Fjarðarpósturinn - 13.08.2009, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. ágúst 2009
Undirbúningur skólastarfs er
í fullum gangi þessa dagana og
í Flensborg er framundan
skólaár sem í senn verður
spennandi og ögrandi að sögn
Magnúsar Þorkelssonar starf -
andi skólameistara í námsleyfi
Einars Birgis Stein þórssonar.
Magnús segir aðalverkefni
ársins verði tengd námskrár -
gerð og þykir honum merki legt
að koma til starfa án þess að allt
sé á hvolfi eins og verið hefur
flest undanfarin 11 ár vegna
framkvæmda.
Hrefna Geirsdóttir, áfanga -
stjóri leysir Magnús af í stöðu
aðstoðarskólameistara og Hall -
dóra Jóhannesdóttir sest í stól
áfangastjóra en litlar breytingar
eru í starfsmannamálum skól -
ans.
„Aðsókn að skólanum var
mikil í vor. Raunar hefur
aðsókn að skólanum aukist svo
að á síðasta skólaári voru vor-
og haustannir jafnfjölmennar
en jafnan er vorönn fámennari
en haustönn. Alls voru
afgreiddar 373 umsóknir, þar af
voru 274 með skólann sem
fyrsta val. Inn voru teknir 253
nemendur. 120 var vísað frá og
var langstærsti hluti þeirra eldri
en 18 ára. Á starfsbraut eru
skráðir 22 nemendur og 118
nemendur eru skráðir á
íþróttaafrekssvið.
Fleiri karlmenn
Sú frekar óvanalega staða er
uppi að heldur eru fleiri karlar
en konur við skólann að sögn
Magnúsar. „Það vakti athygli
hversu sterkur hópur sótti um
skólann en leitast var við að
taka inn alla nýnema sem sóttu
um skólann sem fyrsta val,
voru með góða skólasókn og
bjuggu í Hafnarfirði. Fjöl -
mennustu brautirnar eru félags -
fræða- og náttúru fræði braut en
viðskiptabrautin hefur aukist og
dafnað á ný síðustu árin.“
Skuldlausir sjá stundatöflu á
INNU
Skuldlausir eldri nemendur
munu nú í fyrsta sinn geta séð
stundatöflur á INNU að
óbreyttu frá miðvikudeginum
19. ágúst en aðrir eldri nem -
endur þurfa að ganga frá sínum
málum við skrifstofu skólans
áður en þeir fá aðgang.
Nýnemar fá stundatöflur
afhentar frá fimmtudeginum
20. ágúst en þá hefjast
nýnemakynningar. Umsóknir
um breytingar á stundatöflum á
svo að senda í tölvupósti.
Raunar er svo þröngt á garð -
anum og segir Magnús að
vandséð sé að nem endur geti
breytt töflum sínum.
„Við erum stolt af okkar fólki
í Flensborgarskólanum. Það
voru a.m.k. sex nemendur
núverandi eða fyrrverandi í
silfurliðinu sem stóð sig svo vel
á HM unglinga í Túnis á
dögunum. Auk þess fara tveir
nemendur á EM kvenna í
knattspyrnu í lok ágúst en að
auki er einn útskrifaður
nemandi í liðinu. Við fylgjumst
því grannt með EM og segjum
áfram Ísland!“
Hvetur Magnús nemendur til
að fylgjast með heimasíðu
skólans frá næstu helgi en þá
munu nánari upplýsingar
birtast um upphaf skólaársins!
253 teknir inn í Flensborg
73% umsækjenda völdu Flensborg sem fyrsta val
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
Frábær frammistaða ríkis -
stjórnar undir stjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra
og formanns Samfylkingar er að
koma í ljós.
Er það í anda Jafn -
aðarmanna að kreysta
sem mest og fyrst
útúr eldri borg urum
allt sem mögu legt er?
Ríkis stjórnin sendi
okkur kveðjuna um
mánað ar mót júní/júli
gegn um Trygg ingar -
stofn un ríkisins. Þeir
sem höfðu t.d. lámarks greiðsl ur
frá TR fengu skerðingar upp á
nokkrar tugi pró senta. Atvinnu -
möguleikar skert ir eða sama
sem, það erum við eldri borgarar
sem erum aðalhjól þeirra er
greiða skulu skuldir Íslands, eða
það virðist vera þannig.
