Dagfari - 15.04.2005, Blaðsíða 4
undirskriitarlista „Moskvuvíxilinn“, og
varaði menn við dag eftir dag að láta
glepjast til að skrifa upp á Moskvuvíxilinn.
Og þetta dugði. Að vísu söfnuðust nokkur
þúsund undirskrifta hér, en erfiðleikarnir
voru það miklir, að menn lögðu árar
í bát, áður en verkið var unnið til fulls.
Samtökin störfuðu þó af nokkrum krafti
enn um skeið.“
I’ótt stofnað hafi verið til Samtaka
hernámsandstæðinga til að sameina
ólík öfl, var þess skammt að bíða að
flokkspólitísk átök settu mark sitt
á þau. I viðtalinu rekur Einar Bragi
hvernig flokkaværingar tóku að gera
vart við sig eftir sveitarstjórnarkosningar
1962, þar sem forystumenn á borð við
Kjartan Ólafsson, Ragnar Arnalds og
Jónas Arnason fóru allir í framboð fyrir
Alþýðubandalagið.
„Bæði mér og fleirum fannst þarna ekki
vel að farið, og sér í lagi urðti reiðir, sem
voru framámenn í öðrum flokkum, s.s.
Þjóðvarnarflokk og Framsóknarflokk
yfir því, að þessi menn, sem taldir liöfðu
verið hin hlutlausu og sættandi öfl
innan samtakanna, væru nú komnir inn
i ákveðnar flokksraðir. Ut af þessu urðu
allmiklar ýfingar, og ég held að segja
megi, að aldrei liafi gróið lyllilega um
heilt með framámönnum í Samtökum
hernámsandstæðinga eftir það. Þeirra
áhrif fara síðan að dofna. Annars hlýtur
svona barátta, sem stendur í ár og áratugi
Undirbúningur Þingvallafundarins lól í sér ferðir um allt land