Verktækni - 01.04.2004, Síða 11

Verktækni - 01.04.2004, Síða 11
Verktækni 4.tbi 2004 Þegar árfarvegurinn var styrktur vetur- inn 2003 var þess gætt að þær aðgerðir nýttust sem fyrsti áfangi strandvarna ef sá kostur væri talinn fýsilegur. Teiknuð var ný veglína sem nýtir núverandi brú en er samt eins fjarri sjónum og kostur er. Skilgreind var varnarlína fyrir þá veglínu en varnarlínan er sú lína þar sem byggðar verða strandvarnir í framtíðinni ef sá kost- ur verður valinn. Á meðfylgjandi teikn- ingu er sýnd veglína eins og hún var fram til 1992, núverandi vegur, endanleg veglína fyrir núverandi brú og varnarlína fyrir þá veglínu. Veturinn 2003 var byggður varnargarður yfir lægð í landinu á 240 m löngum kafla í varnarlínunni austan Jökulsár. Grjótið í aðgerðirnar sem unnar voru árið 2003 var tekið úr grjótnáminu við Breiðárlón og var þar um að ræða samtals 60.000 m3 af lausu grjóti og síuefni. Framtíðarlausn Mannvirki á Breiðamerkursandi munu á næstu árum smám saman færast í endan- lega legu miðað við staðsetningu núverandi brúar. Landsvirkjun gerir ráð fyrir að þurfa á þessu ári að færa raflínuna (Prest- bakkalína) austan Jökulsár í þá legu sem sýnd er á meðfylgjandi teikningu. Vega- gerðin ráðgerir að færa veginn austan Jök- ulsár eins og sýnt er á meðfylgjandi teikn- ingu þegar fjarlægðin frá fjörubakka í veg er 50 m. Ef miðað er við að rofhraðinn sé að meðaltali 5 m/ári þá þarfVegagerðin að færa veginn eftir u.þ.b. 5 ár. Hvaða fram- tíðarlausn verður valin til að tiyggja öryggi Hringvegarins á þessu svæði mun hins vegar ráðast af niðurstöðum þeirra athug- ana sem nú eru í gangi á möguleikum á strandvörnum framan við Jökulsárlón. Helgi Jóhannesson, verkfræðingur, deildarstjóri á brúadeild Vegagerðarinnar. Þjónusta við mannvirkjahönnuði í 25 ár Prentun tækniteikninga og öll önnur prentun Sendingaþjónusta á öllu höfuðborgarsvæðinu S4/HSKIPTI >s< prentlausnir fyrir skapandi fólk

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.