Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Blaðsíða 20

Fjarðarpósturinn - 24.04.2013, Blaðsíða 20
20 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 24. apríl 2013 25. apríl - 23. júní 2013 Hafnarborg Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar Opið kl. 12–17 og fimmtudaga til kl. 21 Lokað á þriðjudögum Strandgata 34 220 Hafnarfjörður Iceland www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is (354) 585 5790 Fjölbreytt dagskrá á sýningartímanum www.hafnarborg.is Verið velkomin á opnun sýningarinnar sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl, klukkan 15. Hellisgerði Blóma- og skemmtigarður Sýningarstjórar Berglind Guðmundsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir Birta Björnsdóttir er eigandi og hönnuður fatamerkisins Júniform en verslun með því nafni var opnuð að Strandgötu 32 sl. laugardag. „Júniform hefur verið starf­ andi í bráðum 12 ár, fyrst vor­ um við með verslun á Hverfis­ götu í Reykjavík og svo síðustu ár með verslun við Ingólfsstræti. Nú höfum við flutt okkur um set og opnað nýja verslun við Strandgötu 32 í Hafnarfirði,“ segir Birta í samtali við Fjarðarpóstinn. Birta segir að frá upphafi hafi öll framleiðsla farið fram á Íslandi. Flíkurnar séu saumaðar hér og einnig voðirna ofnar í peysurnar. „Þrátt fyrir það að ég sé búsett í Barcelona núna þá heldur þessi hefð áfram. Á síðasta ári flutti ég út til Barcelona með fjölskyldu mína og hef hugsað mér að staldra þar/hér við í smá tíma, enda er lífið ótrúlega ljúft hér. Það gerir þó ferlið óneitanlega örlítið flóknara þar sem ég hanna hér úti, sendi svo prufuflíkur, snið og efnaprufur heim í saum og sölu. Með tilkomu versl unar­ innar sem ég opnaði í samstarfi við vinkonu mína Helgu Sæunni Árnadóttur verður þetta allt auðveldara þar sem hún mun sjá um verslunina og umstangið heima,“ segir Birta. Verslunin var opnuð um helgina stútfull af nýjum vör­ um, kjólum, peysum og hand­ gerðu skarti og voru viðtökurnar vonum framar að sögn Birtu og var fullt út úr dyrum allan daginn. „Erum við því mjög þakklátar og ánægðar,“ segir Birta. Barcelona og Hafnarfjörður Tískuverslunin Júniform opnaði í Hafnarfirði á laugardag Helga Sæunn í miðið ásamt öðru starfsfólki Júniform. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Tillitsleysi Lesendur senda reglulega inn myndir af því sem betur má fara. Hér að neðan er dæmi um að ökumenn loka á stæði fyrir fatlaða við Hraunvallaskóla. Eru þetta foreldrar sem sýna þetta fordæmi? Lokar gangstétt í nokkra daga!

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.