Fjarðarpósturinn - 16.05.2012, Side 8
8 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. maí 2012
vettvangur fyrir skoðanaskipti bæjarbúa
Hafnfirska
fréttablaðið
Hafnarfjarðarkirkja og Víði
staðakirkja hafa tekið up
samstarf um helgihaldið á upp
stigningardag, sem hefur verið
helgaður eldri borgurum undan
farna áratugi. Nú munu þessar
tvær kirkjur hafa eina sam
eiginlega guðsþjónustu fyrir
eldri borgara í sóknunum. Að
þessu sinni fer guðsþjón ustan
fram í Víðistaðakirkju.
Prestarnir þrír munu allir
þjóna við guðsþjónustuna á
fimmtudaginn og sr. Bernharður
Guðmundsson prédikar.
Gaflarakórinn, kór Félags eldri
borgara í Hafnarfirði, syng ur
undir stjórn Kristjönu Þórdísar
Ásgeirsdóttur við undirleik
Arngerðar Maríu Árnadóttur.
Boðið verður upp á veitingar í
safnaðarheimili Víðistaða kirkju
eftir messu.
Rútuferð verður frá Hafnar
fjarðarkirkju kl. 13.15, frá Sól
vangi kl. 13.25, frá Hjallabraut
33 kl. 13.35 og frá Hrafnistu kl.
13.45.
Segja prestarnir þennan við
burð bera vitni um aukna sam
vinnu milli safn aðanna hér í
Hafn ar firði, sem á vafalaust eftir
að birtast á fleiri sviðum safnað
ar starfsins í náinni fram tíð.
Sameiginleg messa
á degi eldri borgara
Sr. Bragi J.
Ingibergsson
Sr. Guðbjörg
Jóhannesdóttir
Sr. Þórhallur
Heimisson
Góðir Íslendingar! Skilum
landinu okkar ósködduðu bæði
til lands og sjávar til afkomenda
okkar. En hvernig? Með því að
kjósa okkur verðugan forseta
sem vill feta í fótspor okkar
ástsæla Ólafs Ragnars
Grímssonar, í einu og
öllu. Við getum ekki
ætl ast til að Ólafur
einn Íslend ing a standi
vörð um auðlindir
lands ins okkar, full
veldi þess og menn
ingu. Allt þetta glatast
með inngöngu í ESB.
Styðjum því með
gleði og glæsibrag við
bakið á öðrum glæsi legum
þjóð höfðingja. Jón Lárusson
vill taka við hinum erfiðu byrð
um, sem hvíla á herðum Ólafs
og leysa dæmið á sama hátt og
Ólafur hefir afrekað að gera í
þeim ólgusjó sem steðjar að
íslenskri þjóð.
Ólafur þarf að fá frið til að
sinna eigin fjölskyldu, börnum
og barnabörnum. Hugsum mál
okkar vandlega þá er við stígum
inn í kjörklefann, því nú er
ábyrgðin okkar að gera alveg
kórrétt.
Jón Lárusson segir; börnin
okkar eru framtíð
Íslands, vernd um þau
fyrir því að þurfa að
gegna herþjónustu
sem næst liggur fyrir
að verði næsta plága
og önnur hætta sem að
Evrópu aðild verður, ef
þjóðin stendur ekki
saman um að vernda
sig.
Þá er traustur vel
menntaður og sterkur maður sá
skjöldur sem þjóðin þarf að
eiga. Og það er einmitt hinn
reyndi yfirrann sóknar lög reglu
maður Jón Lárus son. Þá væri
stigið gæfu spor á okkar dýr
mætustu eign Íslands ins okkar.
Höfundur er bátasmiður,
bifvélavirki og formaður
Framtíðar Íslands.
Kjósum Jón Lárusson
Garðar H.
