Prentarinn - 01.10.2001, Qupperneq 23

Prentarinn - 01.10.2001, Qupperneq 23
fíill McDaniel, Sólveig Hjaltadóttir og Benedikta Jónsdóttir. • Samskipti munu ekki einungis verða á einn veg, heldur gagn- virk. • I stað þess að um takmörkuð landlæg tilboð sé að ræða munu sýnileg alþjóðleg tilboð koma. I stað þess að sölumenn banki á dyr viðskiptavinarins verður rafrænn viðskiptamáti mun meira notaður. • Síðast en ekki síst ber að nefna að stefna fyrirtækja verður ekki einungis bundin við nán- asta nágrenni eða landið, held- ur alla jörðina. Erwin vitnaði í Benny Landa, stofnanda Indigo, og sagði: „Ev- erything that can become digital, WILL become digital... and printing is NO exception". Hann vitnaði einnig í Charles Darwin þegar hann sagði „It's NOT the strongest species that survive, nor the most intelligent, but the ones most responsive to change." Geta fyrirtækis til að „lifa af ‘ er ekki fólgin í styrk eða greind, heldur aðlögunarhæfni. Prentun og rafræn viðskipti Síðust á mælendaskrá var Elisa- betch Bitsch-Christensen hjá CAP Ventures Inc. Fyrirlestur hennar bar yfir- skriftina „Printing and the e- business". Sá samskiptaaðili ífamtíðarinn- ar sem nær mestum árangri er sá sem ræður gögnunum. Askorunin felst í að breyta gögnum í myndrænt form. Hvern- ig og af hverju þetta er gert var umtjöllunarefni fyrirlestursins. Elisabeth benti á eftirfarandi staðreyndir í „rafræna“ heimin- um: • Áætlað er að árið 2005 muni netnotendur verða orðnir 766 milljónir. Þar af 170 milljónir í Vestur-Evrópu. Árið 1999 voru 1,5 milljarðar vefsíðna, meira en 1,9 milljónir vefsíðna bætast við á degi hverjum. Árið 2005 er áætlað að fjöldi vefsíðna fari yfir 12 milljarða. • Árið 2005 er áætlað að fjöldi netnotenda innan íyrirtækja fari í 219 milljónir. • Einungis 51,3% af netnotend- um eru enskumælandi. Rafræni heimurinn líður fyrir skort á peningum, tíma og at- hygli. Leiðir til að bæta það felast í að einblína á eitt atriði í einu: • Peningaskort má bæta með verðlagningu. • Tímaskort má bæta með raf- rænum viðskiptum. • Skort á athygli má bæta með persónugerðum prentunum. Elisabeth fór svo í gegnum þær miklu breytingar sem verða á því að senda reikninga rafrænt miðað við í pappírsformi og rafræn sam- skipti. Einnig talaði hún um hinar nýju gagnvirku heimasíður (por- tal) sem munu að einhverju leyti taka við af prentgögnum sem samskiptamáti. Þarfir notenda varðandi skjöl eru síbreytilegar. Þeir vilja t.d. liti eftir þörfum, sveigjanleika, fær- anleika, betra aðgengi, meiri gæði, lægri kostnað og öryggi. Notendur geta drukknað í upplýs- ingum um leið og þeir eru sveltir að þekkingu. Markaðsferli - „The European Way" Stefna EU stjórnarinnar felst í því að gögnum sem safnað er með einn tilgang í huga (t.d. kredit- kortaviðskipti) má ekki kaupa eða selja til annarra nota (t.d. mark- aðsherferðir). Fyrirtæki skulu greina frá öllu sem þau gera við upplýsingarnar og gefa möguleika á að sleppa við að veita þær. Þau verða að veita aðgang að gagnaskrám og verða að veita leyfi til að leiðrétta vill- ur. Stjórnin bannar fyrirtækjum að flytja persónulegar upplýsingar til annarra landa sem hafa ekki við- unandi (eða svipaða) persónu- vernd, eins og t.d. Bandaríkjanna. Hvert er vandamálið? í lok ársins 2000 var áætlað að fyrirtæki myndu hafa 2-20 vef- svæði með 18000-20000 síðum hvert. Og hví skyldi okkur ekki vera sama? Því skortur á efnis- stýringu veldur ruglingi og óánægju viðskiptavinarins. Efnisstýring er vel skilgreint ferli og tæki, sem styður sam- vinnu og aðgerðir þeirra sem leggja til gögn, hannað til þess að stýra upplýsingum á netinu varð- andi framleiðslu og dreifingu, til skilgreinds markhóps, í gegnum mismunandi miðla og netkerfi. Varpaði Elisabeth fram spurn- ingunni um hvort væri betra að fjárfesta í hugbúnaði eða vélbún- aði. Væri betra að fjárfesta í hug- búnaði sem veitir möguleika á að nýta betur vélbúnaðinn eða væri betra að fjárfesta beint í vélbún- aði? Elisabeth lagði áherslu á að horfa til framtíðar með skýrri og öruggri viðskiptastefnu, skil- greindum möguleikum, skipu- lagðri samvinnu, rannsóknum og markmiðum fyrir viðskiptavini og markaði. Einnig þarf að hafa í huga að hver viðskiptavinur er einstakur, og vera þarf viðbúinn tískustraumum í tækni-, við- skipta- og markaðsmálum og keppnisblöndnu andrúmslofti. „Do what you do best... Use partners for the rest“. Að ráðstefnunni lokinni var einni af hefðum Xplor viðhaldið með því að gefa gestum og tyrir- lesurum tækifæri á að hittast, fá sér hressingu og ræða sín á milli það sem fram fór á ráðstefnunni. Næsta ráðstefna Xplor á íslandi verður 30. nóvember 2001. 200: Næsta ráðstefna Xplor á íslandi verður haldin í veislu/ráðstefnusal Þróttar Laugardal 30. nóvember nk. Fyrírlesari er Gilles Biscos frá Interquest USA sem hefur 20 ára reynslu af gagnavinnslu og stafrænni útgáfu (digital publishing). Dagskráin hefst kl 15.00 og lýkur kl. 19.00 með kvöldverði og léttum veigum Nánari upplýsingar gefur stjórn Xplor á íslandi. PRENTARINN ■ 23

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.