Prentarinn - 01.03.1987, Blaðsíða 7
bandi skiptir ekki máli þó um hlutastarf
sé að ræða, fólki ber að sækja um inn-
göngu í félagið.
Félagsfundir
Á liðnu starfsári voru haldnir fjórir
formlegir félagsfundir og voru þeir
þokkalega sóttir ef miðað er við fundar-
sókn almennt. Hins vegar er ljóst að sé
miðað við félagafjölda er mætingin alltof
lítil ekki síst í ljósi þess að það sem fjallað
er um á þessum fundum snertir hags-
muni hvers einasta félagsmanns. Við
hljótum því að hvetja félagsmenn til að
breyta hugsunarhætti sínum og taka þátt
í þeim ákvörðunum sem eru teknar og
snerta þá alla.
Gerðar voru tilraunir með svokölluð
„opið hús“-kvöld og var meðal annars
fjallað um kvennaathvarf og virknina í
verkalýðshreyfingunni. Pótt þátttaka
hafi ekki verið mikil er ástæða til þess að
halda þessari starfsemi áfram, ekki síst í
Ijósi bættrar aðstöðu í félagsheimilinu.
Vinnustaðafundir
Haldnir hafa verið nokkrir vinnustaða-
fundir á starfsárinu og þá fyrst og fremst
fyrir tilstilli og óskir frá viðkomandi
vinnustöðum. Það er mat stjórnarinnar
að vinnustaðirnir notfæri sér þó alltof lít-
ið réttinn til að efna til vinnustaðafunda
tvisvar á ári eins og samningar kveða á
um. í ljósi þessa mun stjórnin efna til
fundarherferðar á vinnustöðum á kom-
andi mánuðum. Ætlunin er að heim-
sækja landsbyggðina nú í maí og efna síð-
an til vinnustaðafunda á höfuðborgar-
svæðinu strax að loknum sumarleyfum.
Gildi vinnustaðafunda er augljóst, á
þeim gefst mönnum betra tækifæri en á
félagsfundum til þess að ræða öll mál, en
félagsfundir eru frekar einskorðaðir við
ákveðin mál auk þess sem þeir eru þyngri
í vöfum og því ekki öllum gefið að vilja
tala þar.
Fræöslustarf
í mars 1987 var efnt til námskeiðs fyrir
trúnaðarmenn og var það haldið í Ölfus-
3 1. DESEMBER 1986.
Skuldir og eigið fé
Skýring 1986 1985
Skammtímaskuldir :
Lánardrottnar 419 1.195
Skuld við Sjúkrasjóð 1.121.424 2.328.047
Skuld vió Fræðslusjóð 520.427 0
Næsta árs afborganir af langtímalánum . . . 16 1.638.741 1.428.650
Skammtímaskuldir 3.281.011 3.757.892
Langtimalán : 3
Alþýðubankinn 2.447.862 3.555.787
Atvinnuleysistryggingarsjóður 26.667 30.000
Stofnlánadeild landbúnaðarins 23.771 24.133
2.498.300 3.609.920
Næsta árs afborganir af langtimalánum (1.638.741) (1.428.650)
Langtímalán 859.559 2.181.270
Skuldir alls 4.140.570 5.939.162
Eigið fé :
Höfuðstólsreikningar :
Styrktar-og tryggingarsjóður . . . 17 23.246.209 17.477.943
Orlofssjóður . . . 17 9.383.721 8.139.023
. . . 17 (516.853) (858.534)
Eigið fé 32.113.077 24.758.432
SKULDIROG EIGIÐ FÉ ALLS .. 36.253.647 30.697.594
PRENTARINN 3.7.'87
7