Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2012 Ég var krakki þegar við leik­ félagarnir byrjuðum að vinna á bryggjunni í Hafnarfirði. Ætli ég hafi ekki verið 12 ára gamall. Man að pabbi hringdi niður á kontór til Jóns og spurði hvort launin gætu staðist, jú þetta var lægsti taxti sem var 80% af fullorðinslaunum. Þetta slagaði hátt í laun in hans pabba í bankan um. Strákarnir í vestur­ bæn um í Hafnarfirði voru duglegir, hörku­ duglegir, þó svo við værum krakkar. Unnið var til sjö að kveldi og laug ardaga frameftir degi. Við þvoðum lestarborðin, stíuklampa, steisklampa ofl, sem kom upp með troginu þegar leið á löndun. Þetta var alltaf svona á sumrin en skóli á veturna. Það var oft að við fengum vinnu um páska og í jólafríum, alltaf gott að fá aur. Í bænum sást varla fólk á ferli, allir voru að vinna í Bæjarút gerð­ inni, nema í hádeginu og kvöld­ matnum, þá flykktust konurnar í stígvélum og hvítu jökkunum heim til að elda oní karlana og svo til baka. Á sunnudögum var svo þrjú bíó í Bæjarbíó. Lífið var ein­ falt. Togari seldur úr bænum Árin liðu í vesturbænum og alltaf fórum við bræðurnir með launaumslögin til mömmu á föstudögum, ekki þurfti ég pening þangað til ég fór til tannlæknis í Reykjavík, Eiríkur tannlæknir í Hafnarfirði var með fótknúin bor. Þetta var í þá tíð að unglingar fengu sumir falskar tennur í ferm­ ingargjöf. Svo gerðist eitthvað, aflinn minnk aði, togarinn Maí varð þung ur í rekstri og deilur stóðu um Bæjarútgerðina. Eitt sinn las ég svo í blaðinu að búið væri að selja togarann norður, það var alvarlegt fannst mér unglingnum. Sú saga flaug um bæinn að bæjarfull­ trúarnir höfðu verið svo vitlausir að láta veiðafærin með án þess að verðleggja þau sérstaklega. Manni fannst eitthvað vera að þessu öllu. Maður hafði alltaf haldið að þetta væri það sem bjargaði Íslandi og okkur frá fátæktinni. Í þá tíð var stagað í sokka, skyrtukrögum snúið við ef slitnuðu, engu hent og aldrei tekið lán, það var enginn peningur til. Epli voru um jólin og útlenskt var framandi. Þá var sko kreppa. Síðan komu nýjar veiðireglur og Maí fékk kvótann, sem Hafn­ firðingar höfðu unnið fyrir. Ég ímynda mér að mörg sjávarplássin hafi lent í því sama, að missa fiskvinnsluna frá sér meira eða minna, með einum og öðrum hætti. Sum staðar er þó enn vinnsla í landi en ótraust og oft rétt til að það sé lífvænlegt í mörgum plássum. Mörg pláss hafa selt frá sér kvótana með loforð um að landað yrði í plássinu. Það hefur verið illa efnt af útgerðarmönnum. Við kunnum og getum þetta Mér gremst að til sé kvótakerfi, þar sem hægt er að taka af þorp­ unum aldagamlan rétt til að geta lifað í plássinu, að lifi brauðið sé tekið af okkur í nafni hagræð ingar í vinnslu. Svo er okkur boðið uppá álver í staðinn. Það er eitthvað að, þegar bæjarfull trú arnir ætla enn og aftur að hafa vit fyrir okkur. Björg inni hefur verið rænt frá þorpunum, með hjálp bæjarstjórna, ríkis­ stjórna að frum kvæði útvegs­ manna. Álver duga ekki, þau eru tál sýn. Sam félagslegt tjón er ekki metið því það er ekki verið að reikna svo leiðis hluti. Höfnin, göturnar, frystihúsin, skólarnir og húsin sem fólkið fjárfesti í standa tóm. Það var ekki reiknað hvað það kostaði samfélagið að taka burtu sjálfs björgina. Sagði ekki forsætis ráðherra Davíð Oddsson að það þyrfti að aðstoða fólk í fámennum byggðarlögum að flytjast suður? Honum fannst það raunhæft. En okkur? Ég veit ekki hvernig þetta gerð­ ist, að við hættum að hugsa um hvað héldi byggðinni uppi umhverfis landið. Kannski að spilltir stjórnendur höfðu skipt með sér gæðunum, Framsóknar­ menn áttu landbúnaðinn og Sjálf­ stæðismenn fiskinn og svo urðu menn gráðugir. Ég veit það ekki, en ég veit að himnarnir hrynja ekki ef útgerðarmenn verða að borga gjald af auðlindinni og ég veit að fólkið sem býr í fámennum sveitarfélögum umhverfis landið verður ekki í vandræðum með að veiða og vinna fisk eins og á öld­ um áður. Við kunnum þetta og get um alveg bjargað okkur, bara að við fáum að gera það án þess að björginni verði stolið frá okkur aftur. Það þarf að færa aldagamlan rétt byggðarinnar aftur til fólksins sem á auðlindina, annars leggjast fjölmörg pláss niður. Höfundur er fyrrverandi sjómaður og berst með Dögun fyrir uppstokkun laga um stjórn fiskveiða. Lífsbjörginni var rænt frá okkur Ólafur Sigurðsson Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað erSverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 35 ár Stolt að þjóna ykkur Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Útfararskreytingar Við leggjum alúð og metnað í okkar vinnu kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Næsta blað kemur út föstudaginn 4. janúar! Gríðarlega mikil leðja sest í botn lónsins ofan við Reyk­ dalsstífluna sem endurbyggð var árið 2005. Þá var miklu magni ekið í burtu og lónið dýpkað. Til að minnka leðjuna er hleypt úr lóninu með jöfnu millibili og reynt er að gera það árlega. Þá flýtur hluti af leðjunni með vatninu og endurnar kætast því greinilega er mikið af nær­ ingar efnum í henni. Nýlega tæmdu starfsmenn Hafnar fjarð­ ar bæjar lónið og ljós mynd ari Fjarðarpóstsins fylgdist með. Reykdalslónið hreinsað Endurnar komust í feitt er þær grófu í leðjuna Vatnið fossaði út þegar lokurnar voru dregnar upp. Guðjón Steinar Sverrisson verkstjóri skrúfar frá og Björn Bøgeskov Hilmarsson yfirverkstjóri fylgist með. Mörgum fiskum var bjargað úr þurrum lækjarfarveginum. Tómt lónið og enn leðja. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Jólagleði eldri skáta við Hvaleyrarvatn Lj ós m .: Vi gn ir G uð na so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.