Verktækni - 01.04.2004, Blaðsíða 12
AC sfjórnarb°r4i fcT?í
Aðalfundur K'ITÍ (Kjarafélags Tæknifræð-
ingafélags íslands) var haldinn 14. apnl s.l.
að Engjateigi 9. Gústaf Adólf Hjaltason rakti
skýrslu stjómar þar sem farið var yfir starf-
semi félagsins á árinu. Meðal verkefna sem
unnið var að má nefna gerð kjarakönnunar
og útgáfu kjarabókar auk annarrar þjónustu
er varðar kjaramál félagsmanna.
Haraldur Sigursteinsson kynnti og gerði
grein fyrir ársreikningum KTFÍ og kom þar
fram að staða félagsins er góð. Haraldur
gerði einnig grein fyrir stöðu sjóða félags-
ins sem eru: Vísinda- og endurmenntun-
arsjóður, Orlofssjóður og Sjúkrasjóður auk
Fjölskyldu- og styrktarsjóðs. Fram kom að
talsverð aukning er í eignum Vísinda- og
starfsmenntunarsjóðs. Hvað varðar Orlofs-
sjóðinn þá var nýverið gert samkomulag
við Orlofssjóð BHM um aukið samstarf og
með því fengu tæknifræðingar sem starfa
hjá öðrum en ríki og Reykjavíkurborg
tækifæri til aðildar að orlofssjóði. Eignir
Sjúkrasjóðsins em enn sem komið er litlar.
Óli Jón Hertervig gerði grein fyrir reikn-
ingum Fjölskyldu og styrktarsjóðs KTFI.
Fram kom að eignir sjóðsins em það mikl-
ar að nú verður hægt að úthluta meira úr
sjóðnum. Reikningar sjóða félagsins og
ársreikningur þess vom samþykktir sam-
hljóða.
Haraldur Sigursteinsson gerði grein fyrir
rekstraráætlun KTFÍ fyrir árið 2004.Tillaga
var lögð fram um að félagsgjald verði ó-
breytt. Spurt var um háan lögfræðikostnað
og kom fram í svari formanns að talsvert
fleiri fyrirspurnir berast nú en áður til lög-
fræðings félagsins.
Nýr formaður KTFÍ
Gústaf Adólf Hjaltason, sem verið hefur
formaður félagsins í rúmlega fimm ár, lét
maður KTFÍ er Bjarni Bentsson. Aðrir í
stjórn em: Jón ísaksson Guðmann, vara-
formaður, Haraldur Sigursteinsson, Samúel
Smári Hreggviðsson, Árni Þór Ámason,
Kristjón Jónsson, Þór Sigurþórsson og Óli
Jón Hertervig.
i
F.v. Gústaf A. Hjaltason, fráfarandi formaður KTFÍ, Jóhannes Benediktsson, fundarstjóri og Haraldur Sig-
ursteinsson, gjaldkeri KTFÍ.
Efni í Árbók VFÍ/TFÍ
Ráðgert er að gefa út Árbók VFÍ/TFÍ
2004 í nóvember næstkomandi. Efni í
hana þarf því að berast tímanlega. Menn
em vinsamlega beðnir um að hafa eftir-
farandi í huga:
Vísindagreinar
VFÍ og TFÍ er mikið kappsmál að á ís-
landi sé gróska í tækniframförum og
áhugi félagsmanna á vísindum sé sem
mestur. Árbókin er réttur vettvangur
fyrir tækni- og vísindagreinar félags-
manna. Menn em hvattir til að senda og
jafnframt hvetja aðra til að senda greinar
í árbókina.
Vísindamönnum er gefinn kostur á að
fá birtar eftir sig ritrýndar greinar. Slíkar
greinar em ritrýndar af tveimur sérfræð-
ingum á því sviði sem vísindagreinin
nær til og fást ekki birtar nema þeir telji
þær birtingarhæfar sem ritrýndar grein-
ar. Þessar greinar jafngilda vísindagrein-
um sem fást birtar í virðulegum erlend-
um tímaritum.
Þættir úr sögu félaganna
Fróðlegt væri að fá frásagnir af mönnum
og málefnum frá fyrri tíð er varða tækni
eða sögu félaganna.
Kynning fyrirtækja og stofnana
í árbókinni er kafli þar sem fyrirtæki
og stofnanir fá tækifæri til að gefa
yfirlit um starfsemi sína og segja frá
markverðum atburðum með tilliti
til verkfræði og tæknifræði í víðum
skilningi.
Auglýsingar
Hvergi er hægt að nálgast tæknimenn á
einfaldari hátt en í ÁrbókVFÍ/TFÍ.
Markhópurinn er skýr og afmarkaður og
skilaboð til hans em auðsend.
Vörumerki („lógó")
Þeir sem aðeins vilja láta vita af sér nota
vömmerki til birtingar.
Styrktarlinur
Styrktarlínur em vel þegnar.
Vinsamlegast gangið frá tækni- eða
vísindagreinum sem allra fyrst og
alls ekki síðar en í lok júní næstkom-
andi. Sömuleiðis er æskilegt að kynn-
ingargreinar eða auglýsingar berist
sem fyrst. Blaðsíðufjölda árbókarinnar
er haldið innan vissra marka og er því
takmarkað rými fyrir greinar. Því má
segja: Fyrstir koma, fyrstir fá.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar
Ragnarsson, ritstjóri árbókarinnar.
Heimasími/fax: 581 2687 - GSM: 847
2374 - Tölvupóstfang: rara@simnet.is
Einnig er hægt að hafa samband við
skrifstofuVFÍ ogTFÍ og skilaboðum
verðum komið til ritstjóra.