Prentarinn - 01.10.1984, Qupperneq 13
Magnús H. Jónsson.
Afhending
Guðbrandsbiblíu
Aðalveislu Hólaferðar í leikfimihúsi
skólans sátu yfir 200 manns. Voru þar
fluttar margar ræður og einnig Ijóð.
har afhenti formaður prentarafélags-
ins, Magnús H. Jónsson minningar-
gjöf prentarastéttarinnar, Guðbrands-
biblíu í fögru, leturskornu skríni. Hon-
um fórust orð á þessa leið:
Ræða
Magnúsar H. Jónssonar
á Hólum
Góðir gestir og félagar!
Það er engin tilviljun, að við íslenzkir prentarar
skyldum hópast saman einmitt hér „heima að
Hólum“, til að minnast þess, að Jóhannes Guten-
berg komst upp á lag með að prenta með lausa-
letri - fann upp prentlistina.
Það var þvert á móti það eðlilegasta af öllu.
Hvar frekar, en á heimili Jóns Arasonar, Guð-
brands Þorlákssonar og margra annara er mikið
kapp lögðu á viðhald prentlistarinnar hér á landi.
Og við viljum sýna nokkurn vott þakklætis fyrir það
brautryðjandastarf, sem hér hefir verið unnið í iðn
okkar, en það þykjumst við bezt geta gert með því,
að færa heim til Hóla ágætasta prentgripinn, sem
hér var unninn, biblíu Guðbrands biskups. Því
miður hefir elntak það, er okkur tekst hér að skila,
orðið, sem eðlilegt var, að gjalda ferðalags þess,
sem það hefir verið á þá hálfu fjórðu öld, sem liðin
er síðan það lagði upp í menningar- og betrunar-
starf sitt meðal landslýðsins, en reynt hefir verið
að færa það sem næst sínu upprunalega útliti, og
vonum við, að það hafi tekizt svo, að kalla megi
það eitt bezta eintak þessarar merku bókar, sem
nú er völ á. - Því viljum við biðja yður, herra
vígslubiskup, að veita því móttöku, ásamt púlti
því, er það er í. Það er ósk okkar, að biblían megi
varðveitast meðal gripa kirkjunnar og verði geymd
í henni, svo hún megi verða öllum þeim, er í það
heilaga hús koma, ábending þess, að okkur
mönnum beri ávallt að setja öllu ofar baráttu hins
frjálsa anda fyrir góðum málefnum.
Magnús H. Jónsson.
ÞRENTARINN 4.4.’84
13