Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 15

Prentarinn - 01.07.1982, Qupperneq 15
Námsráðstefnur eru haldnar árlega á vegum sambandsins. Kvennaráð- stefna var haldin á síðasta ári í Kram- fors í Svíþjóð og í nóvember nk. verð- ur háð æskulýðsráðstefna í Finnlandi. Þessar ráðstefnur eru oft einskonar vinnuþing, þar sem hin ýmsu mál eru krufin til mergjar, en síðan tekin fyrir í stjórninni eða á ársfundunum. Nýr samningur hjá Finnum Pentti Levo formaður finnskra bóka- gerðarmanna sagði að nýr samningur hefði verið undirritaður í mars sl. til 3ja ára. Það markverðasta í honum er að orlofsálagið, sem var 10% hækkar í 60%, en fer í 70% 1984. 5 vikna sumarleyfi er hjá bókagerðarmönnum í Finnlandi og nú náðust fram 4 dagar í viðbót við 6 daga vetrarleyfi sem þeir höfðu áður, svo þeir hafa núna alls 7 vikna orlof, 5 vikur á sumrin og 2 vikur á vetrum. UTOPIA og Liber System Á ársfundinum var samþykkt tillaga um samstarf UTOPIA-verkefnisins og Liber System í Svíþjóð. UTOPIA-verkefninu var komið á fót fyrir forgöngu NGU fyrir um ári síðan. Það er unnið í samvinnu vísindamanna við Datalogisk Institut Árhúsaháskóla, Tekniska Högskolans og Arbetslivscentrum í Stokkhólmi. Þeir reyna í samráði við fulltrúa félag- anna á Norðurlöndum að setja saman þær kröfur sem gera verður til hinna nýju prentformatækja, þar sem öll grafísk vinna, myndir og texti, fer fram á skermum. Liber System er sænskt ríkisfyrir- tæki, dóttur-fyrirtæki Liber-útgáfunn- ar sænsku og vinnur það að því að koma á fót og framleiða síðan fyrir heimsmarkaðinn dagblaðakerfi fram- tíðarinnar, en það á að vera komið á markaðinn innan tveggja ára. Þetta fyrirtæki álítur það vera nauðsynlegt að hafa samvinnu við prentiðnaðar- menn, en það myndi vera alger nýj- ung á þessu sviði í heiminum. Tals- verðar umræður urðu um þessa fyrir- huguðu samvinnu við Liber System og voru þarna mættir Morten Kyng sem vinnur við Tækniháskólann í Árósum og Bjarne Nielsen, tæknilegur fulltrúi DT-F, en þeir vinna báðir við UTOPIA-verkefnið. Bjarne sagði m. a. „að samningurinn við Liber System markaði tímamót vegna þess, að við fengjum ekki eingöngu tæki- færi til að bera fram óskir okkar og kröfur við framleiðslu tækjanna, held- ur hefðum við möguleika á því allan þróunarferilinn, að grípa inn í og segja, að við óskuðum ekki eftir að tækin væru gerð samkvæmt uppá- stungu seljenda.“ Aðalhugsunin á bak við þessa sam- vinnu er sú, að með því að þróa ný og fullkomin tæki í samvinnu við þá sem eiga að nota þau myndu Norðurlönd kannski sigra í þeirri grimmu sam- keppni sem nú á sér stað á heimsmarkaðnum og um leið koma fram þeim sjónarmiðum okkar varð- andi tæknibreytingarnar sem við telj- um æskilegust. Stjórnarkjör Arild Kalvik var endurkjörinn for- maður Nordisk Grafisk Union til eins árs. Ennfremur voru endurkjörnir Stig Nilsson, formaður sænska fé- lagsins, sem ritari og Henning Bjerg, formaður danskra prentara, sem gjaldkeri. Stjórnin er að öðru leyti skipuð: Áke Rosenquist, Svíþjóð; Pentti Levo, Finnlandi og Jörn Niels- en, Danmörku. Frá íslandi mættu: Svanur Jóhannes- son, Ársæll Ellertsson og Ólafur Björnsson. — Sv. Jóh. LO-skólinn í Helsingor PRENTARINN 4.2 '82 15

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.