Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 3
VERKTÆKNI
FRA STAÐLARAÐI
gerir STRÍ?
Hvað
Mikilvægi staðla er ótvírætt í
daglegu starfi verkfræðinga og
tæknifræðinga. í notkun þeirra
felst bæði hagræðing vegna
samræmingar og ákveðin „neyt-
endavernd". Þá er ekki vafi á því
að staðlar verða æ mikilvægari
fyrir okkur Islendinga vegna
alþjóðlegra viðskiptasamninga
sem við höfum gerst aðilar að. Því
hefur VERKTÆKNI farið þess á
leit við Staðlaráð Islands að það
verði með fasta pistla í blaðinu.
Markmiðið er að kynna starfsemi
ráðsins og það sem efst er á baugi
hverju sinni. VERKTÆKNI kann
Staðlaráði bestu þakkir fyrir
jákvæðar undirtektir.
Staðlaráð íslands (STRÍ) er
vettvangur hagsmunaaðila til að
vinna að stöðlun og beitingu
staðla á Islandi, það starfar á
grundvelli laga um stöðlun. Ráðið
var stofnað í núverandi mynd í
apríl 1993 en frá 1987 starfaði
forveri STRÍ á vegum stjómar
Iðntæknistofnunar Islands. STRI
hefur sjálfstæðan fjárhag. Tekjur
þess eru meðal annars framlög og
greiðslur hagsmunaaðila fyrir
stöðlunarstörf sem þeir óska eftir,
tekjur af sölu staðla og annarri
þjónustu, árleg aðildargjöld og
framlag á fjárlögum.
Aðild að Staðlaráði geta þeir átt
sem áhuga hafa á og telja sig eiga
hagsmuna að gæta af starfi þess.
Um þessar mundir eru aðildar-
félagar STRI um tuttugu talsins.
Stjóm STRÍ er skipuð fimm
mönnum sem em kosnir úr hópi
fulltrúa á aðalfundi annað hvert ár.
Formaður Staðlaráðs er Páll
Valdimarsson verkfræðingur. STRÍ
hefur aðsetur á Iðntæknistofnun á
Keldnaholti og starfsmenn em níu.
Helstu verkefni Staðlaráðs em
eftirfarandi:
• Að hafa umsjón með staðlagerð
á íslandi.
• Að aðhæfa og staðfesta þá
staðla sem skylt er vegna
aðildar STRÍ að erlendum
staðlastofnunum.
• Að greiða fyrir því að íslensk-
um stöðlum verði beitt í
opinberri stjómsýslu og hjá
einkaaðilum.
• Að starfrækja miðstöð
stöðlunarstarfs hérlendis þar
sem þjónusta er veitt
stofnunum, fyrirtækjum,
einstaklingum og samtökum
sem vilja nýta sér staðla í starfi
sínu.
STRÍ er fulltrúi íslands í
alþjóðlegu staðlasamtökunum
ISO, evrópsku staðlasam-
tökunum CEN og CENELEC
og þátttakandi í stöðlunarsam-
starfi INSTA. Með aðild að
CEN og CENELEC er STRÍ
skuldbundið til þess að gera
evrópska staðla að íslenskum
stöðlum. Mikið af daglegu starfi
STRÍ snýst um Evrópustaðlana.
Þá þarf að skrá í gagnasafn og
auglýsa til umsagnar á fram-
varpsstigi svo mönnum gefist
kostur á að gera við þá athuga-
semdir. Þegar frumvörpin era
orðin að stöðlum era þau stað-
fest hér á landi og fá forskeytið
ÍST. Tilkynningar um framvörp
og staðla birtast í
Staðlatíðindum sem STRÍ gefur
út u.þ.b. tíu sinnum á ári.
Einnig er gefin út skrá árlega
yfir alla gildandi staðla á
Islandi.
Á vegum Staðlaráðs starfa þrjú
fagráð:
Byggingastaðlaráð, BSTR.
Fagráð í upplýsingatækni, FUT.
Rafstaðlaráð, RST.
Hlutverk fagráðs er að
samræma og hafa framkvæði að
stöðlunarstarfi á sínu sviði.
Á vegum STRÍ starfa einnig
þrjár fagstjómir:
Fagstjóm um gæðamál.
• Fagstjóm í véltækni.
• Fagstjón í flutningatækni.
Hlutverk fagstjóma er að vinna
að því að stofna fagráð á-
viðkomandi sviði og hafa
umsjón með vinnu á fagsviðinu.
í næsta tölublaði er ráðgert að
fjalla nánar um stöðlunarstarf
evrópsku staðlastofnananna og
hvernig íslenskir hagsmunaaðilar
geta tekið þátt í því.
3
HNOTSKÓGUR