Prentarinn - 01.07.1982, Síða 4
Lýsing við umbrot
og skeytingu
Vinnuvernd
Ljósaborð
• Kaupið Ijósaborð með stig-
lausri stillingu á Ijósstyrk.
Þannig er hægt að stilla þau
eftir kröfum starfsmannsins
sjálfs og verkefnisins.
• Varist að Ijósgjafinn getur
gefið frá sér óþægilegan
hávaða.
• Sumar gerðir Ijósaröra hafa
meiri tilhneigingu til að gefa
flöktandi Ijós en önnur. Flökt
kemur einnig þegar þau
eldast. Neonljós hafa lengri
lífstíma (ca 20.000 klst.) og
flökta ekki þrátt fyrir lítið Ijós-
magn. Flökt kemur fyrst fram
á endum röranna, þá er
ágætt að breiða yfir endana.
• Til varnar hitageislun ættu
Ijósaborðin að vera útbúin
með loftræstingu.
• Annar valkostur við mynda-
seríuna sem fylgir hér er að
borðið sé útbúið þannig að
hægt sé að slökkva og kveikja
á hlutum þess.
• Glerplatan verður að vera
þannig úr garði gerð að hún
endurkasti sem minnstu Ijósi.
Staðsetning loftljósa og/eða
borðsins verður að taka mið
af þessu.
• Borðið sjálft verður að vera
hægt að stilla þannig að hent-
ugastar vinnustellingar verða
fundnar í hvert skipti. Bak-
verkir og hálsrígur eru afar
óþægilegir vinnusjúkdómar,
svo ekki sé talað um
vöðvabólgu í öxlum!
Valkostir
• Við staðlað umbrot á t. d.
dagblöðum og vikuritum eða
bókum, er hægt að hafa still-
anleg vinnuborð án Ijósa. Þá
er borðið gjarnan með gler-
plötu, og málað í Ijósgrænum
lit (endurkastsstig 60%). Um-
brotsörkin er úr möttum
pappír til að draga úr endur-
kastshættu.
# Þá hefur á seinni árum verið
þróað sk. Projectalinerkerfi.
Það samanstendur af filmu,
Ijóskastara og linsu. Fyrst er
útbúið mót af umbrots-
forminu, tekin af því mynd og
negatívunni síðan varpað á
vinnuborðið. Kúnstin felst í
því að halla sér ekki fram, því
þá koma jú skuggar!
Loftlýsing
• Ljósstyrkur í vinnusal skal
vera u. þ. b. 500 lux og still-
anlegur eftir þörfum.
• Ljóminn (luminans) á að vera
mikill og jafn. Vinnusalur er
því málaður í Ijósum litum.
Einkum ber að varast að
starfsmaður við Ijósaborð
hafi dökkan vegg gegnt sér.
Einhæfni í lýsingu og litavali
ber að forðast.
• Hentugt er að láta loftljósin
vísa í hlutföllunum 1:2 upp í
loftið, sem er þá málað í Ijós-
um lit. Þannig verður hættan
á endurkasti af glerplötum í
borðum minni. Skermurinn
er úr heilu, gráleitu og þrí-
strendu akrylplasti. Neðra
borð Ijósastæðanna ca. 2,1 m
frá gólfi og ca 1 m frá hliðum
vinnuborðanna. Þau verður
að vera hægt að slökkva
hvert fyrir sig.
Vanalegar aðstæður við retússeringarvinnu.
Til þess að komast hjá endurkasti af filmu-
bútnum hefur starfsmaðurinn slökkt loft-
Ijósin.
Sterkt Ijósið í borðinu gerir það að verkum
að erfitt er að greina götin í filmunni.
(Augað aðlagar sig að sterkara Ijósinu).
Hér hefur yfirborð Ijósaborðsins verið þakið,
að undanskildum filmubútnum. Nóg er að
klippa út litaða pappírsörk (gráa eða græna).
Loftljósin hafa verið kveikt.
Nú getur starfsmaðurinn séð öll götin í
filmunni sem ekki var hægt að greina við
fyrri lýsingaraðstæður.
4
PRENTARINN 4.2.'82