Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Blaðsíða 24

Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Blaðsíða 24
24 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. desember 2012 Nú nálgast hátíðirnar og það stendur einhvers staðar að öll dýrin í skóginum eigi þá að vera góð hvort við annað. Höfum þá í huga að góð framkoma og kurteisi við alla eru eiginleikar, sem setja manninn framar dýrunum. Það þykir sjálfsagt að þiggja tillitssemi, en það er því miður ekki alltaf svo ef að á að veita hana. Það er ætíð þess virði að hafa gullnu regluna í huga um að gera öðrum það, sem maður vill njóta sjálfur. Það, sem ég vil hér kalla kurteisi sem samnefnara, er ræktun ákveðinna venja/gilda/ reglna, sem menn hafa komið sér saman um að séu mikilvægar fyrir þá sjálfa og samfélagið. Þannig er kurteisi og framkoma milli manna og hópa undirstaða menningar­ samfélaga og undirstaða laga og reglna. Venjan byrjar heimavið Íslendingar geta verið óagaðir og heimtu­ frekir og ekki virðist það batna svo mjög með árunum eða hvað? Venjur skapast fljótt á unga aldri. Höfum í huga að það sem ungur nemur gamall temur. Það vísar ekki á gott að ungdómurinn sé jafn óhlýðinn og agalaus og raun ber oft vitni. Það sést í van virðingu af ýmsum toga t.d. skemmdar­ verkum á eignum þ.m.t veggjakroti, sem eykst stöðugt, ofbeldi eins og að ráðast á fólk og svo er átölum gjarnan mætt með stæri læti og fingurmerkjum. Þetta byrjar auðvitað heimavið í uppeldinu, þegar aðstandendur hafa ekki það sem rétt er fyrir hinum yngri, góða siði, sem þeir viðhafa ef til vill ekki nægilega vel sjálfir. Þannig vilja þeir fullorðnu gjarnan vera þeir verstu í þessum efnum. Leiðbeiningin og mannvitið sitja of oft á hakanum. Vonum samt að allir verði sem friðsælastir á jólunum. Alþingi Þetta þing, sem nú situr, hefur einkennst af átökum, ósamvinnufýsi, þröngsýni og fordómum stjórnvalda. Ekki hefur nefnd kurteisi þvælst fyrir mörgum þing mann­ inum, heldur því miður hroki og yfirlæti. Afleiðingin er, eins og víða hefur verið drepið á, að virðing Alþingis mælist nú mun lægri en nokkru sinni fyrr í sögu þess. Skal það engan undra. Lausnirnar á vandamálum fólksins Almenningur hefur auðvitað orðið fyrir vonbrigðum að á nú næstum heilu kjörtímabili hafi ekki enn verið tekið á helstu baráttumálum hans, þ.e. skuldastöðu hans, atvinnumálum og lægri opinberum álögum. Hægri grænir, flokkur fólksins, kemur því fram á tímum mikilla og stórra vandamála, sem ekki skulu nefnd fleiri hér, þótt risa­ vaxin séu og setja þjóðina í mikla hættu. Nauð syn breyttra viðhorfa, framkomu og aðgerða er mikil sem aldrei fyrr. Enginn hinna stjórnmálaflokkanna virðist hafa nokkra hugmynd um hvernig þeir eigi að snúa sér. En með ítarlegri ígrundun á verk­ efnunum hefur Hægri grænir lagt fram prak tískar lausnir, lausnir sem ganga upp, á þessum vandamálum og þörf landsins fyrir góða kosningu hans í vor er því mikil. Ef að hann kemst ekki til nægilegra áhrifa og nær að koma stefnuskrá sinni að, þá finnst mér einsýnt að illa mun fara fyrir þjóðinni og ég er ekki viss um að skógurinn verði þá svo aðlaðandi fyrir alla, sem í honum búa. Komum því þeirri skipan á að við gerum öðrum það, sem við viljum sjálf búa við. Ég óska öllum gleðilegra jóla og árang­ urs ríks nýs árs. Höfundur er fyrrv. forstjóri. Hugleiðing á jólaföstu Kjartan Örn Kjartansson

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.