Fjarðarpósturinn - 26.04.2012, Síða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 26. apríl 2012
Fjarðarpósturinn, bæjarblað Hafnfirðinga
vettvangur fyrir skoðanaskipti bæjarbúa • www.fjardarposturinn.is
Sjálf stæðis
menn skipta
aftur um mann
Það getur verið skemmtilegt
að fylgjast með pólitíkinni.
Eins og menn vita kjósum við
fólk til að sitja í bæjarstjórn sem
fer með stjórnun bæjarins í
umboði kjósenda. Bæjarstjórn
skipar svo ráð og nefndir og
fyrir kemur að þessi ráð skipa
nefndir. Hins vegar skipa
stjórn málaflokkarnir ekki
nefndir í umboði bæjarins þó
slíkt megi halda við lestur fund
argerðar umhverfis og fram
kvæmdaráðs 18. apríl sl. en þar
er fjallað um byggingar nefnd
vegna framkvæmda í Kapla
krika. Þar stendur: „Nið urstaða
fundar: Sjálf stæðis flokk urinn
skipar Sigurð Þor varðarson í
byggingarnefndina í staðinn
fyrir Valdimar Svav ars son.“
Stutt er síðan Sigurði og
Gunnari Svavarssyni var skipt
út fyrir Valdimar og Margréti
Gauju Magnúsdóttur. Mikill
kurr var meðal sjálfstæðismanna
með þessa aðgerð og virðist
Valdimar oddviti hafa þurft að
láta undan þrýstingi sinna
manna og vék hann því úr
byggingarnefndinni .
„Besta sýningin á stórhöfuðborgarsvæðinu“
✩✩✩✩ Jón Viðar Jónsson - DV
„Ævintýrin gerast enn“
✩✩✩✩ Elísabet Brekkan- Fréttablaðið
„Ég mæli eindregið með þessari sýningu“
✩✩✩ Dr. Gunni - Fréttatíminn
Ævintýri Múnkhásens
Miðasala í síma 565 5900 og á www.midi.is
Næstu sýningar
Fimmtudaginn 26. apríl kl 18.00
Laugardaginn 28. apríl kl 14.00
Uppselt Sunnud. 29. apríl kl 14.00
Fimmtudaginn 3. maí kl 18.00
Sunnudaginn 6. maí kl 17.00
Laugardaginn 12. maí kl 14.00
Laugardaginn 19. maí kl 14.00
Skannaðu QR kóðann til að sjá
sýnishorn úr Múnkhásen.
Í Gafl araleikhúsinu við Víkingastræti
Skipulags og byggingarráð
Hafnarfjarðar hefur ákveðið að
framlengja frest til að skila inn
tillögum í hugmyndasamkeppni
um Dvergslóðina um einn mán
uð eða fram til 2. maí næst
komandi. Meginmarkmið hug
mynda samkeppninnar er að fá
fram sjónarmið og tillögur um
þróun svæðisins sem síðar
verða útfærðar nánar á síðari
stigum þegar farið verður út í
það að vinna deiliskipulag að
reitnum. Svæðið hefur mikla
sögulega skírskotun, en tré
smiðjan Dvergur var ein þeirra
fyrstu húsa sem rafvædd voru á
Íslandi árið 1904.
Gögn á síðu bæjarins
Hægt er að nálgast öll gögn
um samkeppnina á heimasíðu
Hafnarfjarðarbæjar, en í keppn
is lýsingu kemur m.a. fram að
gert sé ráð fyrir að sú upp bygg
ing eða breyting sem verður á
svæðinu verði í góðu samræmi
við umhverfið og endurheimti
eða taki mið af þeim einstaka
karakter sem er í byggðinni við
Hamarinn og auki gæði mið
bæjarins í heild. Lóðin býður
upp á ótal möguleika s.s. fyrir
íbúðir, stofnanir, útivistarsvæði
eða blandaða notkun.
Allir geta tekið þátt
Hugmyndasamkeppni er
leið beinandi um skipulagsgerð
á svæðinu en sérstök dómnefnd
mun velja fimm áhugaverðustu
tillögurnar og verða þær kynnt
ar opinberlega í tengslum við
afmæli bæjarins þann 1. júní
næstkomandi. Tillögum má
skila inn til þjónustuvers Hafn
ar fjarðar við Strandgötu 6, eða í
afgreiðslu Skipulags og bygg
ingarsviðs að Norðurhellu 2.
Sigríður Björk Jónsdóttir, for
maður skipulags og byggingar
ráðs hvetur íbúa Hafnarfjarðar
og aðra áhugasama til að skila
inn tillögum á fjölbreyttu formi,
enda sé hér um hug mynda
samkeppni að ræða sem allir
geta tekið þátt í.
„Það er vonandi að sem flestir
taki þátt og nýti þetta tækifæri
til að hafa áhrif á þróun byggðar
í miðbæ Hafnarfjarðar.“
Framtíðaruppbygging á Dvergsreitnum
Skilafrestur framlengdur til 2. maí
Horft að Dvergshúsinu frá Grundartúni við Austurgötu.
Skipulagssvæðið. Séð yfir svæðið áður en Dvergur var byggður.
Lj
ós
m
yn
d
í e
ig
u
B
yg
gð
as
af
ns
in
s
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Landsbankinn styður FH
Guðrún S. Ólafsdóttir, útibússtjóri Landsbankans og Lúðvík
Arnarsson, varaformaður knattspyrnudeildar FH handsöluðu 2 ára
styrktarsamning sl. þriðjudag. Sagði Lúðvík samninginn mjög
mikilvægan fyrir starfið og ánægjulegt að ganga til samstarfs við
Landsbankann á ný.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju
Dómkórinn í Reykjavík
miðvikudaginn 2. maí kl. 20
Á efnisskránni eru íslensk kórlög m.a. eftir
Báru Grímsdóttur, Önnu S. Þorvaldsdóttur
ásamt mótettum eftir Duruflé og Bruckner.
Stjórnandi er Kári Þormar
Aðgangseyrir er kr. 1500 en ókeypis
er fyrir börn og ellilífeyrisþega.
Miðasala við innganginn
og aðeins er tekið við reiðufé.