Verktækni - 01.09.1995, Blaðsíða 8
VERKTÆKNI
VERKTÆKNI
Utgefandi: Tæknifræðingafélag Islands
Verkfræðingafélag Islands
Stéttarfélag verkfræðinga
Ritstj. og ábm.: Sigrún S. Hafstein
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
VERKTÆKNI kemur út hálfsmánaðarlega í í 2200 eintökum og er
dreift án endurgjalds til allra félagsmanna TFÍ, VFÍ og SV.
\ G B Ó K I N
Jarðskjálfti á
Suðvesturhorninu?
Fyrsti samlokufundur vetrarins verður haldinn
fimmtudaginn 5. október nk. Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur mun fjalla um líkur á og hugsanleg
áhrif stórs jarðskjálfta á Suðvesturhorni landsins. Félagar
VFÍ ogTFÍ fjölmennið á fundinn sem hefst kl. 12:00.
Kynningarnefnd.
Skoðunarferð í flutninga-
miðstöð Eimskips í Sundahöfn
Föstudaginn 13. október býður Eimskipafélag íslands
tæknifræðingum og verkfræðingum í skoðunarferð. í fylgd
starfsmanna Eimskips verður keyrt um athafnasvæði
fyrirtækisins og verður m.a. skoðuð ný þjónustumiðstöð
frystivöru: Sundafrost. Að lokinni kynningunni verður
gestum boðið upp á hressingu.
Rúta fer frá Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 16:45.
Þátttakendur athugi að ekki er leyfilegt að keyra um
athafnasvæðið á eigin bílum.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til skrifstofu félagsins fyrir
I I. október í síma: 568851 1/5688503. Símbréf: 5689703
Stjórn TFÍ
Áminning til VFÍ félaga
Þeir félagar sem ekki hafa skilað inn æviskrá ásamt mynd
í nýjaVerkfræðingatalið eru vinsamlega áminntir um að
gera strax skil.
Æviskrár sendist til: Þjóðsaga hf.
Dvergshöfða 27
I 12 Reykjavík
Með félagskveðju,
Ritnefnd Verkfræðingatals
Síldarkvöld
Árlegt síldarkvöld Tæknifræðingafélags Islands verður
föstudaginn 10. nóvember n.k. á Hótel Loftleiðum
Stjórn TFÍ
Ritrýning greina í Arbók
f r
Frá útgáfunefndVFI ogTFI
Athygli er vakin á því að nú
stendur þeini til boða er senda inn
greinar í Árbók VFÍ og TFÍ að
láta ritrýna greinamar. Sett hefur
verið á stofn ritnefnd sem mun
annast ritrýninguna. Nefndina
skipa prófessoramir Jónas
Elíasson (talsmaður), Björn
Kristinsson og Þorbjörn Karlsson.
I reglum ritnefndar segir:
• Grein sem birta á skal lesin yfir
af tveimur sérfróðum ritrýnend-
um sem ritnefnd hefur samþykkt.
• Ritstjóri sendir ritrýnendum
greinar til yfirlesturs og þeir
senda ritstjóra athugasemdir
sínar.
• Athugasemdimar eru sendar
höfundum í bréfi þar seni kemur
fram eitt af þrennu, þ.e. greininni
er hafnað, beðið um lagfæringu,
eða greinin samþykkt.
• Greinum er hafnað ef báðir
ritrýnendur mæla nteð því.
• Beðið er unt lagfæringu ef báðir
ritrýnendur mæla með því. Ef
annar mælir rneð höfnun kemur
til greina að leita til þriðja
ritrýnanda.
• Greinar sem eru samþykktar og
birtast í blaðinu skulu merkjast
með stöfunum RG - [ártalj -
[raðnúmer]. Höfundi tilkynnist
bréflega að grein hans muni
birtast í Árbókinni.
Þeir sem hafa hug á að nýta sér
þennan möguleika og vilja korna
inn grein í Árbókina fyrir 94/95
verða að skila inn greinum sem
allra fyrst.
