Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 4

Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 4
VERKTÆKNI FYRIRTÆKJAKYNNING Markaðssetning hugbúnaðar innan lands og utan Hugbúnaður hf. Hugbúnaður hf., var stofnað í júní 1984. Markmiðið var að hanna, framleiða, þjónusta og selja hugbúnað. 1 upphafi var fyrirtækið með margvísleg verkefni fyrir IBM System 370 og System 36 tölvur, DEC PDP, Vax tölvur og einkatölvur (PC). Fyrirtækið einskorðaði sig við innlendan vettvang, en hóf fljótlega að kynna sér erlendan markað til að flytja út þekkingu sína. Fyrsta varan sem Hugbúnaður hf., náði að markaðssetja erlendis að einhverju marki er samskipta- hugbúnaðurinn HBX-PAD, sem fór í sölu í nóvember 1990. Um 2000 kerfi hafa verið seld og er þessi hugbúnaður nú í notkun hjá smáum sem stórum fyrirtækjum um allan heim. I dag selur Hugbúnaður hf. auk HBX-PAD, verslunarkerfið HB-GPoS og viðverukerfið Hver er Hvar? undir nafninu HB-LogBook á erlendum mörkuðum. Fyrirtækið var stofnað af sex tölvusérfræðingum og hefur vaxið verulega. I dag starfa 24 starfs- menn hjá Hugbúnaði hf., með víðtæka sérþekkingu. Til viðbótar við eigin framleiðslu, þá er Hugbúnaður hf., innflytjandi á hugbúnaði frá þekktum hugbúnaðarframleiðendum, svo sem Autodesk, Software Publishing Corp., Delrina Corp., Corel System Corp. og fleirum. Sýningin AutoCAD EXPO Reykjavík ‘95 Hugbúnaður hf. ásamt Autodesk og þeim aðilum sem viðurkenndir eru af Autodesk sem AutoCAD söluaðilar, stóðu að stórri AutoCAD sýningu á Scandic Hótel Loftleiðum 31. ágúst og 1. september 1995. AutoCAD EXPO ‘95 var sýningin kölluð og var hún með sama sniði og nafni og þekktrar sýningar í Skandinavíu. Markmiðið með AutoCAD EXPO var að færa núverandi og verðandi AutoCAD notendum, góða og vandaða sýningu, með möguleikum á kennslu og kynna jafnframt öflug stoðkerfi fyrir sem fiest fagsvið. Það er mat okkar að vel hafi tekist til og mættu 310 gestir á AutoCAD EXPO. Kynningar voru haldnar af tveimur íslenskum fyrirtækjum og sex erlendum: • Tölvuvæðing í Keflavík, sem í samvinnu við Hitaveitu Suður- nesja er að þróa öflugt viðhalds- og eignaskráningarkerfi fyrir orkuver. Kerfið frá þeim nefnist DMM og byggir á KKS kóðunarstaðli, sem er alþjóð- legur staðall fyrir orkuver. • Samsýn umboðs- og þjónustu aðili ESRI landupplýsingar- kerfanna á Islandi, kynnti kerfin ArcCAD og ArcView, sem gera AutoCAD notendum kleift að vinna með ARC/INFO og AutoCAD gögn samtímis. Þessi kerfi eru í notkun í mörg- um sveitarfélögum landsins og er Reykjavíkurborg þar á meðal. • Genius sem er leiðandi á heims- markaðnum á sviði véla- og vélhlutahönnunar, kynnti nýj- ustu útgáfu sína. Mörg íslensk fyrirtæki nota kerfin frá Genius. • Cadett sem framleiðir rafmagns- hönnunarkerfið ELSA í sam- vinnu við MG-Data GmbH í Þýskalandi, kynnti þetta öfluga kerfi í fyrsta sinn hérlendis. Kerfið fékk mjög góðar mót- tökur og eru þekkt fyrirtæki á rafmagnssviðinu búin að festa kaup á því. • IDOK sérhæfir sig í hönnun og utanumhaldi gagna fyrir hvers kyns verksmiðjur. Kerfin frá þeim eru sjálfstæðar einingar og því bjóða þeir bæði stórar og