Fjarðarpósturinn - 01.12.2011, Page 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 1. desember 2011
Deiglan - Dagskráin á næstunni
Opið mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10-14
Deiglan Strandgötu 24 Sími: 565 1222 deiglan@redcross.is raudikrossinn.is/hafnarordur
Mánudaginn 5. des. Tálgun í umsjón Ólafs Odssonar
Miðvikudaginn 8. des. Raul söngæfingar
í umsjón Kjartans Ólafssonar
Mánudaginn 12. des. Leðurtöskugerð
í umsjón Helgu Rúnar
Deiglan verður með markað á laugardögum fyrir jól
Mánudagar
Fastir dagskrárliðir Deiglunnar
Miðvikudagar kl. 10 -14 Gönguhópurinn Röltarar og menning
kl. 13 -15 Ferilskrárgerð
Föstudagar kl. 10 -14 Þjóðmálahópur og Matarlist
kl. 10 -14 List og handverk
Fimmtudagar
Deiglan er opin fyrir atvinnuleitendur
Alþingi hefur samþykkt sölu á
hlut ríkisins í Byr hf. til Íslands
banka og allri samningagerð er
nú lokið. Með því er ljóst að
Íslandsbanki og Byr munu
sameinast, en áður höfðu Fjár
málaeftirlit, Samkeppniseftirlitið
og Eftirlitsstofnun EFTA veitt
samþykki sitt fyrir kaupunum.
Íslandsbanki kaupir 11,8% hlut
íslenska ríkisins og 88,2% hlut
skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða
króna.
Undir merkjum
Íslandsbanka
Bankarnir tveir munu samein
ast undir merkjum Íslandsbanka
og mynda öflugt fjármála fyrir
tæki þar sem áhersla er lögð á
framúrskarandi og persónulega
þjónustu, eins og segir í tilkynn
ingu frá Íslandsbanka.
Sameinaður banki mun byggja
á ríkri sögu sem nær allt aftur til
ársins 1875 en þá var Sparisjóður
Álftaneshrepps stofnaður, en hét
síðar Sparisjóður í Hafnarfirði.
Starfsemi hans lagðist af árið
1900 en var svo lagður inn í
Spari sjóð Hafnarfjarðar sem var
stofnaður 1902. Þá var Spari
sjóður Arnarneshrepps stofnaður
árið 1884 en hann sameinaðist
síðar Sparisjóði Norðlendinga
ásamt Sparisjóði Glæsibæjar
hrepps. Sparisjóður Kópavogs
var stofnaður 1954 og Spari
sjóður vélstjóra árið 1961. Þessir
sparisjóðir sameinuðust síðan
undir merkjum Byrs á árunum
20072008 sem var svo bjargað
frá gjaldþroti af íslenska ríkinu
eftir bankahrun.
Íslandsbanki hinn gamli var
stofnaður að frumkvæði erlendra
aðila árið 1904 með það að
mark miði að veita fjármagni í
iðnað og sjávarútveg á Íslandi.
Íslandsbanki hefur alla tíð síðan
verið leiðandi banki í sameiningu
og hagræðingu á íslenskum fjár
málamarkaði. Er skemmst að
minnast sameiningu Alþýðu
banka, Iðnaðarbanka, Útvegs
banka og Verzlunarbanka undir
merkjum Íslandsbanka árið 1990
sem síðar varð Glitnir. Nýi
Glitnir, síðar Íslandsbanki var
svo stofnaður úr rústum Glitnis
eftir bankahrunið.
Öflugt fjármálafyrirtæki
Sameinaður banki byggir því á
hartnær 130 ára sögu spari sjóða
annars vegar og rúm lega 100 ára
sögu Íslandsbanka hins vegar.
