Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Blaðsíða 11

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11 Miðvikudagur 24. apríl 2013 Dagskrá á sumarDaginn fyrsta 2013: fögnum sumri! 11:00 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar á Víðistaðatúni. Keppt er í 7 aldursflokkum hjá hvoru kyni, frá 6 ára og yngri upp í 21 árs og eldri. Allir keppendur fá verðlaunapeninga og sigurvegarar flokka fá bikara. 13:00 skátamessa í Víðistaðakirkju. 13:45 skrúðganga frá Víðistaðakirkju að Thorsplani, í miðbæ Hafnarfjarðar. Skátar frá Skátafélaginu Hraunbúum og Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fara fyrir skrúðgöngunni. 14:00-16:00 fjölskyldudagskrá á thorsplani í umsjá Skátafélagsins Hraunbúa. Lúðrasveitin tekur lagið – kór flensborgarskólans syngur – Jón Víðis töframaður skemmtir börnunum – ingó Veðurguð mætir með kassagítarinn og kemur öllum í sumarskap – Siguratriðið úr söngkeppni grunnskóla Hafnarfjarðar kassaklifur, candy-floss- og sælgætissala, útileikir og fleira fjör á thorsplani. 11:00-17:00 Byggðasafn Hafnarfjarðar býður gesti velkomna í Pakkhúsið, Vesturgötu 8. gestir og gangandi kynnast sögu Hafnarfjarðar og nágrennis og börn á öllum aldri geta skoðað skemmtilega leikfangasýningu í risinu og Beggubúð. 15:00- 21:00 Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, býður gesti velkomna á sýninguna Hellisgerði, blóma og skemmtigarður. Á sýningunni verður mannlífið í garðinum skoðað í spegli tímans, sjónum beint að gróðri og stemningu á ólíkum tímum. sýningarstjórar eru Berglind guðmundsdóttir landslagsarkitekt og magnea guðmundsdóttir arkitekt. atH! frítt í söfnin í Hafnarfirði EittHvað fyrir alla: www.hafnarfjordur.is

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.