Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2012
Það verða tíma
mót um þessi ára
mót er nágranna
sveitarfélögum okk
ar fækkar um eitt.
Álftanes verður
ekki lengur sjálf
stætt sveitarfélag er það verður innlimað í
Garðabæ, eða sameinað eins og fínna
þykir að kalla það. Bæjarstjórn Garðabæjar
tekur við stjórnartaumunum og íbúar
Álftaness verða að bíða næstu sveitar
stjórn ar kosninga til að sjá hvort „þeirra“
fólk komist að í bæjarstjórninni.
Fjarðar póst inum hefur verið dreift í hús
á Álfta nesi undanfarin ár en á því verður
líklega breyting enda hefur blaðinu ekki
verið dreift í Garðabæ. Síaukinn kostnaður
við útgáfuna án nokkurra auglýsingatekna
af svæðinu réttlætir ekki þessa auknu
dreifingu en búast má við að enn fjölgi í
Hafnarfirði á næstu árum.
Fjarðarpósturinn er nú kominn á sitt 30.
afmælisár en fyrsti Fjarðarpósturinn kom
út 29. september árið 1983. Er Fjarðar
pósturinn því með langlífari bæjarblöðum.
Blaðamarkaðurinn hefur breyst mikið frá
því fyrir 30 árum síðan og samkeppnin
grimm og mikið um undirboð sem hefur
haldið auglýsingaverði fyrir neðan vel
sæmis mörk. Ýmsum blöðum hefur á
þessum rúmum 29 árum verið dreift í hús
í Hafnarfirði, nær öll hafa keppt með
ódýrum auglýsingum og öll hafa lagt upp
laupana. Lækkandi tekjur blaðanna hafa
kostað margan blaðamanninn vinnuna og
það sést og markaðsöflin ráða meiru og
meiru og mörk auglýsinga og efnis hefur
orðið óljósara en fyrr. Fjarðarpósturinn
hefur reynt að halda þessu vel aðskildu og
selur t.d. almennt ekki fyrirtækja eða
vörukynningar. Hlutfall auglýsinga hefur
þó aukist enda hefur það verið eina leiðin
til að mæta hækkandi kostnaði við aukið
upplag og aukinn annan kostnað.
Öllum þeim sem lagt hafa lið á árinu
sem er að líða eru færðar bestu þakkir,
greinarhöfundum eru þökkuð skrifin,
hinum almenna bæjarbúa sem hefur
hringt, sent tölvupóst eða komið til skila
ábendingum er sérstaklega þakkað og
auglýsendum er þakkað ánægjulegt
samstarf. Án þeirra væri svona útgáfa ekki
möguleg. Sem betur fer hafa sífellt fleiri
áttað sig á auglýsingamætti bæjarblaðanna,
ekki síst þeirra sem fest hafa sig í sessi eins
og Fjarðarpósturinn sem á sér gríðarlega
tryggan lesendahóp.
Árið hefur verið viðburðarríkt, aldrei
hafa fleiri blaðsíður verið í Fjarðarpóstinum
á einu ári og auglýsingasalan er meiri en
nokkru sinni fyrr. En upplagið er nú um
70% meira en þegar núverandi rekstrar
aðilar tóku við Fjarðarpóstinum fyrir um
11 árum og þá var aðeins helmingur
blaðsins prentaður í lit og hvert blað var
mun minna en meðalblað er í dag.
Ritstjóri og útgefendur Fjarðarpóstsins
óska lesendum sínum og viðskiptamönn
um gleðilegrar jólahátíðar og þakka
samstarfið á árinu sem er að líða.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
HelgiHald í söfnuðum Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði
Ástjarnarkirkja Hafnarfjarðarkirkja Víðistaðakirkja
www.astjarnarkirkja.is www.hafnarfjardarkirkja.is www.vidistadakirkja.is
Prestur: Sr. Þórhildur Ólafs.
Aðfangadagur jóla, 24. desember
Aftansöngur kl. 18
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
Barböru kórinn syngur.
Einsöngvari: Auður Guðjohnsen.
Miðnæturguðþjónusta kl. 23.30
Karlakórinn Þrestir syngur.
Stjórnandi: Jón Kristinn Cortez.
Organisti: Bjartur Logi Guðnason.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarmessa kl. 14
Organisti: Guðmundur Sigurðsson
Barbörukórinn syngur.
Einsöngvari: Þóra Björnsdóttir.
Hátíðarguðsþjónusta
á Sólvangi kl. 14
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja
Gamlársdagur, 31. desember
Aftansöngur kl. 18
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
Barböru kórinn syngur.
Einsöngvari: Ásgeir Eiríksson.
Nýársdagur, 1. janúar
Hátíðarmessa kl. 14
Ræðumaður: Gunnlaugur Sveinsson,
gjaldkeri sóknarnefndar.
Organisti: Guðmundur Sigurðsson.
Barböru kórinn syngur.
Einsöngvari: Örvar Már Kristinsson.
Helgihald
um jól og áramót
Aðfangadagur jóla, 24. desember
Aftansöngur kl. 17
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Sólveigar Önnu Aradóttur.
Barna- og unglingakór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur.
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð
Steingrímsson barítón.
Óbó: Matthías Nardeau
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Miðnæturguðþjónusta kl. 23.30
Flensborgarkórinn syngur undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg.
Organisti: Árni Heiðar Karlsson.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Sólveigar Önnu Aradóttur.
Einsöngur: Anna Jónsdóttir sópran
Prestur: Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir
Gamlársdagur, 31. desember
Aftansöngur kl. 17
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Sólveigar Önnu Aradóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Helgihald
um jól og áramót
Aðfangadagur jóla, 24. desember
Fjölskyduguðsþjónusta kl. 16
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir syngur einsöng
Helga Þórdís Guðmundsdóttir annast undirleik
Prestur er sr. Kjartan Jónsson
Aftansöngur kl. 18
Helga Þórdís Guðmundsdóttir
leikur á píanó frá kl. 17.30
Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur
Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngur einsöng
Hátíðartón sr. Bjarnar Þorsteinssonar verður flutt
Prestur er sr. Kjartan Jónsson
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu
Þórdísar Guðmundsdóttur
Prestur er sr. Kjartan Jónsson
Eldriborgarastarf
hefst í kirkjunni 17. janúar kl. 14
Gleðileg jól!
Hafnfirska
fréttablaðið
Útgefandi: Keilir ehf. útgáfufélag
kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2,
220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.,
umbrot@fjardarposturinn.is
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613,
ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066,
auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf.
Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169
Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
www.issuu.com/fjardarposturinn