Prentarinn - 01.07.1982, Síða 11
flutningur á vélum og tækjum til bóka-
gerðar var að magni til 157% meiri
1981 en 1980. f dollurum talið jókst
hann hins vegar um „aðeins" 70%, sem
sýnir að verulegt magn af skrani hefur
verið flutt inn á síðasta ári. Á tímabil-
inu janúar til júní í ár hefur verið flutt
18% minna til landsins af vélum og
tækjum miðað við sama tímabil í fyrra.
Hins vegar jókst verðmæti þessa inn-
flutnings um 24% í dollurum talið, sem
sýnir að skranið sem flutt var inn árið
1981 var flutt inn fyrri hluta ársins!
Dýrustu tækin sem flutt voru inn
1981 voru setningarvélar, en að öðru
leyti samanstendur innflutningurinn
aðallega af prentvélum og bókbands-
vélum.
Geta greitt hærri laun
Þær tölur sem ég hef nú dregið sam-
an sýna fram á að prentiðnaður og
bókagerð stendur vel að vígi og engin
merki sjáanleg um samdrátt, a. m. k.
ef hagskýrslur eru skoðaðar. Hér er þó
blaðamarkaðurinn undanskilinn. Það
má líta svo á að innflutningur á prent-
-pappír sé, ef aðrar upplýsingar eru
ekki fyrir hendi, nokkuð áreiðanlegur
mælikvarði á umsvif í prentiðnaði. Þau
umsvif fara vaxandi með hverjum mán-
uði sem líður. Og ef hlutfall innflutn-
ings á bókum og blöðum af innflutningi
á prentpappír er skoðað kemur einnig í
ljós að það fer lækkandi, en ekki
hækkandi eins og væri ef erlend prent-
un færi í vöxt. Annar mælikvarði á
umsvifin er ofangreindur innflutningur
á vélum og tækjum. Hann sýnir líka
verulegan vöxt í íslenskri bókagerð.
Þessar upplýsingar eru afar athyglis-
verðar í ljósi alls tals um minnkandi
þjóðarframleiðslu og minni iðnaðar-
framleiðslu. Þær sýna glögglega fram á
að atvinnurekendur geta engan veginn
vísað í þjóðhagsspár jafnframt umræðu
um launamál bókagerðarmanna. Þeir
hafa alla möguleika á að greiða veru-
lega hærri laun. Þurrir talnadálkar
ljúga ekki — eða hvað?
- óhs.
Heimildir: Hagskýrslur íslands II 75 og II 76
Hagtíðindi 1980-1982
Hagstofa íslandsl Hildur Thor-
oddsen
Látinn
félagi
Oliver Guðmundsson, prentari
fæddist 10. janúar 1908 í Ólafs-
vík. Oliver hóf prentnám í ísa-
foldarprentsmiðju 17. janúar
1925 og lauk þar prófi. Félagi í
HÍP varð Oliver 23. júlí 1923.
Oliver vann lengst af í ísafoldar-
prentsmiðju og Prentsmiðjunni
Leiftur, en var þó um tíma í Vík-
ingsprent. Oliver lést í Reykja-
vík eftir langvarandi veikindi 29.
ágúst 1982, 74 ára að aldri.
Ný heimilisföng
Þeir sem ekki hafa fengið síð-
asta Prentara eru beðnir um að
láta skrifstofuna vita. Pá eru
þeir sem breytt hafa um heim-
ilisföng beðnir um að tilkynna
það á skrifstofuna.
PRENTARINN 4.2. 82
11