Dagfari - 15.04.2005, Page 7
komið að góðu haldi eins og mungát skal
höfð í nærveru þyrstra.11
Lítt var hirt um trúmál á heimilinu, en
um móður sína skrifar Einar Bragi:
„En hún sagðist hafa farið að hugsa
alvarlega um pólitík þegar bandarískur
dómstóll dæmdi Sacco og Vanzetti,
mannvini af verkastétt til dauða fyrir
ekkert'. Henni gat ekki dulist fremur
en öðrum sem opin hafa augun að
þjónar kirkjunnar voru með fáum
undantekningum á bandi höfðingjanna
sem hirða arðinn af striti hinna snauðu.“
Ymislegt skondið má sjá þegar hann
skoðar kristni landans og hvernig hún
birtist, þetta á trúlega enn betur við nú
en þá.
„...aldrei hafa uppi verið á Islandi aðrir eins
stórþjófar og nú á dögum. Djarftækastir
eru þeir sem lengt hafa alþekkt boðorð um
tvö orð: Þú skalt ekki stela nema löglega.
Þeir hafa ekkert að óttast, því þeir stjórna
löggjöfinni og framkvæmd hennar, eru
gulltryggðir í bak og fyrir: refsivöndur
laganna nær ekki til þeirra hér á jörð og
hinumegin eru syndagjöld þeirra goldin
fyrirfram með blóði lausnarans.“
„Hin eina religion sem ég get og hef játað
í ýmsum ljóða minna er tilfinning fyrir
eilífu samhengi alls sem er og lifað hefur,
trú á eilífð jarðargróðans, trú á lífið og
fegurstu blómstur þess listina og ástina
öllum guðunr æðri.“
Elvar Astráðsson tók saman