Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Page 10
10 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2012
Fjörukráin og Hótel Víking óskar öllum viðskiptavinum, sem og öllum
landsmönnum, gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Minnum á skötu og jólahlaðborðið á Þorláksmessu,
eldhúsið opið frá klukkan 12.00 til 22.00.
Verð 3.700,- per mann.
Víkingastræti 1-3
220 Hafnarfjörður
Tel.: 565-1213
Fax: 565-1891
vikings@fjörukrain.is
www.fjörukrain.is
Þrír sunnudagar aðventunnar eru
liðnir. Sá fjórði framundan. Við höfum
vonandi flest notið aðventunnar og haft
tækifæri til að undirbúa okkur fyrir
komandi hátíð. Mörg félög hafa haldið
aðventu- og jólafundi, til þess að horfa
fram til þess mikla erindis sem jólin eiga
við okkur.
Það ríkir eftirvænting á aðventunni –
það líður að tíðum, líður að helgum
tíðum – þá kemur Guð til okkar sem
barn í jötu með huggun kærleiks síns.
Heilög návist hans gefur okkur lifandi
von. Það lífssvið sem barnið í Betlehem
lauk upp með komu sinni í þennan heim
er bjart. Þrátt fyrir það finnast skuggar
víða í veröldinni. Við leiðum hugann að
því hvað það er margt á hverri tíð sem
getur villt mönnum sýn. Hugsanlega
hafa þeir ekki laðast að ljósinu, heldur
dregist að dimmu sem veldur miskunnar-
og vægðarleysi.
Við búum okkur undir að horfast í
augu við ljósið Hans sem kemur til
okkar á jólum í mynd vanmáttugs barns
til þess að vera ljós heimsins. Það sem
blasir við í barninu í jötunni og boðskap
helgra jóla birtir innsta eðli tilverunnar.
Jesús vísar okkur veg til lífs og elsku.
Í Markúsarguðspjalli segir: „Greiðið
veg Drottins, gerið beinar brautir hans“.
Það getum við gert með því að hlusta á
Orðið hans, festa það í hug og hjarta svo
að það geti umbreytt okkur. Íhugunarefni
aðventunnar vekja okkur til umhugsunar
um stöðu okkar gangvart þeim frelsara
sem kom, kemur og mun koma. Leynd-
ardómur kristinnar kirkju felst í því að
hún er samfélag manna sem hafa falið
sig hinum hógværa, sterka, góða vilja,
þegið í trú náð hins krossfesta og upp-
risna.
Aðventan líður hratt. Í boðskap hennar
erum við minnt á nauðsyn iðrunar og
endurmats, minnt á að gleyma ekki hag
þeirra sem búa við bágindi og liðsinna
þeim. Aðventuljósin minna okkur á
ljómann sem skín í myrkrinu fyrir
miskunn Guðs. Menn þrá að fegurð ríki
á jólum og myrkrið hörfi á braut. Það
var þó ekki fjarri á fyrstu jólunum og
kom fram í lævísi og grimmd Heródesar.
Það er það heldur ekki nú. Þótt hátíð
ljóss og friðar sé í vændum er ekki alls
staðar friðvænlegt í heiminum. Myrkrið
hefur enn ekki tekið við ljósinu þó að
það verði um síðir undan að láta. Jesús
Kristur er ljós heimsins sem gleggst
kemur fram andspænis öllu því myrkri
sem í heiminum er. Hann er ljós heimsins
þó að menn bregðist honum og sinni
ekki sem skyldi sannleiks- og kær leiks-
kröfu hans; sýni ekki þann kjark og það
kærleiksþrek sem þarf til að lifa í ljósinu
hans bjarta. Það verður ekki metið á
okkar sjónarsviði, hve þýð ingarmikil
áhrif það hefur að geta lifað í ljósi hins
krossfesta og upprisna Drottins.
En Kristur og kærleikskraftur hans
vísa veginn fram og greiða braut að ríki
hans. Jötubarnið sem jafnframt er hinn
krossfesti frelsari upprisinn og nálægur
á við okkur stöðugt erindi til þess að lýsa
upp næturhúm og skugga. Mætti ljósið
hans vera yfir okkur, jólin verða okkur
gleðirík og fögnuður þeirra fylgja okkur
um ársins hring.
Sr. Þórhildur Ólafs
Sr. Þórhildur Ólafs, settur prestur í Hafnarfjarðarkirkju:
Hátíð
Helena best í
körfubolta
Hafnfirðingurinn Helena
Sverrisdóttir hefur verið valin
körfu knattleikskona ársins og
Jón Arnór Stefánsson körfu-
knattleiksmaður ársins 2012 af
Körfuknatt leikssambandi
Íslands.
Helena er nú á sínu öðru ári
hjá Good Angels Kosice frá
Slóvakíu en liðið er lang sterk-
asta lið Slóvakíu og leikur í
Meistaradeild Evrópu. Áður lék
hún fjögur ár með TCU
há skólanum í Banda ríkjunum.
Helena varð fyrsta konan frá
Íslandi sem spilar í Meistara-
deild Evrópu á síðustu leiktíð
og er lið hennar um þessar
mundir efst í sínum riðli í þeirri
keppni.
Helena lék með landsliðinu á
Norðurlandamóti kvenna og
var hún valin í úrvalslið móts-
ins.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n