóla.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Fanney Valsdóttir í ræðustól í
Hafnarborg.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Fyrir skömmu færði spila -
nefnd Félags eldri borgara
Mæðra styrksnefnd eina milljón
króna. Er það sjóður sem safn -
ast hefur upp á nokkrum árum
vegna þátttöku í bridge, vist og
bingói. Að sögn Ásgeirs Sölva -
sonar, formanns nefndar innar
hefur aðsókn, sérstaklega í
bridge, aukist mikið og því hafi
þetta verið mögulegt. Annars
fari innkoma í kostnað við
spilamennsku, verðlaun og fl.
auk þess sem nefndin hefur
styrkt starfsemi félagsins.
Elísabet Valgeirsdóttir tók við
gjöfinni sem hún sagði mjög
mikils virði. Jón Kr. Óskarsson,
er formaður FEBH.
Gáfu eina milljón kr.
Spilanefnd Félags eldri borgara rausnarleg
Ásgeir Sölvason, Elísabet Valgeirsdóttir og Jón Kr. Óskarsson.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n
Dauður minkur fannst við
göngustíginn við sjóinn gegnt
Fjörukránni í síðustu viku. Ekki
er vitað hvers vegna hann
drapst. Eitthvað hefur borið á
að minkur hafi sést nálægt
Læknum, nýlega sá íbúi mink
snemma morguns rétt við
Lækjarskóla og nemandi í
Setbergsskóla sá mink við
Lækinn hjá skólanum á síðasta
ári. Þeir leita eflaust í fugla en
forða sér ef fólk ber að.
Fálkinn sem lesandi sá við
Lækinn var ekkert að forða sér
þó stoppað væri og tekin hreyfi -
mynd af honum enda gæddi
hann sér á fugli og bíla um -
ferðin hafði heldur engin áhrif.
Villt dýralíf virðist því þrífast
ágætlega hér í Hafnarfirði.
Minkar og fálkar í bænum
Nokkuð um að minkar sjáist nálægt Læknum
Minkurinn við göngustíginn við Strandgötu.
L
j
ó
s
m
.
:
G
u
ð
n
i
G
í
s
l
a
s
o
n