Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 8

Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 8
Félag bókagerðarmanna hefur sagt upp kaupliðum síðasta samnings miðað við 1. október 1982. Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi setningar bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar, sem eru kaupránslög og vega auk þess að hinum frjálsa samningsrétti. Um kaupránslögin í framhaldi af þessari ákvörðun hef- ur staðan verið rædd fram og til baka á fundum í félaginu og er greinilegt að fólk er afar óánægt með þessar aðfarir stjórnvalda á lífskjörin. Nú er nokkuð Ijóst að FBM er eina verkalýðsfélagið sem hefur sagt upp kaupliðunum og vissulega þrengir það nokkuð stöðuna að önnur félög ætla að taka þessu eins og hverjum öðrum sjálfsögðum hlut. Þennan ræfil- dóm verkalýðshreyfingarinnar ætla nú atvinnurekendur að not- færa sér og hafa þeir mótmælt lög- mæti uppsagnar FBM og auk þess hótað félaginu málsókn. Tíminn einn getur leitt í Ijós hvernig þeim málum lyktar, en Ijóst er að verka- lýðshreyfingin verður að fara að taka sig saman í andlitinu ætli hún ekki að verða algerlega viljalaust verkfæri í höndum atvinnurekenda. Blaðamaður Prentarans fór á stúf- ana nokkru eftir setningu bráða- birgðalaganna og spurði nokkra fé- lagsmenn um afstöðu þeirra til bráðabirgðaiaganna og viðbragða verkalýðshreyfingarinnar og fara svörin hér á eftir. Auðvitað vilja menn halda sínu Margrét S. Guðmunds- dóttir, aðstoðarmaður í Odda: Ég hef nú lítið velt þess- um hlutum fyrir mér. Auðvitað vilja menn halda sínu. Það er alltaf ráðist á þá sem verst eru settir. Best verður auð- vitað ef hægt er að fá skerðinguna til baka án verkfalla, en ég myndi auðvitað standa með öðrum ef til þess þyrfti að grípa. & Ég missti hana alveg . . . Ómar Óskarsson, setjari í Prentrún: Ég er alveg búinn að missa trú á því að stjórn- málaflokkarnir viti nokk- uð hvernig hægt er að vinna bug á verðbólg- unni. Hitt er svo annað mál að ég hef ekki trú á baráttuhug félags- manna til að knýja á um leiðréttingu. Ég missti hana alveg sl. haust. Þá var engin ástæða til að bakka með verkfallið. 8 PRENTARINN 4.2.'82

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.