Björgvinsson
Alveg er þetta dæmigert - þetta
er alltof einstrengingsleg túlkun
hjá þér sagði annar en hinn sagði
ekki rekur mig minni til að hafa
gert svona bindandi samning og
hljómaði dálítið eins og stjórn
málamaður. Þetta voru
tveir starrar í garðinum
hjá mér að svara þeirri
ásökun minni að þeir
stæðu aðeins við þann
hluta samningsins að
koma og þiggja matinn
sem ég léti í dallinn
þeirra en ekki við þann
hluta sem snéri að því
að syngja fyrir mig í
staðinn. Annars er
gaman að sjá til þeirra mata sig
því sumir eru svo frekir að þeir
reka aðra starra af veggnum sem
skálin með matnum er á meðan
þeir nærast. Það merkilega við
það er að það er í raun nóg til
handa öllum sem mæta þegar ég
set mat í skálina. Það minnir
dálítið á mannfólkið.
Það var líka athyglisvert að
horfa á fugl ana í Grímsnesinu
kvöldið eftir voðaverkin í Osló
og Útey s.l. sumar. Þessi tún
bleðill sem fylgir sumarbú staðn
um sem ég átti þá er ekki stór og
yfirleitt ekki margir fuglar á stjái
þar en þetta kvöld voru þeir
óvanalega marg ir og það skrýtna
var að þeir voru allir af sitt hvorri
tegundinni. Það hafði ég aldrei
séð áður. Eins og þeir væru að
segja að við getum lifað í sátt þótt
ólík séum. Það var líka boð
skapurinn í uppruna legum texta
lagsins sem Katrín Jakobsdóttir
mennta mála ráð herra söng ásamt
þúsundum ann arra í
Osló 26. apríl s.l. Lagið
samdi Pete Seeg er um
1970 og heitir á frum
málinu „My Rain bow
Race“. Í text an um legg
ur hann áherslu á að við
eigum þessa plá netu,
bláan him ininn, sjó inn
sem sleik ir strend ur
allra heims álfanna og
hina frjó sömu jörð.
Pete bendir á að við leys um ekki
ágreiningsmálin með því að
drepa andstæðinga okkar. Text
anum lýkur hann með því að
hvetja til þess að börn un um sé
sagt að enn sé ekki um seinan að
læra það að okkur ber að deila
með samferðarmönnum okkar
því sem okkur hefur áskotn ast í
lífinu. Boðskapurinn kemur ekki
á óvart því Pete Seeg er var
bandarískt söngva skáld og mjög
iðinn við að syngja söngva gegn
stríði og óréttl æti s.s. „If I had a
hammer“ eða „Where have all
the flowers gone“.
Í Fréttablaðinu fyrir skömmu
birtist greinarstúfur eftir Toshiki
Toma prest inn flytjenda í tilefni
Fjöl menn ingarþings sem haldið
verður í haust. Í greininni segir
hann m. a. frá konu af erlendum
uppruna sem var nýskilin og
leitaði til hans. Hann greiddi
götur hennar og taldi að þar með
væri málinu lokið af hans hálfu
aðeins til að reka sig á að það
sem hún raun verulega þarfnaðist
var að fá að tala við einhvern sem
gæfi sér tíma til að hlusta á hana.
Hann lýkur greininni með því að
fagna því frumkvæði Reykja
víkur borgar að kalla saman um
sextíu innflytjendur til að undir
búa Fjölmenningarþingið í haust
og hvetur fleiri sveitar félög til að
gera slíkt hið sama.
Í Fjarðarpóstinum birtist ekki
fyrir svo löngu frétt um að hér
byggi fólk sem ætti uppruna að
rekja býsna víða um heiminn.
Við erum því í raun fjöl menning
ar samfélag þótt Gaflararnir séu
væntanlega fjölmennastir. Sjálf u r
er ég fyrir tiltölulega stuttu síðan
fluttur hingað þótt það hafi nú
verið á „stefnuskránni á kjör
tímabilinu“ um skeið svona eins
og gerist stundum hjá stjórn
málamönnum okkar. Spurningin
er því hvort ekki sé orðið tíma
bært að fólk í Hafnar firði að
frum kvæði bæjarstjórnar hittist
til að undirbúa hafnfirska full trúa
fyrir þetta Fjöl menningaþing og
tali saman?
