Prentarinn - 01.10.2001, Síða 5

Prentarinn - 01.10.2001, Síða 5
væru. „Rifbein," svaraði undirrit- aður vongóður. „Ekki ijölgar stig- um KR-inga við þetta,“ sagði Skúli. „Þetta eru nefnilega kjálka- bein.“ Við komum í sennilega elstu steyptu steinkirkju í heiminum, en bráðum eru 100 ár síðan hún var vígð. Þar eru minjar um Eggert Olafsson sem ólst upp á Ingjalds- hóli þar sem kirkja hefur verið frá árinu 1200. Það var Eggert sem „ofan i bráðan Breiðaljörð í brúðarörmum sökk“. Ekið var framhjá Loranstöðinni á Gufu- skálum sem er næst hæsta bygg- ing í Evrópu, 412 metrar að hæð og hún kemur hvergi við jörðu, heldur stendur á glerkúlu. Nú eru þarna æfingabúðir og skóli slysa- varnafélaga. Ekið var framhjá fornum fiskibyrgjum, mjög sér- stökum, sem sumir segja að gætu hafa verið bústaðir papa, en um írskt fólk eru þarna mörg örnefni. A Snæfellsnesi er mikið um Purk þetta og Purk hitt. Purkey, Purkhólar. Astæða þessarar nafn- giffar er sú að þegar Jón Arason var veginn 1550 og lúterskur sið- ur komst á mátti ekki nefna svín og þá fundu hinir snjöllu Snæfell- ingar uppá því að breyta orðinu svín í enska orðið „pork“ og síðan breyttu þeir því með sunnlenskum framburði í purk. Þannig eru komin nöfnin Purkhólar, Purkeyj- ar o.fl. Þegar Dagverðará blasti við sagði Skúli okkur frá Þórði á Dagverðará, sem var annálaður kvennamaður, veiðikló, ævintýra- maður og náttúruunnandi. Fór um konumar við ítarlegar og skemmtilegar lýsingar Skúla á kostum náttúrubarnsins. A Lauga- brekku fæddist Guðríður Þor- bjarnardóttir, sem fæddi fyrsta hvíta bamið í Ameríku og gekk alla leið til Rómar. Þarna er kom- ið minnismerki um þetta og skammt frá er Þinghamar en þar var Axlar-Björn dæmdur og líflát- inn. Axlar-Bjöm var fyrstur til að taka gjald fyrir gistingu. Fyrst rændi hann öllu fémætu af lúnum ferðamönnum, þegar þeir voru fallnir i svefn og síðan drap hann þá og faldi í landareigninni. Upp komst um ódæði hans og þá var talið að hann hefði verið búinn að myrða 18 manns, en hann játaði Bókagerðarmenn hlusta hugfangnir á erindi um Axlar-Björn. Frá hœgri: Baldvin Ársœlsson, Ingimundur Jónsson, Asbjörn Pétursson. Snœfellsjökull í baksýn. víst aldrei nema 9 morð. Hann var lokaður inni þar til þing hæf- ist, en vegna illvirkja hans tók Drottinn af honum sólarsýnina. Þegar hann kom undir bert loft í Formaðurinn með hálfdrætting á lofti við Sjóminjagarðinn. Aðrir reyndu ekki. glaða-sólskini, sagði hann þessi fleygu orð: „Nú eru sólarlitlir dagar, piltar." Hann var síðan dæmdur til að klípast, bein hans brotin og hann síðan líflátinn. Þegar þeir vom að brjóta hendur hans var holt undir og þá sagði hann: „Sjaldan brotna bein á huldu.“ Þeir afgreiddu hann svo og til öryggis var hann brytjaður í 3 hluta og þeir síðan hver í sínu lagi til að tryggja að partarnir skriðu ekki saman og hann gengi aftur. Komið var við í Hólahólum, ekið framhjá Dritvík, Djúpalóns- sandi, Malarrifi, Lóndröngum og Svalþúfu, en tveir síðastnefndu staðirnir eru ákaflega heillandi og vert að skoða nánar í næstu ferð. Það var á Þúfubjargi við Svalþúfu sem Kolbeinn sat á klettasnös og kvaðst á við þann í neðra og mán- inn óð í skýjum. Þeir reyndu lengi nætur að kveða hvor annan í kút- inn. Að lokum kom Kolbeinn með fyrripart. Hann rak flugbeitt- an hníf íyrir framan glyrnumar á kölska svo eggina bar við tunglið og sagði: Horfðu í þessa egg, egg undir þetta tungl, tungl. Kölska varð orðfall því hann fann ekkert rím á móti tungl og segir: „Þetta er ekki kveðskapur, Kolbeinn.“ Þá botnaði Kolbeinn: Eg steypi þér þá með legg, legg lið sem hrærir ungl, ungl. Ungl er sama og úln eða úlnlið- ur. Kölski beið ekki boðanna og steypti sér í eina brimölduna og hefur ekki sést þar síðan. Við rétt litum við á Hellnum þar sem margir hafa komið sér fyrir til að njóta návistar við orkustöðina Snæfellsjökull, m.a. Guðlaugur og Guðrún Bergmann sem áður gerðu garðinn frægan í versluninni Karnabæ. Þau hafa byggt þarna glæsilega aðstöðu sem margir njóta góðs af. Síðan var ekið að Amarstapa og þar var boðið upp á girnilegt hlaðborð í veitingahúsinu Snæfelli, sem minnti margar konurnar á ís- lenska fermingarveislu, þar sem ekkert var til sparað og borð svignuðu undir ríkulegum PRENTARINN ■ 5 brauðtertum og hnallþórum, lík- um þeim sem sáust í kvikmynd- inni „Undir jökli,“ en surnir segja að hnaliþórurnar séu einmitt upp- runnar þar. Snæfellsjökull blasti við mest- an hluta dagsins í allri sinni dýrð, stundum hulinn skýjaslæðum, sem gerðu hann enn tilkomu- meiri. „Þar sem jökulinn ber við himinn, hættir jörðin að vera til og fegurðin ríkir ein ofar öllu öðm,“ sagði skáldið. Brjóst jök- ulsins og geirvörtur telja margir heilaga sýn um móður jörð og ijallkonuna og frá þeim stafi ólýs- anlegur kraftur og orka, sem auki mönnum vit og þor og geri þá að betri mönnum. Við höfum oft haft góða leið- sögumenn en Skúli slær þeim flestum við, sannkallaður lands- liðsmaður ferðaþjónustunnar. Svona dýrðardagar eru hreinn bónus í lífi manna á efri ámm, þarna hitta menn kunningja, sam- starfsfólk og samferðarfólk í þessu jarðlífi og geta deilt reynslu og fróðleik um gönguna miklu sem við öll verðum að þreyja til að eilífðin stöðvist ekki. Nú var komið að leiðarlokum á þessum fagra Drottins degi. Leið- sögumennirnir Sæmundur og Skúli skildu við okkar við veginn yfir Fróðárheiði og síðan var ekið beina leið til Reykjavíkur og komið til borgarinnar við sundin blá og eyjarnar sjö kl. 20,30. Ánægjulegri og fróðlegri ferð var lokið. Við þökkum Félagi bóka- gerðarmanna með Sæmund for- mann í broddi fylkingar og að- stoðarmönnum hans kærlega fyrir okkur.

x

Prentarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.