Með sameiningunni á að nást
fram mikilvæg hagræðing á ís
lenskum fjármálamarkaði sem er
liður í uppbyggingu hans. Efna
hagsreikningur sameinaðs banka
verður um 814 milljarðar króna og
eiginfjárhlutfall bank ans, miðað
við samrunareikning, er vel yfir
20% en núverandi lág marks krafa
Fjármála eftir lits ins er nú 16%.
Sameining útibúa
Útibú verða sameinuð og í
Hafnarfirði sam einast útibúin í
húsnæði Byrs í febrúar.
Viðskiptavinir Byrs hf. geta
áfram notað alla innláns reikn
inga, greiðslukort og heima
banka eins og áður, sem og aðra
þjónustu. Stefnt er að því að
sam einingarferlinu ljúki á fyrstu
mánuðum næsta árs.
„Ég fagna þessum tímamótum
um leið og ég býð nýja við
skiptavini og starfsfólk velkomið
í sameinaðan bank,“ segir Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslands
banka. „Sameining Íslandsbanka
og Byrs þýðir að við erum orðin
eitt öflugasta fjármálafyrirtæki á
Íslandi. Í krafti stærðarinnar
von ast ég eftir að við getum veitt
við skiptavinum okkar enn betri
fjármálaþjónustu. Sameiningin
hef ur auk þess í för með sér
ákveðna hagræðingu sem er afar
mikilvægt skref í endurupp bygg
ingu íslenska fjármálakerfisins.
Fyrirtækin eiga sér merka sögu,
sterk gildi og fyrirtækjamenning
þeirra er mjög áþekk. Við mun
um leggja áherslu á að taka það
besta úr hvorum banka og
mynda eina öfluga heild.“
Jón Finnbogason, forstjóri
Byrs segir að nú sé óvissutíma
um framtíð Byrs lokið og að nú
skapist því tækifæri til að horfa
til framtíðar og byggja upp sterkt
og traust fjármálafyrirtæki.
„Bank arnir falla vel hver að
öðrum, bæði hvað varðar góða
þjónustu og staðsetningu útibúa.
Síðastliðin þrjú ár hafa verið
óvissu tími fyrir starfsmenn og
viðskiptavini Byrs. Ég vil þakka
þeim fyrir þá tryggð sem þeir
hafa sýnt bankanum á þessum
tíma,“ segir Jón.
Sl. þriðjudag var svo 42 starfs
mönnum sagt upp störfum.
Sameining Byrs hf. og
Íslandsbanka samþykkt
Kaupverð 6,6 milljarðar króna - 42 sagt upp
islandsbanki@islan
dsbanki.is
www.islandsbanki
.is
Sími 440 4000
Ljósin verða afgreidd
frá og með 16. desember
til og með 23. desember.
Opið kl. 13-19 alla daga
Lokað aðfangadag.
Jólaljósin
í Hafnarfjarðarkirkjugarði
Jólaljósin ehf.
sími 692 2789
Ingibjörg Jónsdóttir
Jólafundur
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
verður haldinn mánudaginn 5. desember
í húsi Samfylkingarinnar að Strandgötu 43.
Húsið opnað kl. 20.30.
Hallgrímur Helgason rithöfundur mun lesa
upp úr bók sinni Konan við 1000°.
Lovísa Christinansen, framkvæmdastj.
Krýsuvíkursamtakanna flytur jólahugvekju.
Þórður Marteinsson og Stígur Herlufsen,
spila létta jólamúsik.
Heitt kakó og kökur.
Hlökkum til að sjá ykkur í jólaskapi.
Jólanefndin
Jólafundur
Sjálfstæðisfélagsins Fram
verður haldinn 9. desember kl. 18-20
að Norðurbakka 1
Léttar veitingar og ljúfir tónar
Allir velkomnir
Jólamorgunkaffi barnanna
í Sjálfstæðishúsinu Norðurbakka 1,
10. desember kl. 10-12.
Piparkökumálun, kakó og vöfflur
Allir velkomnir
Sjálfstæðisfélagið Fram Hafnarfirði