Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Side 12

Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Side 12
12 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2012 Hamborgarhryggur er vinsæll jólamatur á íslenskum heim­ ilum. Jón Örn Stefánsson í Kjötkompaníinu gefur hér lesendum Fjarðarpóstsins góð ráð við eldamennskuna sem á að tryggja vel heppnaða jóla­ máltíð. Jón Örn og félagar hafa sérhæft sig í að bjóða eingöngu fyrsta flokks kjöt og fullunnar vörur. Hamborgarahryggur 2,5 kg hamborgarhryggur frá Kjötkompaní. Aðferð: Hryggurinn er soðinn rólega í ca 60 mínútur, gott er að nota kjarnhitamæli og sjóða hrygg­ inn í 65°C í kjarna síðan er vatnið tekið frá og gljáinn og ananashringir sett á hrygginn og hann bakaður í 72°C í kjarna Karmellugljái 1 bolli sykur ½ bolli vatn ¼ bolli rjómi 2 msk. rauðvín Aðferð: Sykur og vatn hitað saman á pönnu, látið sjóða þar til syk­ urinn er orðinn ljósbrúnn á lit, þá er rjóma og rauðvíni bætt sam an við. Rauðvínssósa 150 g smjör ½ tsk. pipar 1½ l soð af hamborgar­ hryggnum 1 bolli rauðvín 1 bolli rjómi Kjötkraftur 2 tsk. púðursykur Smjörbolla (ca 110 g hveiti/ 75 g smjör) Aðferð: Soðið af hryggnum er sett í pott, bætið rjóma, rauðvíni og kryddi saman við og þykkið með smjörbollu. Waldorfsalat Hráefni: 4 stk. græn epli 1 stk. sellerístöngull 30 g majones 50 g sýrður rjómi 2½ dl rjómi 15 stk. ca. blá vínber 2 msk nýkreistur appelsínusafi 2 msk flórsykur Aðferð: Majones og sýrðum rjóma er hrært saman. Síðan er rjóminn þeyttur og blandað saman við ásamt vínberjum. Eplin og sellerí skorið í teninga og bland að saman við, þetta er síð­ an bragðbætt með flórsykri og appelsínusafa. Sl. föstudag opnaði Frumherji nýjan prófstað fyrir almenn ökupróf í Hafnarfirði, en þar hefur ekki verið boðið upp á ökupróf í 27 ár, eða síðan 1985. Nýi prófstaðurinn er við Dals­ hraun 5, þar sem ný skoð­ unarstöð Frumherja er einnig til húsa. Innréttað hefur verið sér­ stakt rými í næsta húsi við skoð u narstöðina fyrir skrifleg próf, en afgreiðslan fer fram í skoð unarstöðinni fyrir bæði skrifleg og verkleg próf. Með þessu vill Frumherji stytta leið Hafnfirðinga, Garð­ bæinga og nágranna í ökupróf og bæta þjónustuna við íbúa svæðisins. Prófað verður einn dag í viku, á föstudögum, fyrst um sinn. Skrifleg próf verða kl 8.15 og verkleg próf frá kl 9.15. Hægt er að panta í próf í síma 570 9070. Ökupróf á ný í Hafnarfirði Hefur ekki verið hægt að taka próf á bíl í Hafnarfirði í 27 ár! Fyrsti nýbakaði ökumaðurinn í Hafnarfirði, Ragnheiður Skúladóttir, ásamt kennara sínum, Hauki Vigfússyni (t.h.), og Óskari L. Högnasyni prófdómara (t.v.) Skötuveisla á Þorláksmessu Boðið verður upp á sterka og milda skötu, tindabikkju, skötustöppu, saltfisk, plokkfisk, síldarrétti, hamsa, hnoðmör, hangiflot og meðlæti. Að sjálfsögðu verða einnig soðnar kartöflur, rófur, smjör, rúgbrauð og jólagrautur í boði. Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 555 1810 Húsið opnað kl. 11.30 Hólshrauni 3, Hafnarfirði • 555 1810 www.veislulist.is Verð aðeins kr. 3.500,- © 2 01 2 Fj ar ða rp ós tu rin n Uppskrift í boði Kjötkompanís Karmellugljáður hamborgarhryggur Jólakveðja, Jón Örn Stefánsson Álfagarðurinn í Hellisgerði gefur út bókina, „Álfheimar Hellisgerðis – Leiðsögn um hulda heima“. Bókin, eins og allt sem tengist Álfagarðinum, er fjölskylduverkefni, því textinn er eftir Ragnhildi Jónsdóttur, ríkulega myndskreytt af dóttur hennar Sirrý Margréti Lárus­ dóttur. Eiginmaður Sirrý Mar­ grét ar, Smári Pálmarsson sá um útlit og umbrot en þau eru bæði grafískir hönnuðir. Lárus Vil­ hjálmsson eiginmaður Ragnhildar og synir þeirra Ragnar og Ástráð­ ur, sjá um dreifingu og fleira. Bókin byggir á álfagöngum Ragnhildar um Hellisgerði. Þarna er gefin einstök sýn í heim sem er flestum okkar hulinn. Við fáum að kynnast daglegu lífi í álf­ heimum og gægjast inn í samfélag náttúruveranna. Í Hellisgerði búa margar verur af mörgum ólíkum tegundum og er þeim gerð skil í bókinni í máli og myndum. Aftast í bókinni er kort af Hellisgerði þar sem merkt er inn hvar verurnar búa. Kortið er einnig hægt að nota fyrir huglægt ferðalag um hina huldu heima. Allar verurnar hafa sín skilaboð að gefa okkur mannverunum. Álfagöngurnar um Hellisgerði hafa verið afar vinsælar af bæði Hafnfirðingum og ferðamönnum víða að úr heiminum. Ragnhildur hefur farið þessar göngur í fylgd æskuvinkonu sinnar huldu kon­ unnar Púldu og vinkonu þeirra, álfkonunnar Ömbu síðastliðin tvö sumur. Í fyrra gaf Álfagarðurinn út bókina „Hvað þarf til að sjá álf?/ What does it take to see an elf?“ eftir álfinn Fróða sem býr í Hellis gerði. Sú bók er sennilega fyrsta bók eftir álf sem kemur út í mannheimum. Álfagarðurinn er opinn eins og Jólaþorpið fram að jólum kl.13­ 18 á laugardaginn og kl. 13­22 á Þorláks messu og þar má nálgast bæk urnar og handverk og list­ muni. Bækurnar eru einnig í sölu í helstu bókabúðum landsins. Nán ar á www.alfagardurinn.is og á facebook. Leiðsögn um hulda heima Sirrý Margrét, Ragnhildur og Smári. Lj ós m .: G un nl au gu r R ög nv al ds so n Fjölbreytt úrval af paté og öðrum forréttum má fá í Kjötkompaní.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.