Hvað mundu t.d. kennarar,
heil brigðisstéttir já sjálfir þing -
menn og ráðherrar og allt stjórn -
arliðið segja ef skerðingar upp á
27% kæmu bara sí svona á laun
þeirra? Það er sú upphæð er
undirritaður upplifði í skerðingu
frá háttvirtri ríkisstjórn. Fólk
sem búið er að þræla í gegnum
lífið og greiða alla skatta af
launum sínum gegnum tíðina er
svo hundelt er það kemur á efri
ár, og þá helst af vinstri stjórn,
sem menn ættu að halda að
hugsaði frekar um
hag eldri borgara. Á
sama tíma eru þó
nokkrir, er gáfu upp
tak mark aðan hluta
launa látnir njóta allra
hlunninda sem TR
veitir.
Mér segist svo hug -
ur að haustið verði
mjög heitt, þ.e.a.s. að
baráttan geti orðið hörð hjá eldri
borg urum til að halda sínum
réttindum. Við munum ekki
enda laust láta vaða yfir okkur
það kemur að því að uppúr
sýður, með sama áfram haldi.
Ekki eigum við þátt í efna -
hagshruninu hér á landi, en það
virðist sjálfsagt að leita fyrst á
garðinn þar sem hann er einfald -
astur og lægstur. Meðan lítið
sem ekkert gengur að fanga þá,
er sann arlega stóðu fyrir
bankahruninu síðastliðið haust.
Er þetta hið nýja Ísland?
Höfundur er formaður
Félags eldri borgara
Hafnarfirði.
Er þetta í anda Jafnaðarmanna?
Jón Kr. Óskarsson
Hafnfirðingar
athugið!
Strandgötu 37 • sími 565 4040
• Gerum við skartgripi.
• Gyllum og hreinsum.
• Rafhlöðuskipti á staðnum.
• Gerum göt í eyru.
www.lovedsign.is • www.nonnigull.is
F
ja
rð
a
rp
ó
s
tu
ri
n
n
0
9
0
8
Verslum í heimabyggð!
Nýr pítsustaður var opnaður á
horni Flatahrauns og Skúta -
hrauns í júní sl. Að sögn Einars
Þorsteinssonar var hugmyndin
að fara af stað með pizzastað
sem notaði eins mikið af ís -
lensku hráefni og hægt væri.
Þetta var gert með það fyrir aug -
um að reyna að búa til atvinnu
fyrir Íslendinga og það an kemur
nafnið, Pizza Islandia.
Einar, sem er Grindvíkingur
rekur staðinn ásamt konu sinni,
Ásu Maríu Ásgeirsdóttur og
rekur líka pítsastað í Grindavík –
í sjoppu sem hann á og nýtur
hann mikilla vinsælda.
Pítsurnar eru bakaðar í stein -
ofnum og þykja því nær ítölsk -
um pítsum í bragði.
„Allt grænmeti er keypt beint
af bóndanum þar sem að því er
komið við, kjöt er frá Ali og
osturinn er íslenskur. Við leggj -
um áherslu á að hafa verðið lágt
og reynum að veita góða þjón -
ustu“, segir Einar og segir stað -
inn hafa fengið góðar móttökur.
Húsnæðið er rúmgott, tekur um
60 manns í sæti og næg bíla -
stæði. Fólk getur valið um að
borða á staðnum eða taka píts -
urnar með heim. Fyrir bolta -
áhugamenn býður staðurinn upp
á boltann í beinni á stórum skjá.
Pizza Islandia fer vel af stað
Hjónin Einar og Ása María á
Pizza Islandia.
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
L
jó
s
m
.:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n
KFC staðurinn hefur ávallt verið
snyrtilegur.
Þrastarás 27.
Eigendur: Þorlákur og Unnur.
Brekkuhvammur 10.
Eigendur: Kristinn og Guðrún.
Fjórbýlishús að Suðurgötu 90-92.
Norðurvangur 21.
Eigendur: Guðmundur og Elísabet
Lækjarberg 46.
Eigendur: Guðmundur og Hrafnhildur.
Verðlaunagarðar 2009
Á forsíðu má sjá garðinn að Móabarði 28. Eigendur eru Guðleifur og Hildur.
L
jó
s
m
y
n
d
ir
:
G
u
ð
n
i
G
ís
la
s
o
n