Bréf frá Samtökum hernámsandstæðinga - 15.10.1960, Page 10

Bréf frá Samtökum hernámsandstæðinga - 15.10.1960, Page 10
að ekkert skyldi afráðið í málinu án samráðs við Alþingi. Framkoma allra, er þátt tóku í mótmælagöngunni og varðstöðunni, var í hvívetna óaðfinnanleg. Skal þess serstaklega getið vegna þess, að and- stæðingar samtakanna rejmdu að vanda þeirra, er vafasaman málstað eiga að verja, að sverta samtökin með alls konar uppspunnum sakargiftum. Árangur þessara aðgerða var sá, að malið komst á svipstundu hvarvetna a dagskrá; menri töluðu vart um annað en motmælaaðgerðir Samtaka her- námsandstæðinga og stæltu hver annan í andstöðu við hvers konar undanslátt í landhelgisrriálinu. Einstaka raddir heyrðust meðal hernámsánd- stæðinga a þa lund, að vafasamt væri, hvort sam- tök okkar ættu að láta landhelgismalið svo mjög til sm taka. Mun svo löngum verðá, að ekki geti allir orðið í öllu efni algjörlega á eitt sáttir. En fullvist er, að þusundfalt fleiri héfðu legið sam- tökunum á hálsi fyrir sofandahátt, hefðu þau haldið að ser höndum og þjoðinrii ef til vill verið tilkynnt í þingbyrjun, að búið væri að'semja við Breta, í stað yfirlýsingar forsætisráðherra, að ekkert skyldi afráðið í málinu án samráðs við Al- þingi. Fjárhagur samtakanna er framar öllum vonum. Framkvæmdaráð Þingvallafundar fekk.J ív vor-taX umraða smafjarhæði, sem afgangs var af frjálsum framlö^um hernam sandstæðinga, einnig ritið Keflavikurgönguna, sem selt var um land allt í sumar, og varð af þvi verulegur hagnaður, því auglýsingar greiddu prentunarkostnað allan. Framkvæmdaráð gaf einnig út annað rit, "Þing- vallafundinn 1960," og var aflað auglýsinga til greiðslu prentunarkostnaðar, svo að allt, er inn kom fyrir sölu a ritinu, var hreinn ágóði. Þá let framkvæmdaráð gera merki Þingvallafund- ar, og varð nokkur ágóði af sölu þess. Loks var efnt til fjarsöfnunar um allt land, og þannig fekkst það fe, sem mest um munaði.

x

Bréf frá Samtökum hernámsandstæðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bréf frá Samtökum hernámsandstæðinga
https://timarit.is/publication/966

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.