Verktækni - 01.04.2004, Síða 3

Verktækni - 01.04.2004, Síða 3
Aðalfundur RVFI Aðalfundur RVFÍ verður haldinn 19. maí næstkomandi kl. 18 íVerkfræðingahúsi. Dagskrá verður nánar auglýst síðar. Fé- lagsmönnum verður boðið upp á hefð- bundnar veitingar. Tölvupóstföng Félagsmenn eru hvattir til að senda upplýsingar um tölvupóstföng sín til skrifstofa félaganna vfi@vfi.is, tfi@tfi.is Þeir sem það vilja eru settir á póstlista og minntir sérstaklega á viðburði á veg- um félaganna. Heimasíður SV, TFÍ og VFÍ Tæknifræðingafélag Islands: www.tfi.is Stéttarfélag verkfræðinga: www.sv.is Verkfræðingafélag íslands: www.vfi.is Samlokufundir Samlokufundir eru að jafnaði haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 12:00 íVerkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Félagsmenn fá samlokur og drykki án endurgjalds en utanfélagsmenn geta keypt veitingarnar á sanngjörnu verði. Samlokufundirnir eru auglýstir á heima- síðumVFÍ ogTFÍ. Skilafrestur Stefnt er að því að næsta tölublaðVerk- tækni komi út um mánaðamótin maí/júní. Þeir sem vilja koma efni í blað- ið og/eða skilaboðum til ritstjóra eru beðnir um að senda tölvupóst á sigrun@vfi.is eða sigrun@tfi.is. LEIÐARIN N Meiri menntun? í fréttum Ríkisútvarpsins var nýverið sagt frá því að fjöldi háskólanema hefur rúm- lega þrefaldast á tveimur áratugum. - Þeir voru fjögur þúsund fyrir tuttugu árum en eru nú um fjórtán þúsund. Þá kom einnig fram að mörg dæmi em um að nýútskrifað fólk með háskólagráðu fái ekki vinnu við sitt hæfi. Þróun nemendafjölda er mis- munandi milli fræðigreina en mest hefur aukningin orðið í viðskiptafræðinámi. Fyrir átta árum vom 658 nemar í viðskiptafræði- námi en árið 2002 vom þeir 2534. Samkvæmt upplýsingum á vefVinnu- málastofnunar vom að meðaltali 5097 atvinnulausir í febrúarmánuði síðastliðn- um, þar af 509 sem lokið höfðu námi í há- skóla eða sérskóla á háskólastigi. Athyglisvert er að fara aftur í tímann og skoða atvinnuleysisþróunina í þessum hópi. í febrúar 2003 vom 484 án atvinnu, 298 í febrúar 2002 og 160 í febrúar 2001. Samkvæmt þessu hefur atvinnuleysi háskólamenntaðra farið stigvaxandi. Atvinnuleysi meðal verkfræðinga og tæknifræðinga hefur verið meira und- anfarin ár en oft áður. Samkvæmt upp- lýsingum á vefVinnumálastofnunar vom 19 verkfræðingar og 15 tæknifræð- ingar án atvinnu í febrúarmánuði síð- astliðnum. Vert er að minnast þess að fyrir nokkmm ámm var atvinnuleysi nánast ekkert hjá þeim sem lokið höfðu námi í verkfræði eða tæknifræði. í þessu sambandi er áhugavert að rifja upp til fróðleiks ályktun Samtaka iðnað- arins frá því í mars síðastliðnum en þar segir: „Tilfinnanlegur skortur er á vel menntuðu fólki á sviði iðn-, verk-, tækni- og raungreina. Gera verður átak til að bæta hér úr." Fyrir leikmenn, ekki síst þá sem em án atvinnu, er erfitt að skilja hver staðan raunvemlega er. Vonandi endurspeglar ályktun SI raunvemleikann en ekki garnla klisju. Ef sú er raunin skil- ur maður ekki af hverju fyrirtækin í land- inu em ekki búin að ráða þetta vel menntaða fólk í vinnu. Sigrún S. Hafstein, ritstjóri. VerkTækni golfmótið í Vestmannaeyjum 2004! VerkTækni golfmótið verður haldið íVestmanneyjum hjá Golfklúbbi Vestmanneyja. Mótið fer fram þann 14. ágúst næstkomandi og verður mökum og öðmm áhugasöm- um félagsmönnum boðið að fara í skoðunarferð um eyjuna á meðan á móti stendur. Um kvöldið verður boðið upp á fordrykk og glæsilegan kvöld- verð þar sem verðlaunaafhending fer fram. Nefndin vinn- ur nú að því að útvega styrktaraðila að ferðinni og er stefnan að bjóða upp á skemmtilega ferð á sann- gjömu verði. Nánar upplýsingar um dagskrá og ferða-og gistimöguleika verða í júní- blaðiVerktækni. Golfnefnd VFÍ: Guðmundur Pálmi Kristinsson - gudmpalmi@reykjavik.is Þorkell Ágústsson - thorkell@rnf.is Árni Sæmundsson - arnsae@rarik.is VERKTÆKNI Engjateigi 9 • 105 Reykjavík Simi: 568 8510 • Simbréf: 568 9703 • Tölvupóstur: sigrun@vfi.is ■ sigrun@tfi.is Blaðið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaðnefnd: Sveinbjörg Sveinsdóttir (SV), formaður, Árni Þór Árnason (TFÍ) og Ólafur Pétur Pálsson (VFÍ), auk ritstjóra. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram í blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Gutenberg • Mynd af Perlunni á forsiðu: Rafn Sigurbjörnsson • Aðstoð við útgáfu: Hænir sf. Sími: 55 88 100 • Fax: 55 88 128 utgafa@haenir.is

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.