Atvinnuauglýsingar
VERKTÆKNI býður fyrirtækjum, atvinnu-
miðlunum og félagsmönnum SV, VFÍ og TFÍ að birta
atvinnuauglýsingar í blaðinu án endurgjalds. Þetta er
mikilvæg þjónusta við félagsmenn og hvetjum við
fyrrgreinda aðila til að nota þennan vettvang.
Jafnframt mun Verktækni fiytja fréttir af manna-
ráðningum, námslokum, skipulagsbreytingum og
nýjum fyrirtækjum. Þeir sem vilja koma slíkum
upplýsingum á framfæri geta sent þær til blaðsins.
Utanáskriftin er: VERKTÆKNI, Engjateigi 9, 105
Reykjavík. Símbréf: 568 9703 og tölvupóstur:
sv.@centrum.is. Einnig má hafa samband við
ritstjóra í sírna: 568 8510 og fá nánari upplýsingar.
Óskað eftir verkfræðingi á
raforkusviði.
Ráðgjafafyrirtæki á raforkusviði leitar eftir
verkfræðingi með menntun á því sviði og
með minnst þriggja ára starfsreynslu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi hlotið
menntun/framhaldsmenntun í Englandi og/-
eða Þýskalandi og geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Jónas G. Jónasson
hjá Stéttarfélagi verkfræðinga í síma: 568
9986 eða tölvupósti: sv@centrum.is.
Brautskráning fráTækniskólanum
I maímánuði s.l. voru brautskráðir
frá Tækniskóla íslands 48
nemendur. Útskrifaðir voru níu
byggingatæknifræðingar með B.S.
próf, fimm byggingaiðnfræðingar,
níu iðnaðartæknifræðingar með
B.S. próf og sjö iðnrekstrar-
fræðingar. Fimmtán nentendur
luku raungreinadeildarprófi sem
er fjögurra anna nám og veitir rétt
til náms á háskólastigi. Einn lauk
prófi í rafiðnfræði og tveir
nemendur luku fyrsta ári af
þremur í rafmagnstæknifræði sem
þeir ljúka síðar í Danmörku.
Þær breytingar hafa orðið á
námsframboði í Tækniskólanum
að nú er í fyrsta sinn boðið upp á
nám í vél- og orkutæknifræði til
B.S. prófs. Einnig er það nýmæli
að í B.S. námi í byggingatækni-
fræði geta nemendur valið
umhverfissvið, þar sem áhersla er
m.a. lögð á neysluvatn, fráveitu-
vatn, umhverfisfræði og
Við brautskráninguna afhenti
Páll Jónsson, formaður Tækni-
fræðingafélags íslands, Tækni-
skólanum peningagjöf og veitti
viðurkenningar fyrir tvö loka-
verkefni. Annars vegar hlaut Leó
Sigurðsson byggingatæknifræð-
ingur viðurkenningu fyrir verkefni
sitt um framkvæmd jarðgangna
undir Hvalfjörð og hins vegar
hlutu jteir Egill Egilsson, Hörður
Einarsson og Sigurður Magnússon
iðnaðartæknifræðingar
viðurkenningu fyrir lokaverkefni
sitt um vélvæðingu við vinnslu
ígulkera.
Nýúlskrífaðir iðnaðaríœknifrœðingar.
Efri röð frá vinslri: Steingrímur
Steingrímsson deildarstjóri
rekstrardeildar, Sigurður Magnússon,
IvarAtlason, Halldór V. Magnússon,
Þröstur Sigurðsson, Ágúst Ágústsson,
Hörður Einarsson. Fremri röðfrá
vinstri: Hjörleifur Gunnarsson,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Egill Egilsson.
Nýútskrifaðir byggingatceknifrceðingar.
Efri röð frá vinstri: Guðmundur
Hjálmarsson deildarstjórí
byggingadeildar, Jóhann Kr.
Hjálmarsson, Magnús Hjartarson,
Torft Gunnarsson, Trausti
Hafsteinsson, Magnús Guðjónsson.
Neðri röð frá vinstri: Aron Bjamason,
Leó Sigurðsson, Þór Sigurþórsson,
Guðni Þór Gunnarsson.
8