Höfundur er kennari við
Mennta skólann við Hamra hlíð.
Er ekki tími tilkominn að tala saman?
Í tilefni fjölmenningardagsins 12. maí s.l.
Björn
Bergsson
Bjartir dagar
framundan
Lista og menningarhátíðin
Bjartir dagar verður haldin í
tíunda skiptið dagana 31. maí
3. júní og er lokadagurinn á
Sjó manndaginn. Á dagskránni
verða fjölbreyttir tónleikar,
mynd listarsýningar, fugla skoð
un, sögusýningar, leik skóla list,
opið á vinnustofum listmanna
og fleira.
Á Björtum dögum er sem fyrr
lögð áhersla á að sem flestir
skapi hátíðina og taka skólar,
leikskólar, veitingahús og
verslanir þátt auk hinna mörgu
listamanna og menningar stofn
ana sem fylla bæinn lífi og list á
þessum bjartasta tíma ársins.
Kannabis
ræktun í fjöl
býlis húsum
Kannabisræktanir eru nú í
auknum mæli settar upp í
fjölbýlishúsum. Í þeim er oft að
finna 20100 kannabisplöntur
en undir starfsemina er lagt
rými sem telur u.þ.b. 2050 fm.
Sá sem að þessu stendur hverju
sinni býr ýmist í íbúðinni eða
notar hana eingöngu fyrir rækt
unina. Iðulega er lagt í mikla
vinnu og kostnað til að fela
ræktunina og því getur reynst
erfitt að greina ummerkin um
hana. Oftast er um leiguíbúðir
að ræða og verða þær ósjaldan
fyrir miklum skemmdum vegna
raka, hita, festinga á ræktunar
búnaði og annars frágangs.
Ef íbúar í fjölbýlishúsum
verða varir einhverra ummerkja
um hugsanlega kannabisræktun
skal tilkynna þær grunsemdir til
lögreglu. Minnt er á fíkniefna
símann 800 5005. Í hann má
hringja nafnlaust til að koma á
framfæri upplýsingum um
fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn
er samvinnuverkefni lögreglu
og tollyfirvalda og er liður í bar
áttunni við fíkniefna vand ann.
Safnabókin
Komin er út í þriðja sinn
Safna bókin Iceland Museum
Guide, þar sem er að finna skrá
yfir söfn, setur og sýningar,
nokkrar höfuðkirkjur, þjóð garða
og valin hús úr húsa safni Þjóð
minjasafnsins.
Hugmyndin með Safna bók
inni er að auðvelda ferða mönn
um að finna menningar lega
af þrey ingu vítt og breitt um
landið og fá á einum stað upp
lýsingar um staðsetningu, opn
unartíma og hvað einstakir staðir
hafa uppá að bjóða.
Bækurnar eru tvær, ein á ensku
og önnur á íslensku. Bók unum er
dreift á söfn, upplýsinga mið
stöðvar, hótel og N1 stöðvar.
Safnabókin sér um uppfærslu
á ferðaþjónustusíðu ja.is sem
nefnist Já Iceland Travel guide
og er slóðin www.i.ja.is og á
smá forritið MyIceland sem er nú
fáanlegt í snjallsíma. Öll opin
söfn á vegum ríkisins eru þátt
takendur í bókinni, nánast öll
opinber söfn og mikill meirihluti
einkasafna og setra.
Vörubílar, trailerar,
gámaflutningabílar og kranabílar
Getum útvegað mold, sand og annað fylliefni
Einnig gröfur ef óskað er
Vörubílastöð Hafnarfjarðar • sími 555 0055 • vbh@vortex.is