Fjarðarpósturinn - 20.12.2012, Side 29
www.fjardarposturinn.is 29 Fimmtudagur 20. desember 2012
Dýr rekstur
Rekstur björgunarsveitar er
gríðarlega dýr. Tækjabúnaður er
mikill sem sífellt þarf að endur
nýja, farartæki eru dýr og sér
hæfð og þau þarf líka að
endurnýja. Nýr fullkominn bún
að ur bætist stöðugt við enda
reynt að nýta nýjustu tækni sem
nýtist við björgun. Til að mögu
legt sé fyrir Björgunarsveit
Hafnar fjarðar að vera viðbúin
og tilbúin í útköll reiðir hún sig
á stuðning bæjarbúa og fyrir
tækja sem m.a. veita starfs
mönn um sínum möguleika á að
fara úr vinnu með engum fyrir
vara. Félagar úr Björg unarsveit
Hafn ar fjarðar ákalla bæj ar búa
og hvetja þá til að
kaupa jóla tré og
flugelda af sveit
inni og styðja
þannig við
sveitina svo hún
geti hjálpað öðrum
– jafnvel þér!
Með sporhund til aðstoðar
Sporhundur sveitarinnar Perla
hefur staðið í ströngu undan
farnar vikur og mánuði.
Grunnþjálfun er lokið, þ.e.a.s.
hún þekkir verkefnið sem ætlast
er til að hún vinni og er áköf í að
leysa það. Þjálfunin er því
komin á næsta stig, útkalls
þjálfun. Nú er hún þjálfuð við
mismunandi aðstæður, innan
bæjar sem utan, í öllum veðrum
og aldur sporanna og lengd er
mis jöfn. Ætlunin er að láta
Perlu þreyta útkallspróf
snemma árs 2013. Margir hafa
aðstoðað með því að ganga
sporin fyrir tíkina en þjálfun
sporhunda er mikið og tímafrekt
starf. Perla var flutt inn á
vormánuðum frá Banda ríkj
unum og varð hún tveggja ára í
júní. Kristín Sigmarsdóttir sér
um þjálfun Perlu og munu þær
þreyta útkallsprófið saman sem
teymi.
Stór hópur tilbúinn
Sveitin er með nokkra
út kallslista og þegar mikið
liggur við er 130 manna listinn
notaður. Við helstu útköll er um
60 manns á útkallslista en mjög
er mismunandi eftir eðli útkalla
hversu marga þarf að senda og
hverja. Auk þeirra sem eru á
útkallslista eru fjölmargir sem
leggja sveitinni lið við sérstök
tækifæri, m.a. í flugeldasölunni
en þar eru dæmi um einstaklinga
sem hafa verið við flugeldasölu
í yfir 30 ár!
Tilbúin
í útkall
Björgunarsveitarfólk kallar á þína
aðstoð! Hvar kaupir þú flugelda?
Stór hópur björgunarsveitarfólks er ávallt viðbúinn að
bregðast hratt við útkalli til að hjálpa öðrum í neyð og
bjarga verðmætum. Á þetta fólk hefur reynt í óveðri, við
eldgos, sjóslys, jarðskjálfta og þegar fólk hefur týnst eða
lent í háska. Alltaf hefur verið hægt að treysta á
sjálfboðaliðana sem hlaupa frá störfum sínum til þess að
hjálpa öðrum. Björgunarsveit Hafnarfjarðar er ein af
þessum öflugu sveitum sem ávallt er viðbúin. Jólatrjáasalan
sem nú stendur yfir og flugeldasalan sem hefst eftir jól eru
stærstu fjáröflunarleiðir sveitarinnar og með því að við,
bæjarbúar beinum viðskiptum okkar til þeirra, getum við
tryggt starf þeirra sem kostar háar upphæðir.
Flugeldasalan
verður opin:
Föstudaginn 28. desember ................. kl. 12 22
Laugardaginn 29. desember .............. kl. 10 22
- Flugeldasýning við höfnina ............. kl. 20.30
Sunnudaginn 30. desember ................. kl. 10 22
Gamlársdag .......................................... kl. 10 16
Jólatrjáasalan
er opin:
til 23. des ............kl. 1021.30
Sveitin hefur á ný fengið sporhund sér til hjálpar.
Flugeldasala
björgunarsveitarinnar
er lífæð starfsins
– Bæjarbúar! Leggjum okkar
skerf af mörkum.