smáar lausnir. Kerfin til notkun- ar við hönnun lagna hafa þegar vakið mikla athygli hér. • Cadpoint, sem er orðið vel þekkt hérlendis, er einn stærsti framleiðandi stoðkerfa fyrir byggingariðnaðinn í Evrópu. Kerfin frá þeim spanna allt frá arkitektahönnun til veghönnunar. • GTX framleiðir ein öflugustu kerfi sem í boði eru til vinnslu með skannaðar teikningar, bæði á rasta- og vektorformi. • Autodesk kynnti þrívíddarkerfin AutoCAD Designer, AutoSurf og það allra nýjasta Mechanical Desktop. Þetta kerfi er hannað í samvinnu við stærstu og öflug- ustu samstarfsaðila þeirra á vélasviðinu (t.d. Genius). Auto- desk útvegar þeim mjög öflugt þrívítt kerfi sem þeir geta síðan byggt á. Verum lögleg Á AutoCAD EXPO talaði fulltrúi Autodesk einnig um notkun ólöglegs hugbúnaðar og þau vandamál sem fylgja slíkri notkun. Hann kynnti lítilega samtök hugbúnaðarframleiðenda: Buisness Software Alliance (BSA) og hlutverk þeirra sem er að uppræta notkun ólöglegs hugbúnaðar í heiminum. Hann tilkynnti einnig að Autodesk vildi koma til móts við ólöglega notendur á íslandi með tveggja mánaða tilboði á AutoCAD og 3Dstudio frá 1. september til 31. október 1995. Hugbúnaði hf., var falið tilboðið undir nafninu VERUM LÖGLEG - ÞAÐ VITA EKKI ALLIR HVORT ÞEIR ERU LÖGLEGIR. Með þessum orðum er átt við það að ólöglegur hugbúnaður berst oft inn í fyrirtæki, án vitundar yfirmanna. Þekkt dæmi um þetta er fyrir- tæki sem kaupir eina útgáfu af hugbúnaði til notkunar hjá sér, þessi hugbúnaður verður vinsæll meðal starfsmanna og allt í einu eru margir þeirra famir að nota hann samtímis. Þetta er alveg jafn ólöglegt og þegar starfsmaður mætir einn daginn til vinnu með hugbúnað sem hann fékk “lánaðan” hjá félaga sínum. Viðtökur kynningarinnar hafa verið mjög jákvæðar og farið langt fram úr okkar björtustu vonum. Fjölmargir hafa haft samband við okkur til að ræða málin og mörg fyrirtæki hafa þegar komið sínum málum á hreint, gagnvart okkar birgjum. Ottar Hallsteinsson Hugbúnaði hf. Breytt starfsemi Iðnþróunarsjóðs Áhersla lögð á veitingu áhættulána Á fyrri hluta þessa árs var hlut- verki Iðnþróunarsjóðs breytt með setningu nýrra laga um hann. Leggur sjóðurinn nú mesta áherslu á áhættulánastarfsemi. Með þátttöku Iðnþróunarsjóðs í áhættufjármagni hefur bæst við nýr kostur á þennan markað sem hvorki er bundinn einstökum atvinnugreinum eða lands- svæðum eins og flestir þeirra sjóða sem nú starfa á markað- inum. Af þessu tilefni fékk Utflutningsnefnd VFI Þorvarð Alfonsson, framkvæmdastjóra Iðnþróunarsjóðs, á fund til sín til að greina frá hinu nýja hlutverki sjóðsins og hvernig hann getur nýst verkfræðingum til dæmis í verkefnaútflutningi. I mars 1995 varð Iðnþróunar- sjóður alfarið eign íslenska ríkisins með eigið fé að upphæð 2.300 milljónir króna. Var þá lokið endurgreiðslum stofnfram- laga hinna Norðurlandanna, sem þau lögðu fram samkvæmt samningi landanna frá árinu 1970, þegar Island gerðist aðili að EFTA. Með breytingu á lögum sjóðsins, sem nauðsyn bar til á þessum tímamótum, var ákveðið að breyta um áherslur í starfseminni og skipa sjóðnum nýja stjórn. Hlutverk Iðnþró- unarsjóðs