Dagfari - 15.04.2005, Page 3

Dagfari - 15.04.2005, Page 3
„Við verðum að halda hreingerningunni áfram" í blaði sem 1. desember nefnd stúdenta gaf út árið 1972 tóku þeir Gestur Guðmundsson og Óskar Guðmundsson langt og greinargott viðtal við Einar Braga, þar sem komið var víða við í sögu friðarbaráttunnar. Þar rakti Einar Bragi sögu herstöðvabaráttunnar aftur til ársins 1946, vék að inngöngunni í NATO 1949 og þróun mála fram að því þegar vinstri stjórn Hermanns Jónassonar 1956-59 sveik gefin loforð um að herinn skyldi fara: „Rithöfundafélag Islands reið á vaðið með skipulega baráttu fyrir að staðið yrði við loforð stjórnarsáttmálans. Ásamt öðrum samtökum listamanna boðuðum við til geysiíjölmenns fundar í Gamla Bíói í desember 1957. Síðan þróaðist þetta smátt og smátt upp í samtök, sem nefndust Friðlýst land. Að þeim stóðu fyrst og fremst lista- og menntamenn, og varð þetta aldrei sérlega fjölmennur félagsskapur, en hann aðhafðist þó ýmislegt. Efnt var til funda víða um land sumarið 1958, og gefinn var út bæklingur, Friðlýst land, og nokkur blöð með sama nafni. Þessi hópur hélt reglulega fundi, sem voru fámennir þegar á leið, og voru þeir þá haldnir á heimili þeirra Skúla 'llioroddsen og Drífu Viðar. Það mun hafa verið á einum slíkum fundi í maí 1960, að sú hugmynd kom upp að fara í mótmælagöngu frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. Sumum þótti þetta uppátæki of dirfskufullt, en í ljós kom að hugmyndin átti hljómgrunn meðal alþýðu. Gangan var fjölmenn, og útifundurinn í lok göngunnar var einn sá fjölmennasti fundur, sem hér hafði sézt.“ Þessi fyrsta Keflavíkurganga hleypti nýju blóði í andstæðinga hersetunnar. Boðað var til Þingvallafundar um haustið og voru fulltrúar á hann valdir á fundum um land allt þá um sumarið eða skipaðir af sérstökum héraðsnefndum sem komið var á fót. Með fundum þessum var lagður grunnurinn að formlegum samtökum íslenskra friðarsinna. „Eg var stanzlaust á ferðalagi í sex vikut og fór um Austurland allt, frá Suðursveit norður að Tjörnesi ásamt Jónasi Arnasyni og Ragnari Arnalds. Aðrir fóru um hina landshlutana á sama hátt. Á Þingvallafundinum um haustið voru Samtök hernámsandstæðinga formlega stofnuð, kosin ntiðnefnd og úr hópi hennar sérstök framkvæmdanefnd. Síðan settu þau sér það höfuðverkefni að safna undirskriftum um allt land undir kröfuna um brottför hersins og úrsögn úr NATO. ... Uti um land var víða mjög vel unnið, og gríðarlegur árangur náðist. Til dæmis náðist rúmur meirihluti atkvæðisbærra manna á Norðaustur- og Austurlandi. Þegar hafin var undirskriftasöfnun í Reykjavík, ærðist Morgunblaðið gjörsamlega og fann upp slagorð, sem því reyndist anzkoti vel, og kallaði þessa

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.