nú er að stuðla að uppbyggingu alhliða samkeppnis- hæfs atvinnulífs, einkum með því að taka þátt í fjármögnun verk- efna, sem fela í sér nýmæli í íslensku atvinnulífi. Tekur sjóðurinn þátt í verkefnum í öllum atvinnugreinum. Áherslusvið í starfsemi sjóðsins eru einkum eftirfarandi: * Þátttaka í fjármögnun verkefna á sviði vöruþróunar og nýsköpunar í samstarfi við fyrirtæki, einstaklinga og stofnanir. * Þátttaka í fjármögnun verkefna sem miða að útflutningi á íslenskri tækniþekkingu, aukinni alþjóðavæðingu og fjárfestingum íslenskra fyrirtækja erlendis. * Stuðningur við verkefni, sem hafa að markmiði að örva fjárfestingar erlendra aðila á íslandi. Þátttaka Iðnþróunarsjóðs er í formi lána, en hlutafjárþátttaka kemur einnig til greina. Lánin geta að jafnaði ekki numið hærri upphæð en 50% af heild- arkostnaði. Ekki er krafist hefðbundinna veðtrygginga og tryggingar fyrir endurgreiðslu, ekki aðrar en hugmyndirnar sjálfar og þær viðskiptaáætlanir sem liggja þeim að baki. Iðnþróunarsjóður veitir ekki beina styrki til einstakra fyrir- tækja eða einstaklinga en lil greina kemur að hann taki þátt í vel skilgreindum samstarfs- verkefnum í samræmi við hlutverk sjóðsins. Almenn skilyrði fyrir fjárstuðningi Iðnþróunarsjóðs er að verkefni uppfylli eitt eða fleiri eftirtalinna atriða: * Verkefnið feli í sér nýmæli í íslensku atvinnulífi, s.s. nýja vöru, framleiðsluaðferð eða þjónustu, endurbætur á vöru eða þjónustu eða yfirfærslu á tækni milli landa eða atvinnugreina. * Verkefnið stuðli að nýmæli í útflutningi vöru eða þjónustu, minni innflutningi eða auknum umsvifum íslenskra fyrirtækja í alþjóðaviðskiptum. * Verkefnið stuðli að aukinni hagræðingu í atvinnulífinu, til dæmis með markvissu samstarfi eða samruna fyrirtækja. Á þeim stutta tíma, sem sjóður- inn hefur starfað samkvæmt breyttum lögum, hefur verið unnið að stefnumótun. Til ráðuneytis í þeim efnum hefur stjórn sjóðsins kvatt til sérstaka ráðgjafanefnd, þar sem sæti eiga fulltrúar atvinnurekenda, laun- þega, iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytis og starfsmanna sjóðs- ins. Þá hefur verið gerður sér- stakur samstarfssamningur við Iðntæknistofnun um ráðgjafa- þjónustu og sérstök verkefni varðandi vöruþróun og nýsköpun. Þá situr fulltrúi sjóðsins í Verkefnisstjórn Fjárfestingaskrif- stofu Iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytisins og Utflutningsráðs. Sjóðnum hefur borist fjöldi um- sókna frá fyrirtækjum, einstakl- ingum og stofnunum. Ráðstöfunarfé til verkefna á sviði vöruþróunar og nýsköpunar er 230 milljónir króna til 1. maí árið 1996. Ráðstafað hefur verið 55 milljónum króna til margvíslegra verkefna á sviði vöruþróunar og nýsköpunar, til stofnunar fyrirtækja í eign íslenskra aðila erlendis og til átaksverkefna til að örva áhuga erlendra fyrirtæka til fjárfestinga á Islandi. Nokkrar umsóknir hafa borist frá verkfræðingum sem stefna að því að efla útflutning á tækni- þekkingu og hafa sumar þeirra fengið jákvæðar undirtektir. Því ber að fanga. Frá Utflutningsnefnd VFÍ. Andrés Svanbjörnsson formaður 4

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.